Austurland - 26.10.1989, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
Fimmtudagur 26. október
17.00 Fræðsluvarp.
1. Umræðan. Umræðuþáttur í tilefni
málræktarátaks menntamálaráðuneyt-
isins. (25 mín).
2. Algebra 4. þáttur. Almenn brot.
17.50 Sumarglugginn. Endursýning.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Hver á að ráða?
19.20 Benny Hill.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Fuglar landsins. Ný íslensk þátta-
röð um þá fugla semá íslandi búa eða
hingað koma. 1. þáttur - Súlan.
20.45 Sfld. Werner Vögeli, einn þekkt-
asti matreiðslumeistari heims, fjallar í
fjórum þáttum um rétti úr íslenskri
síld.
21.00 Heitar nætur.
21.50 íþróttir.
22.15 Líf í léttri sveiflu. 1. þáttur. Rak-
inn er lífsferill saxafónleikarans Char-
lie Parkers í fjórum þáttum, en fáir
tónlistarmenn hafa skilið eftir jafn
djúp spor í djasssögunni og haft meiri
áhrif á þróun djassins en hann.
23.00 Ellefu fréttir og dagskrárlok.
Föstudagur 27. október
17.50 Gosi.
18.25 Antilópan snýr aftur.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær. 18.
19.20 Austurbæingar.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Fiðringur. Böm og bækur. Þáttur
gerður í tilefni barnabókavikunnar
sem stendur nú yfir. Skoðuð verða
tengsl bóka og barna frá frumbernsku
til fullorðinsára.
21.15 Peter Strohm.
22.05 Viðtal við Wiesentha. Arthúr
Björgvin Bollason ræðir við Simon
Wiesenthal, en hann hefur á langri ævi
komið fleiri stríðsglæpamönnum nas-
ista á bak við lás og slá en nokkur annar
maður. Viðtalið, sem tekið var í
sumar, er sýnt í tilefni sýningar sjón-
varpsmyndarinnar Morðingjar meðal
vor sem sýnt verðrí Sjónvarpinu um
þessa helgi.
22.45 Morðingjar meðal vor. Fyrri hluti.
Ný bresk sjónvarpsmynd í tveimur
hlutum um líf og starf mannsins sem
hefur allt frá striðslokum elt uppi
stríðsglæpamenn nasista, og gerirenn.
Síðari hlutinn verður sýndur laugar-
daginn 28. október.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 28. október
14.00 Evrópumeistaramót í dansi.
15.00 íþróttir. M. a. bein útscnding frá
íslandsmótinu í handknattleik.
18.00 Dvergaríkið 19.
18.25 Bangsi bestaskinn.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Háskaslóðir.
19.30 Hríngsjá.
20.30 Lottó.
20.35 ’89 á Stöðinni. Æsifréttaþáttur í
umsjá Spaugstofunnar.
20.50 Stúfur.
21.20 Fólkið í landinu. - Skáleyjarbræö-
ur. Bræðumir Eysteinn og Jóhannes
Gíslasynir sóttir heim í Skáleyjar í
Breiðafirði. Umsjón Ævar Kjartansson.
21.40 Morðingjar meðal vor. Seinni
hluti. Bresk sjónvarpsmynd í tveimur
hlutum. Aðalhlutverk Ben Kingsley.
23.20 Max Havclaar. Hollensk bíómynd
frá 1978. Myndin gerist seint á 19. öld
og segir frá hollenskum stjórnarerind-
reka sem er sendur til Indónesíu til að
stilla til fridar.
02.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sunnudagur 29. október
13.00 Fræðsluvarp. Endurflutningur.
15.10 Óperuhátíð í Madríd. Spænskir
óperusöngvarar syngja óperuaríur og
spænska söngva í Óperuhöllinni í
Madrid.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Stundin okkar.
Helgi Hallgrímsson
Ný bók um pöddur
18.30 Unglingarnir í hverfinu.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Brauðstrit.
19.30 Kastljós á sunnudegi. Fréttir og
fréttaskýringar.
20.35 Dulin fortíð. 2. hluti. Ðandarísk
sjónvarpsmynd í fjórum hlutum. Aðal-
hlutverk Kirk Douglas, Mia Sara,
Topol, Gary Cady og Martin Balsam.
