Austurland - 26.10.1989, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson og Smári Geirsson
Ritstjóri: Haraldur Bjarnason (ábm.) ® 71750 og 71756
Auglýsingar og dreifing:
Sólveig Hafsteinsdóttir S 71571 og 71836
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Egilsbraut 8 • Pósthólf 31 • 740 Neskaupstaður ■ ® 71750 og 71571
Prentun: Nesprent
Felst lausnin í fylkisstjórn?
Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjör-
dæmi, sem haldinn var á Vopnafirði í ágúst sl., var tekin
fyrir skýrsla sem ber yfirskriftina „Felst lausnin í fylkis-
stjórn?“ Skýrsia þessi var unnin af starfshópi á vegum sam-
bandsins og ætti að geta orðið góður grundvöllur umræðu
um breytta stjórnskipun á íslandi.
í skýrslunni eru raktar hugmyndir Fjórðungsþings Aust-
firðinga í stjórnskipunarmálum, afstaða íslensku stjórn-
málaflokkanna til þriðja stjornsýslustigsins kynnt ásamt
því að fjallað er um erlend ríki þar sem stjórnstig á milli
ríkisvalds og sveitarfélaga er við lýði.
Skýrslan greinir skilmerkilega frá hugsjónum Fjórð-
ungsþings Austfirðinga um fylkisstjórnir. Hugmyndirnar
voru mótaðar á fimmta áratugnum og gerðu þær ráð fyrir
að landinu yrði skipt í sex fylki og skyldi hvert fylki verða
stjórnarfarsleg heild með allvíðtæku starfssvæði. Meðþess-
um hætti taldi Fjórðungsþingið unnt að flytja vald í veru-
legum mæli frá ríkinu til fulltrúa fólksins í hverju fylki.
Hugsjónin var sú að færa valdið nær fólkinu.
Samkvæmt skýrslunni er afstaða íslensku flokkanna já-
kvæð til valddreifingar, en hinsvegar eru viðhorf þeirra til
þriðja stjórnsýslustigsins misjöfn. Sumir flokkanna eru já-
kvæðir í garð þessa fyrirkomulags, aðrir eru neikvæðir en
óljós afstaða þekkist einnig. Staðreyndin er sú að umræða
um markvissa dreifingu valds hefur ekki verið áberandi í
íslenskum stjórnmálum.
Þau erlendu dæmi sem skýrslan greinir frá sýna svart á
hvítu að ríki leysa stjórnskipunarmál sín með misjöfnum
hætti og gera höfundar skýrslunnar ráð fyrir að á íslandi
þurfi að taka tillit til staðbundinna aðstæðna ef breyta á
stjórnskipuninni með skynsamlegu móti.
Höfundar skýrslunnar taka skýra afstöðu til umfjöllunar
efnis síns. Þeir gera það að tillögu sinni að héraðsstjórn-
stigið verði endurskipulagt sem samræmt millistjórnstig,
sem allt eins geti borið heitið fylki. Millistig þetta yrði
lögbundið stjórnsýslustig sem í framtíðinni gæti haft sjálf-
ræði í staðbundnum málum. Með þessu móti yrði markvisst
stefnt að því að flytja vald frá stjórnsýslumiðstöðinni í
Reykjavík til fulltrúa fólksins í héruðunum.
Skýrsla starfshópsins var einungis lítilega rædd á aðal-
fundi SSA á Vopnafirði, en ákveðið að taka hana til frekari
umræðu síðar. Það væri svo sannarlega austfirskum sveit-
arstjórnarmönnum til sóma ef þeir stuðluðu að því að um-
ræðurum breytta stjórnskipun, þarsem markviss valddreif-
ing yrði höfð að leiðarljósi, næði upp á yfirborð íslenskra
stjórnmála. Það er í reyndinni kominn tími til að ná árangri
í þeirri baráttu sem Fjórðungsþing Austfirðinga hóf
snemma á fimmta áratugnum. S. G.
Flugleiðir og fleiri aðilar
Helgaru pplyfti ng í höfuðborginni
Helgarupplyfting í höfuð-
borginni heitir pakkaferð sem
Flugleiðir í samvinnu við Hótei
ísland og Bláa lónið bjóða nú
upp á. Austfirsku fjölmiðlafólki
og ferðamálafrömuðum var
boðið að kynnast slíkri ferð um
síðustu helgi.
