Austurland - 26.10.1989, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
3
Fáskrúðsfjörður
Vann ferð til London
I ágústmánuöi sl. hóf Sam-
kort hf. útbreiðsluátak með að-
stoð korthafa sinna. Margir
korthafar tóku virkan þátt í
þessu og stuðluðu þannig að efl-
ingu kortsins.
í tengslum við átakið var efnt
til verðlaunaferðar til London
og þegar dregið var úr hópi
þeirra korthafa sem þátt tóku í
útbreiðsluátakinu kom í ljós að
vinningshafi helgarferðar fyrir
tvo til London reyndist vera
Arnfríður Guðjónsdóttir, Borg-
arstíg 2, Fáskrúðsfirði.
Á myndinni tekur hún við
verðlaununum úr hendi Gísla
Jónatanssonar kaupfélagsstjóra
á Fáskrúðsfirði sem afhenti þau
fyrir hönd Samkorts hf. Við ósk-
um Arnfríði til hamingju með
vinninginn.
Takið eftir
Við höfum Per Gynt,
Smart Lanett og Cavaler
garn og falleg mynstur.
Erum að fá jóla- og fönd-
urvörur. — 10% afsláttur
fyrir öryrkja og ellilífeyris-
þega. - Opið mánudaga,
miðvikudaga og föstu-
daga frá kl. 14 til 18. Af-
greiðsla á öðrum tímum
eftir samkomulagi. Upp-
lýsingar í símum 71252,
71814 og 71618.
Sjálfsbjörg
Neskaupstað S 77779
Samgöngur
Áætlunarbílar lítið notaðir
„Samkvæmt mínum útreikn-
ingum þá vantar 2,3 milljónir
upp á að rekstraráætlun fyrir
sumarið standist en sú áætlun er
byggð á fólksflutningum á áætl-
unarleiðinni síðustu ár“, sagði
Hlífar Þorsteinsson hjá Aust-
fjarðaleið, þegar AUSTUR-
LAND ræddi við hann í vikunni
um afkomuna á áætlunarleið-
inni Egilsstaðir, Reyðarfjörður,
Eskifjörður, Neskaupstaður.
í sumar var skipuð nefnd á
vegum Neskauþstaðar til að
ræða vanda þann sem skapast
vegria síminnkandi fólksflutn-
inga að sumarlagi á þessari
sérleið. Nefndin hefur haldið
einn fund með sérleyfishafanum
um þessi mál.
Hlífar segir að strax og fyrsta
hálkan komi á Oddsskarðsveg-
inn á haustin þá gjörbreytist
staðan. I sumar hafi faþegar
hinsvegar oft ekki verið nema
einn og tveir. Hann sagðist vel
geta ímyndað sér að hann hefði
komist af með að fara eina ferð
á hálfsmánaðarfresti og það á
20 manna bíl. Sérleyfið krefst
þess hinsvegar að farið sé alla
virka daga því fleira er flutt en
fólk. Póstflutningar fara fram
með áætlunarbílunum og sá
flutningur getur verið piássfrek-
ur þannig að fyrirfram getur
sérleyfishafinn aldrei séð hvort
Pegar allt er ófœrt venjulegum bílum er áœtlunarrútan full af far-
þegum. - Myndin er tekin í Oddsskarði í fyrravetur. Mynd hb
Vetrardekk í úrvali
Hagstætt verð!
lítill bíll myndi duga fyrir far-
þega og flutning.
„Um 90% af farþegum með
okkur eru að fara í veg fyrir flug
til Egilsstaða“, segir Hlífar og
bætir því við að þess vegna hafi
auknar flugsamgöngur við
Neskaupstað í sumar haft sitt að
segja í þessu máli, eins komi það
til að vegir hafi batnað og fólk
sé nú almennt á betri bílum og
fari því á eigin bílum. Hann seg-
ir að eðlileg krafa íbúa sé styttri
tími í ferðina og aukning á ferð-
atíðni en það verði tæplega leyst
að óbreyttu. „Það er líka ljóst
að við þurfum að geta endurnýj-
að bílana“, segir hann en ljóst
má vera að framansögðu að það
er ekki í sjónmáli.
Áætlunarferðir landleiðina
eru ekki styrktar en árlegur
ríkisstyrkur er hins vegar vegna
snjóbíls en að sögn Hlífars var
snjóbíll Austfjarðaleiðar aldrei
notaður vegna áætlunarferðar á
síðasta vetri en var þó notaður
í 90 klukkustundir í björgunar-
leiðangra til að hjálpa fólki sem
hafði fest einkabíla í Odds-
skarði. Lengsti leiðangurinn tók
73 klukkustundir frá byrjun til
enda. Á síðasta vetri fór Aust-
fjarðaleið að jafnaði 8 ferðir í
viku á milli Neskaupstaðar og
Egilsstaða, þegar ferðir vegna
Norðfjarðarflugs eru taldar
með.
En hvað er til ráða?
„Eina ráðið er að það náist
víðtækt samstarf allra þeirra að-
ila sem málið snertir", segir
Hlífar og bætir við að þó áætlun-
arferðirnar séu sífellt minna
notaðar þá hafi hann nú lúmsk-
an grun um að fólk myndi ekki
sætta sig við að áætlunarfeðir
landleiðina legðust niður. hb
Dæmi um verð
155 x 13 . .
165 x 13 . .
175/70 x 13
185/70 x 13
175 x 14 . .
195/70 x 14
3.370
3.460
3.700
3.800
3.980
4.480
Hjartans þakkir til ykkar
allra sem glödduð mig á
áttræðisafmælinu mínu.
Lifið heil.
Gísli Friðriksson, Seldal
Hvað kostar að skipta um dekk?
1 x umfelgun ......................330
1 x skipting......................160
1 x jafnvægisstilling ............350
4x umfelgun + 4x skipting + 2x jafnvægisstilling = 2.660
Bifreiðaverkstæði SVN
Neskaupstað © 7 16 02
Hjólbarða- og smurþjónusta
Mikið úrval vetrardekkja, sóluð og ný.
Snjógrip Regulus - Michelin General.
Snögg og vönduð inniþjónusta.
Staðgreiðsluafsláttur.
Hringið og pantið tíma.
Þverklettum 1, Egilsstöðum, sími 12002