Ung stúlka kemst úr fátœkt í Kalkútta
til vegs og virðingar í tískuheiminum.
Hún vill hasla sér völl í Hollywood en
skuggar fortíðarinnar fylgja henni.
Myndin er byggð á ævisögu Merle
Oberon.
21.30 Litróf. Þáttur um bókmenntir, list-
ir og menningarmál líðandi stundar.
22.15 Regnboginn. Lokaþáttur.
23.15 Úr Ijóðabókinni. Raunatölur
gamallrar léttlætiskonu eftir Frangois
Villon í þýðingu Jóns Helgasonar.
Árni Tryggvason les.
23.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Fasteignir
til sölu:
Neskaupstaður
4 herb. íbúð V/Nesgötu
2 herb. íbúð V/Miðstræti
4 herb íbúð V/Hlíðargötu
3 herb. íbúð V/Nesbakka
4 herb íbúð Wíðimýri
Einbýlishús V/Gilsbakka
Einbýlishús VÞiljuvelli
Seyðisfjörður
Stórt einbýlishús
V/Fjarðarbakka
Viðskiptaþjónusta
Austurlands
Egilsbraut 11
Neskaupstað s 71790
Hjá samtökunum Landvernd
í Reykjavík er nýlega komin út
bók sem nefnist því óvenjulega
nafni „Pöddur“ en undirtitill er:
Skordýr og áttfœtlur. Skordýr
vita víst flestir hvað er, en átt-
fætlur er samheiti kóngulóa og
áttfætlumaura (mítla).
Má því segja að efni bókar-
innar séu skordýr og kóngulær,
og eru skordýrin þar í fyrirrúmi.
Þetta mun vera fyrsta bókin
sem rituð er og útgefin hér á
landi, og fjallar almennt um
þessa mikilvægu og algengu
dýraflokka.
Bókin „Meindýr" eftir Geir
Gígja, sem út kom 1944, tekur
þó skordýr til meðferðar, en á
miklu takmarkaðri hátt.
Það var vonum seinna, að
bókaþjóðin eignaðist yfirlitsrit
um smádýrin, sem hvarvetna
verða á vegi okkar, og sum hver
hafa leyft sér að gerast óboðnir
gestir í húsakynnum okkar, og
eru því gjarnan kölluð meindýr,
þótt fæst þeirra skaði menn á
nokkurn hátt.
Viðbrögð okkar við þessum
litlu dýrum, úti eða inni, eru oft
næsta furðuleg, og koma skýrt
fram hjá sumum börnum, sem
sælast tl að drepa flugur og troða
á kóngulóm.
Þá er hræðsla við kóngulær nú
mjög almenn hér á landi, en
geta má þess, að þjóðtrúin telur
það ógæfumerki að bana
kónguló.
Ein helsta ástæða þess, að
bjöllufaraldrar koma stundum
upp í nýju og fínu húsunum
okkar, er kóngulóarleysið í
þessum steindauðu húsakynn-
um, því kóngulær lifa oftast á
skordýrum og eiga mikinn þátt
í að takmarka fjölda þeirra.
Vonandi verður nýja pöddu-
bókin til að breyta viðhorfi al-
mennings á íslandi til smælingj-
anna í dýraríkinu, og auka
áhuga manna á fegurð og fjöl-
breytni smádýralífsins. Til þess
sýnist mér hún hafa alla burði.
Aðeins við að fletta bókinni
opnast manni nýr og undursam-
legur heimur vegna hinna stór-
kostlegu litmynda sem prýða
hana, en þær eru flestar teknar
af Oddi Sigurðssyni jarðfræð-
ingi, sem er mörgum Héraðs-
búum að góðu kunnur, frá því
hann var hér við rannsóknir á
Fljótsdalsvirkjun. Myndir Odds
eru ótrúlega skýrar og eðlilegar,
og gefa því ekkert eftir, sem
best hefur sést í bókum af þessu
tagi erlendis.
Höfundar bókarinnar eru sjö,
allir vel þekktir íslenskir smá-
dýrafræðingar. Fyrst er fjallað
um líkamsbyggingu og starfsemi
skordýra, þá um söfnun og varð-
veislu, og flokkun og greiningu
þeirra.
