Austurland - 26.10.1989, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
Philip Vogler
Bréf um blaðamál
Fólki sem vill koma upplýs-
ingum eða sjónarmiðum sínum
á framfæri á Austurlandi er
vandi búinn. Helst er það
svæðisútvarp sem gæti náð til
allra í fjórðungnum, en auðvit-
að vantar upp á að allir nái að
hlusta á hverja útsendingu. Svo
eru ýmis blöð, en það blað sem
mestrar útbreiðslu nýtur er að-
eins auglýsingapési og miðlar
ekki fréttum og þjóðmálaum-
ræðu. Svo eu ýmis önnur blöð
en öll eiga þau sameiginlegt að
vera miklu minna lesin á sumum
svæðum fjórðungsins en öðrum.
Sum eru gefin út af stjórnmálaf-
lokkum og fyrir kosningar bæt-
ast enn fleiri við af því tagi.
Hvar á óháður borgari eða félag
á Austurlandi sem vill ná til allra
í fjórðungnum að láta til sín
heyra?
Vandinn er svipaður fyrir
Philip Vogler.
auglýsendur. Að vísu er hægt að
ná vítt til heimilanna með aug-
lýsingapésanum, en þar með
hafa peningarnir sem auglýs-
andinn greiðir lítt styrkt fjórð-
unginn sem menningarsvæði.
Mörg fyrirtæki styðja blaðið hjá
helsta fjórnmálaflokki sínum,
en það val getur valdið deilum
í fyrirtækinu, fyrir utan að aug-
lýsandinn veit að stjórnmála-
blöðin ná aðeins til takmarkaðs
hóps og skila ekki peningunum
eins og æskilegt væri.
Svo eru það lesendurnir. Þeir
sem vilja sjá meira enauglýsing-
ar þurfa helst að kaupa þrjú
blöð til að fá sem flestar fréttir
af öllum svæðum, en flestum
lesendum finnst leitt að kaupa
stjórnmálalituð blöð og sumir
flokkstrúir einstaklingar lesa
ekkert blað frá öðrum flokkum.
Ofangreindar athugasemdir
eiga að hluta til einnig við lands-
blöðin, því ekkert þeirra er talið
óháð af öllum.
En getum við ekki, samborg-
arar mínir á Austurlandi, sýnt
dáð í þessum efnum og orðið
meira til fyrirmyndar á landinu?
ÁGÆTI NÁMSMAÐUR!
Náma Landsbankans er þjánusta sem léttir undir meí námsmönnum.
LEGGÐU^FRA^ÞER
jafnvel þótt þeir hafi úr litlu að spila. í Námuna getur þú sótt þjónustu
BÓKIN AN I)A RTA K,
á borð við útreikninga á greiðslubyrði, sveigjanlegri afborganir lána,
-HUGSAÐU UM NÁMU.
yfirdráttarheimild, VISA-kort og afhendingu skjala vegna LÍN. Fyrstu
VEISTU AÐ í LANDS-
þrjú tékkheftin fœrðu endurgjaldslaust og með timanum eignastu svo
BANKANUM ER NÁMA
Einkanámu! Með þátttöku í Námunni öðlast þú einnig rétt til að sækja
FYRIRETÍ-NÁMSFÓLK.
um 100.000 kröisa námsstyrk 09 námslokalán, allt að 500.000 krónum.
Náman er ný fjármálaþjónusta í
Landsbankanuin, sérstaklega ætl-
uð námsfólki frá 18 ára aldri. Því
ekki að hefjast handa nú þegar og sækja í námu
Landsbankans. Með því að skapa þér gott orð í
Landsbankanum - þó í litlu sé, leggurðu grunninn að
fjárhagslega öruggri framtíð. Allar nánari upplýsing-
ar, fúslega veittar í næsta Landsbanka. Við bjóðum
námsfólk velkomið.
Nýttu þér námuna.
Getum við ekki gefið út og stutt
sameiginlegt, sterkt blað sem
enginn er á móti að fá heim til
sín? Væri slíkt blað ekki marg-
falt sterkara en nokkuð stað-
bundið eða flokksbundið blað,
jafnvel fyrir flokka sem birtu
efni þar? Auglýsendur gætu
stutt svona blað með glöðu geði,
þannig að það myndi styrkja
fjórðunginn okkar viðskipta-
lega. Að ég ekki nefni menning-
aráhrifin og heildarsamkennd í
fjórðungnum.
Við skulum stefna ótrauð að
því og ekki seinna en núna.
Undirritaður hefur einmitt
fundið fyrir því hvað núverandi
ástand er slæmt og getur vakið
tortryggni. í seinustu viku skrif-
aði hann grein í teitt blað um
starfsemi félags síns. í sama
blaði og einnig í auglýsingapés-
anum birtist auglýsing fyrir fé-
lagið. í blaðagreininni voru
sameiningarmál blaðanna nefnd
en í auglýsingunum aðeins sem
dagskráratriði á fundi. í auglýs-
ingapésanum stóð auðvitað að-
eins auglýsingin. Þannig hefði
hætta á misskilningi verið miklu
minni í sameiginlegu blaði alls
fjórðungsins, þar sem bæði
greinar og auglýsinar myndu
birtast.
Undirritaður vill ítreka að
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs
er núna í fyrsta skipti að fjalla
um blaðamál á félagsfundi og ætl-
aði ekki að marka neina stefnu
heldur aðeins að á kunnugt fólk
til að hjálpa okkur að velta spum-
ingum um blaðaútgáfur á fjórð-
ungnum fyrir okkur. En stjómin
hafði strax talið að sameinuð út-
gáfa væri æskileg. Og stjómin var
viss um að einhverjir félagsmenn
myndu vilja starfa áfram eftir
fundinn með öllum öðmm aðil-
um á Austurlandi sem áhuga hafa
á sameiginlegu blaði. Einnig vill
undirritaður ítreka að hann gefur
tölvutækni og -samskipti hýrt
auga og heldur að með þeim geti
starfsemi blaðsins dreifst á
a. m. k. alla þá staði þar sem út-
gáfustarfsemi fer núna fram.
Kæru samborgarar á Austur-
landi! Hugum að bættri framtíð
og styrkjum okkar landshluta.
Ræðum fordómalaus saman um
heildarfjórðungsblað, sem tak-
markast í engu við stað, stjórn-
málaskoðun eða hreinar auglýs-
ingar. Verðum okkarlandshluta
til sóma.
Philip Vogler, formaður
Framfarafélags
Fljótsdalshéraðs.
Laufskálinn
Silkiblóm og þurrkaðir
blómvendir
Gluggaskraut svo sem hestar,
fuglar, kúlur og dropar
Verið velkomin
Laufskálinn
Nesgötu 3 Neskaupstað S 71212
ISLENSK SOFASETT
Tau-, leður- eða leðurlíkisáklæði
NESVlDEÓ