Birtingur - 01.07.1960, Blaðsíða 28

Birtingur - 01.07.1960, Blaðsíða 28
Snúum okkur að verkunum í bókinni Islenzk íbúðarhús. Tökum fyrst tvö andstæð dæmi og bregðum á þau mælikvarða þeim, er við höfum reynt að lýsa hér á undan. Hér eru tvær myndir: önnur af forhlið hússins nr. 6 við Dyngjuveg, hin af suðvesturhlið hússins nr. 18 við Háuhlíð, Reykjavík. Þegar við fyrstu sýn er augljóst, hvort húsið orkar heillegar og betur á áhorfandann: Dyngjuvegur 6. En þá er að rökstyðja mál sitt. Með skírskotun til þess sem áður var sagt um samræmi, skulum við athuga, hvernig því er háttað í þessum tveim tilvikum. i húsinu við Dyngjuveg er markviss hrynjandi: hin reglubundna skipan uppistöðusúlna, á þær stefnir svo lárétt hreyfing glugg- anna, sem rofin er á skemmtilegan hátt. Annars vegar með því að láta gluggasamstæðu efri hæðar ekki ná alveg í gafl, hins vegar eru tilbrigðin í staðsetningu hurða á neðri hæð. Við minn- umst setningar Le Corbusier um leik ljóssins. Hér sjáum við, hvernig höfundur brýtur Ijósið á tvennan hátt: annars vegar hið meira 1 jós- brot með súlunum (það er harðara), hins vegar hin síkviku birtu- brigði veggjarins á milli súlna (og þau eru mýkri). Eiginlega eru hér þrir hættir í leik, því gljáfægður flötur glersins og speglun þess grípur inn í. En fleira kemur til greina en fagurfræðileg hlið máls- ins: gerð hússins, nútímaskilningur á því, hvað hús ei’, og rökrétt ályktun af notkun byggingarefnis og tækni, koma skýrt fram. Skemmtilegast er, að fagurskyn og notagildi renna hér eðlilega saman í eitt. Húsið veit mót sólar- og útsýnisátt, það er opnað fyrir birtu og fegurð náttúrunnar í kring. Það er eðlilega staðsett í brekkunni, eins og glöggt kemur fram, ef litið er á sneiðingu af því. Súlurnar sem brutu svo skemmtilega birtuna eru byggingar- tæknileg nauðsyn, þar eð hæðirnar eru að mestu glerveggir. Við virðum fyrir okkur hitt húsið: það orkar órólega á okkur, eins og það sé allt í brotum, engin heild er haldi innan vébanda sinna einstökum hlutum hússins. Gluggarnir eru á tvist og bast um hús- hliðarnar, og ekki bætir það úr skák, að gluggagerðir eru sex á ekki stærra rúmtaki. Ekkert bendir til, að höfundur beini húsinu í sérstaka átt, það er eins og húsið sé áttavillt, viti ekki hvert skal horfa. Hér er enginn markviss leikur með ljós eða stærðir, hver hlið er annarri lík, svo að lítil sem engin spenna fæst í stærðir. Þakið er kyndugt: að formi mitt á milli söðulþaks og brotins skúr- þaks, verkar nánast eins og smíðisgalli á húsinu. Það minnir á virðulega frú, sem hefur lent í mannþröng og veitir því ekki at- 26 Birtingur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.