Höfundar þessara yfirlits-
greina eru Erlendur Jónsson,
Erling Ólafsson og Gísli Már
Gíslason. Víða um hinn mennt-
aða heim, er skordýrasöfnun
vinsælt tómstundagaman, en til
þessa hafa fáir lagt sig eftir
henni hér á landi. A því kann
að verða breyting með tilkomu
bókarinnar, sem gefur gott yfir-
lit yfir skordýrakerfið, lýsir öll-
um flokkum þeirra og birtir
greinignarlykil fyrir þá.
Þó er þetta ekki greiningar-
bók í venjulegum skilningi, og
aðeins fáein smádýr verða
greind til tegundar eftir henni.
Slík greiningarbók bíður enn
síns vitjunartíma.
f síðari hluta bókarinnar eru
kaflar um sérstaka hópa smá-
dýra.
Þar fjallar Árni Einarsson um
áttfætlur, Högni Böðvarsson
um jarðvegsdýr, Erlendur og
Gísli um Vatnaskordýr, Sigurð-
ur H. Richter um meindýr í hús-
um og Hrefna Sigurjónsdóttir
um atferli skordýra.
Hrefna hefur rannsakað kyn-
ferðislega hegðun mykjuflug-
unnar, og segir m. a. frá því.
Fjölda margar teikningar af
smádýrum og skýringarmyndir
eru í Pöddubókinni, hefur
Eggert Pétursson málari gert
flestar þeirra, en hann hefur nú
um nokkur ár lagt stund á teikn-
un náttúrulífsmynda, og mun
vera eini íslendingurinn sem
leggur það fyrir sig. Finnst mér
honum hafa tekist vel með þess-
ar myndir.
Varla verður rætt eða ritað um
skordýr, svo að Hálfdán Bjöms-
son á Kvískerjum í Öræfum komi
ekki upp í hugann, en hann er
nú fyrir löngu viðurkenndur sem
einn af okkar bestu skordýra-
fræðingum, þótt alveg sé hann
sjáifmenntaður f faginu. Ég
sakna þess, að hann skyldi ekki
vera fenginn til að rita í bókina,
t. d. um fiðrildin, sem hann er
manna kunnugastur.
Þá hefði gjarnan mátt vera
meira efni almennt um íslensk
skordýr, og skrá yfir tegundir og
flokka smádýra á íslandi.
En bók af þessu tagi er vissu-
lega þröngur stakkur skorinn,
og því ber að þakka það sem vel
er gert. Reyndar kæmi ekki á
óvart þótt útkoma Pöddubókar-
innar yrði upphaf heillar skriðu
af „skrautbókum" um skordýr,
eins og reyndin hefur verið með
fuglabækur undanfarin ár.
Pöddubókin er sú níunda í
bókaflokknum „RitLandvernd-
ar“, en áður hafa m. a. komið
sérstakar bækur um „Villt
spendýr" og „Fugla“ í þessum
flokki (1980 og 1982). Flest eða
öll ritin munu enn vera fáanleg
á vægu verði hjá skrifstofu
Landverndar, Skólavörðustíg
25, í Reykjavík. H.Hg.
iE3
NESKAUPSTAÐUR
Frá Bæjar- og
héraðsbókasafni
Neskaupstaðar
Safnið er opið sem hér segir:
Mánudaga: Kl. 1600 - 1900
Þriðjudaga: Kl. 1600 - 1800
er lesstofa fyrir 7 ára og eldri
KI. 1900 - 2 1 00 útlán
Miðvikudaga: KI. 1600 — 1900
Fimmtudaga: Kl. 2000 — 2200
Laugardaga: Kl. 1600 - 1800
Vegna barnabókaviku verður safnið opið
laugardaginn 28. október kl. 1400 — 1800
Bókavörður
Kvenfélagið Nanna
Áður auglýstur haustfundur Kvenfélagsins
Nönnu, Norðfirði, verður haldinn í
Safnaðarheimilinu í Neskaupstað þann
31. október ki. 2030
Dagskrá: Venjuleg fundarstörf
Góðir gestir koma í heimsókn Stjórnin