Birtingur - 01.07.1960, Page 24
enn fremur, „sýnir þrjár stærðir (í sentimetrum) sem hver um sig
er í gullinsniðshlutföllunum: 43 + 70 = 113 eða 113 — 70 = 43.
Lagðar saman kemur út: 113 + 70 = 183 eða 113 + 70 + 43
= 226“.
Eitt er það sem miklu máli skiptir í sjónarheimi, afstæðiskenningu
formanna gætum við kallað það. Við þekkjum afstæðishugmyndina
úr málverkinu. Enginn litur er fagur eða Ijótur í sjálfum sér, hann
fær gildi sitt af því hvar hann er settur með öðrum litum. Litur
getur verið svipmikill á einum stað en sviplaus á öðrum. Þannig er
einnig um formin háttað. Þau breyta gildi sínu eftir því í hvaða
umhverfi þau eru, þau sýnast jafnvel stærri eða smærri eftir því
hvaða form eru með þeim. Ég ætla að sýna nokkur einföld dæmi
um þetta:
Ilér höfum við tvo jafnstóra hringa, þeir eru síðan umritaðir með
öðrum tveim, mismunandi stórum. Sá hringurinn sem er innan þess
22 Birtingur