Birtingur - 01.07.1960, Page 27
stæðna en þó þannig, að þeim sé haldið í hóflegum skefjum heildar,
að þar sé um hæfilega fjölbreytni að ræða. Þetta kölluðu Grikkir
harmoniu eða symetriu.
Platon segir: „Hinir vitru 0 Kallikles segja að vináttan, skipanin,
skynsemin og réttlætið haldi uppi himni og jörð, guðum og mönnum,
því er það að þeir kalla þessa heild Kosmos, eða hina góðu skipan“.
Fegurð mætti einnig nefna hina góðu skipan.
Við sáum hér á undan, að byggingarlist er ofin tveim meginþráð-
um, fagurgildi og notagildi. Við getum orðað þetta á annan hátt og
fullyrt: að reisa hús telst til listar, efni og not hússins er sú mót-
staða er listamaðurinn verður að sigra til þess að koma tilfinning-
um og hugsunum sínum á framfæri. Allt of fáir gera sér grein fyrir
þessum mikilvægu sannindum. Emerson kallar egoisma, allt sem
mótað væri án listar.
Já arkitektúr er listgrein, góðir hálsar. í ox-ðabókinni stendur meira
að segja arkitektúr: Listin að reisa hús og fegi’a þau eftir ákveðn-
um reglum. Margar skilgreiningar hafa komið fram um það hvað
byggingarlist sé. Svo ég vitni aftur í Le Corbusier, þá segir liann
að húsgei’ðarlist sé: „Hugvitssamur, nákvæmur og glaðlegur leikur
forma í ljósi“. Þannig vantar okkur ekki skilgi’einingar og athug-
anir um það hvað byggingarlist sé né list yfii’leitt og’ þær verða
sjálfsagt jafn margar og mennirnir eru margir; en sarnt megurn
við ekki gefast upp á því að gei’a okkur gi’ein fyrir hvers eðlis listin
sé, álíta það vonlaust vex’k vegna þess að enn hefur ekki verið
fundin stærðfræðileg formúla eða vísindaleg niðui'staða um list. Það
er eðli listar að vera síbreytileg, síkvik eins og bii’tan yfir íslandi,
en þó alltaf söm við sig: vekja fui’ðu, undrun, unað.
List er útrás hugsana og geðbi’igða, viðleitni mannsins að hneppa
skynjanir sínar og hughrif í viðjar efnis og forms.
Listin er þöi’f mannsins að ná sambandi við gildi alli-a hluta, kafa
undir yfirborð þeirra og reyna að sjá það sem ex*.
Listin er því dýpkun hins innra lífs hans, allra manna, hún er leit
þeirra hvers að öðrum, tilraun til fylli-a skilnings og tengsla við
náttúruna dauða sem lifandi.
Birtingur 25