Birtingur - 01.07.1960, Side 23
226
hæfi mannsins, það er einungis brot af ákveðnu máli jarðkúlunnar.
Okkur vantar mál, sem sniðið er út frá stærðum mannslíkamans
og á í sér um leið fögur hlutföll og hentug til fjölbreytilegra sam-
setninga. Um leið gæti þetta nýja málkerfi orðið upphaf að alls-i
herjar máti fyrir stöðlun í iðnaði.
Því miður get ég ekki í þetta sinn útskýrt nákvæmlega eða rakið
þróunarferil gullinmáts umfram það, sem kemur fram í eftirfarandi
myndum og skýringum við þær.
Tveir ferningar 113x113 eru lagðir hlið við hlið. Þriðja fern-
ingnum sem er jafnstór hinum, er þannig fyrir komið innan þeirra
að gullinsnið hans er sett í miðju samanlagðrar lengdar þeirra
fyrrnefndu. Síðan er þessum ferningum snúið upp á rönd og
sex feta hárri mannsmynd komið fyrir í þeim, eða eins og Le Cor-
busier segir: „Modulor eða gullinmát er mælitæki sem sniðið er
eftir stærð mannsins og stærðfræðilegum útreikningi. Stærðin
„maður með uppréttan handlegg“ með línum dregnum um iljar,
nafla, höfuð og fingurgóma þegar handleggurinn er uppréttur,
myndar þrjú bil sem af má leiða gullinsniðsröð í samræmi við talna-
hlutfall það sem kennt er við Fibonaci". „Grind þessi“, segir hann
________226_______________
UO 86.
Teikningar: Le Corbusier.
Birtingur 21