Austurland - 26.10.1989, Page 1
TRÉ-X
innihurðir og
spónaparket
NESVlDEÓ S 71780
Vopnafjörður
Kaupfélagið með
greiðslustöðvun
LK
hluti veðlána hjá bönkum væri
í vanskilum og sagði hann að
kapp yrði lagt á að reyna að ná
fram skuldbreytingu til að
greiða úr þeim málum.
Um meginástæður þess að svo
er komið hjá kaupfélaginu sagði
hann að bygging trésmiðju á ár-
unum 1983 og 1984 hefði verið
þungur biti. Byggt hefði verið
stórt og vandað hús sem lítið
hefði fengist af lánum tii. Þá
hefðu miklar framkvæmdir ver-
ið á vegum félagsins fyrir meira
en áratug, þar sem mikið af
húsnæðinu hefði verið endur-
nýjað. Verðtrygging lána hefði
síðan komið beint ofan í þessar
framkvæmdir þannig að félagið
hefði aldrei náð að klára sig al-
mennilega af þeim.
Þrátt fyrir greiðslustöðvunina
mun rekstur Kaupfélagsins
verða óbreyttur þessa þrjá mán-
uði en um 45 manns eru á launa-
skrá hjá félaginu en heilsdags-
störf eru 35. hb
Þröngt mega sáttir sitja. - Það er þétt setinn veggurinn
á bryggjukantinum á Vopnafirði en hvert umræðuefn-
ið er vitum við ekki. - Kannski eru það vandrœði
kaupfélagsins. Mynd hb
Seyðisfjörður
Bæjarstjórnin lýsir furðu sinni
á framkomu Landsvirkjunar
Kaupfélag Vopnfirðinga fékk
á fimmtudaginn greiðslustöðv-
un til þriggja mánaða. Að sögn
Þórðar Pálssonar kaupfélags-
stjóra verður tíminn notaður til
að reyna samninga við lána-
drottna og huga að eignasölu.
Þórður sagði að fyrir stuttu
hefði kaupfélagið selt íbúðarhús
sem það átti og að auki var
mjólkursamlagið og sláturhúsið
leigt nýstofnuðum hlutafélögum
heimamanna. „Við höfum sótt
um úreldingu á sláturhúsinu og
vHjum gjarnan selja mjólkur-
stöðina og vélarnar þar. Við eig-
um hins vegar eftir að sjá hvað
kemur út úr umsókninni um úr-
eldinguna en lögum samkvæmt
má ganga frá úreldingarbótum
á skuldabéf og ef það yrði gert
ganga hlutirnir fyrr fyrir sig en
ella.“
Þórður sagði að samkvæmt 8
mánaða uppgjöri um mánaða-
mótin ágúst-september væru
skuldir kaupfélagsins ríflega 185
milljónir en það væri fyrir utan
landbúnaðarvörubirgðir. Eignir
miðaðar við sömu forsendur
væru um 160 milljónir. Þar af
væru bókfærðar fasteignir fyrir
90 milljónir en brunabótamat
þeirra væri nálægt tvöfaldri
þeirri upphæð. Hann sagði
rekstrarfjárstöðu kaupfélagsins
hafa verið mjög slæma og um
áramótin hafi hún verið nei-
Neskaupstaður
Brotist
inn a
tveimur
stöðum
kvæð um 100 milljónir króna.
Þá kom fram hjá Þórði að stór
Á fundi sínum þann 16. okt-
óber síðastliðinn samþykkti
Egilsstaðir
Vilja skógræktarbraut
við Menntaskólann
Á fundi sem boðaður var af
Framfarafélagi Fljótsdalshéraðs
og Skógræktarfélagi Austur-
lands var samþykkt ályktun þar
sem þeim tilmælum er beint til
menntamálaráðuneytisins að
við Menntaskólann á Egilsstöð-
um verði sett á stofn skógrækt-
arbraut svo fljótt sem auðið er.
í greinargerð með ályktun-
inni segir að nú standi fyrir dyr-
um flutningur aðalstöðva Skóg-
ræktar ríkisins á Fljótsdalshér-
að, þar sem vagga skógræktar í
landinu er. Jafnframt sé að hefj-
ast stórátak í ræktun nytja-
skóga, því blasi við þörf fyrir
fræðslu á þessu sviði svo fram-
kvæmd fari vel úr hendi og fjár-
magn notist sem best. hb
bæjarstjórn Seyðisfjarðar sam-
hljóða ályktun sem er svohljóð-
andi:
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðar
lýsir furðu sinni á því að Lands-
virkjun sniðgangi samþykktir
Alþingis, varðandi röð virkj-
ana. Alþingi hefur ákveðið að
næsta stórvirkjun verði Fljóts-
dalsvirkjun og því hefur ekki
verið breytt.
Þrátt fyrir þetta hefur Lands-
virkjun sem er í meirihlutaeign
ríkis og Reykjavíkurborgar haf-
ið undirbúning að áframhald-
andi virkjunum á miðju eldsum-
brota- og jarðskjálftasvæði
landsins.
Bæjarstjórnin mótmælir því
harðlega að ákvarðanir Alþingis
íslendinga séu hunsaðar á þenn-
an hátt.
Bæjarstjórnin bendir á að
Reykjavíkurborg, eitt sveitarfé-
laga, hefur með eignaraðild sinni
að Landsvirkjun náð undirtökun-
um í ákvarðanatöku um virkjanir
í skjóli ranglátra laga um einka-
rétt á vatnsnotkun til virkjana.
Þá bendir Bæjarstjórn Seyðis-
fjarðar á að stórfelldar fjárfest-
ingar í orku- og stóriðjumann-
virkjum á SV-landi samfara
fyrirsjáanlegum samdrætti í
fiskafla landsmanna viðhalda og
auka þá byggðaröskun sem við-
gengist hefur síðustu áratug-
ina.“
Brotist var inn á tveimur stöð-
um í Neskaupstað aðfaranótt
mánudagsins, í Veitingahúsið
við höfnina og mjólkurstöð
Kaupfélagsins Fram. Lögreglan
í Neskaupstað upplýsti bæði
innbrotin á mánudag en í ljós
kom að sami maðurinn var að
verki í bæði skiptin. Um var að
ræða aðkomumann sem stundar
vinnu á Eskifirði og viðurkenndi
hann afbrotin strax.
„Aðkoman hérna var ljót“,
sagði Aðalbjörg Þorvarðardótt-
ir eigandi Veitingahússins við
höfnina. „Hér var farið inn um
glugga að sunnanverðu og sóða-
skapurinn var mikill. “ Aðal-
björg sagði að losað hefði verið
úr sorppokum um allt og
skemmdir unnar á vín- og bjór-
skápum. Nokkru magni af
áfengi var stolið og þar að auki
brotnar margar flöskur. Um
10.000- 15.000 krónum í skipti-
mynt var stolið.
Aðalbjörg sagði að þetta yrði
til þess að hún myndi gera
endurbætur sem gera ættu húsið
þjófhelt. Sá sem verknaðinn
framdi hefur lofað að greiða
tjónið sem hann olli.
Að sögn lögreglu voru
skemmdir í mjólkurstöðinni
mun minni og þar var eingöngu
stolið einu útvarpstæki.
Innbrot og skemmdarverk
virðast vera orðin fastur fylgi-
hlutur haustsins hér eystra og
því full ástæða fyrir Austfirð-
inga að vera á vaðrbergi gagn-
vart slíku. hb
NESVlDEÓ S 71780
CJauÖt&J “p^o“ré‘ar,. t.
^^jmmmmmmmj/ þvottavelar - kæliskapar
frystiskápar