Hægt er að kaupa „pakkann"
ýmist frá föstudegi til sunnudags
eða eingöngu laugardaginn og
sunnudaginn. Verð á minni
„pakkanum“ er 15.000 fyrir
manninn og er þá miðað við gist-
ingu á tveggja manna herbergi.
Sé stærri „pakkinn“ tekinn er
verðij) 19.750 en athuga ber að
í báðum tilfellum er verðið án
flugvallarskatts. Gisting er á
öðru hvoru Flugleiðahótelanna,
Esju eða Loftleiðum. Verðið er
hið sama hvort sem flogið er frá
Egilsstöðum eða Norðfirði.
„Víkingaveisla" í Hollywood
Dagskráin byrjar á föstudags-
kvöldi á skemmtistaðnum
Hollywood. Þegar gestir mæta
þá tekur vörpulegur maður á
móti þeim klæddur skykkju
mikilli með hornahjálm á höfði.
Þarna þekkir maður að sjálf-
sögðum fyrrum handboltamark-
mann úr Fimleikafélagi Hafn-
arfjarðar og kunnan skemmti-
kraft hin síðari ár, Magnús
Ólafsson. Hann byrjar á að
bjóða upp á íslenskt brennivín
í staupi og harðfisk með, lætur
síðan gesti rita á skinn eitt mikið
áður en sest er til borðs. Magnús
hefur sér til halds og trausts
„þræla“ nokkra, alla kvenkyns.
Austfirsk fegurð er á forsíðu
kynningarbœklings fyrir Helgar-
upplyftinguna.
Dagskráin byggist síðan á sam-
kvæmisleikjum ýmiskonar og
einhvera hluta vegna hvarflaði
það að manni að þetta væri nú
ekki eins íslenskt og af var látið.
Til dæmis var ameríska og enska
tónlistin ekki beint á víkinga-
nótum. Það má líka vel vera að
víkingar hafi verið svo glæsilega
búnir sem Magnús, en þá hlýtur
klæðnaðurinn að hafa verið til
trafala í öllum þeim atgangi sem
fylgdi lífsmáta þeirra.
„Et drekk ok ver glaðr“ er
yfirskrift þessarar víkingasam-
komu í Hollywood og verður
hún að teljast hin ágætasta
skemmtun auk þess sem matur-
inn var frábær. Þó er líklegt að
þessi skemmtun höfði betur til
erlendra ferðamanna en íslend-
inga, því ætla má að landanum
þyki þetta heldur óraunveru-
legt.
Bláa lónið í hádeginu
Áframhald helgarpakkans er
svo um hádegisbil á laugardegi
þegar haldið er í Bláa lónið við
Svartsengi. Bláa lónið er nokk-
uð merkilegur staður í nágrenni
hins mikla orkuvers Suður-
nesjamanna. Þar munu menn
eiga að fá lækningu ýmissa húð-
sjúkdóma við böðun eða
sundsprett og margir hafa reynt
slíkt með góðum árangri. Þar
fyrr utan er lónið hinn skemmti-
legast baðstaður og þægilegt til
afslöppunar. Þarna í Bláa lón-
inu er boðið upp á léttan hádeg-
isverð sem snæddur er við
bryggjur úti í lóninu.
Rokkópera á Hótel íslandi
Laugardagskvöldinu er svo
varið á Hótel íslandi þar sem
gestir snæða þríréttaða máltíð og
fylgjast með rokkóperu sem
byggð er á söngleikjum sem fræg-
ir hafa orðið í gegnum tíðina.
Þessi sýning er meiriháttar.
Hljómsveit, söngur og öll fram-
koma söngvara og dansara hin
besta svo ekki sé minnst á sjón-
varpsþuluna Rósu Ingólfsdóttur
sem sér um kynningar og kemur
þar fram í gervi skúringakonu og
fer að sjálfsögðu á kostum.
Helgarpakkinn „Helgarupp-
lyfting í höfuðborginni", er vel
þess virði að taka þátt í honum
og í raun er verðið ekki svo hátt,
allavega ef miðað er við venju-
legt fargjald héðan að austan.
Umboðsmenn Flugleiða á Aust-
fjörðum og Ferðamiðstöð Aust-
urlands sjá um sölu miða í helg-
arpakkann ágæta. hb
Sarnaf i I
- dndir torfinu á Skriöuklaustri
—rf,'.. f\
VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI
Á ÞÖK-Á ÞAKSVALIR
ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU
UNNIÐ ALLT ÁRIÐ - SUMAR SEM VETUR
FAGTÚN HF. BRAUTARHOLTI 8, REYKJAVÍK, SÍMI 91-621370