Austurland - 26.10.1989, Side 7
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
7
Minning
Jóhann Karl Birgisson
(1972-1989)
Jóhann Karl Birgisson fædd-
ist 2. nóvember 1972 í Nes-
kaupstað og ólst þar upp þangað
til þrettánda október þessa
mánaðar að hann kvaddi jarðlíf-
ið. Það var ótímabær kveðja
ungs drengs.
Jóhann Karl átti elskulega
foreldra Birgi Sigurjónsson og
Sigrúnu S. Jóhannsdóttur sem
eignuðust, auk Jóhanns, börnin
Kristínu Steinunni, Söndru og
Sindra.
Á heimili Sigrúnar og Bigga
að Starmýri 15 var jafnan líflegt
og fjörugt. Vinir Jóhanns, jafnt
sem yngri systkina hans, voru
velkomnir þangað og komu oft
og nutu þar góðra samveru-
stunda.
Þegar ég rifja upp eiginleika
Jóhanns Karls kemur mynd í
hugann af tilfinninganæmum,
samviskusömum og duglegum
dreng, sem var sannkallaður
vinur vina sinna. Af dreng sem
fór í veiðiferðir til Vopnafjarðar
með fjölskyldu sinni, ömmum
og öfum, dreng sem iðkaði
skíðaíþróttir af kappi og vann
reglulega til verðlauna.
Jóhann Karl hafði farið
nokkrar ferðir til sjós sér til
ánægju með föður sínum áður
en hann réðst sem háseti á tog-
ara síðastliðið vor. Hann átti
reyndar ekki langt að sækja
áhuga á sjósókn, en Birgir er
stýrimaður og afi hans og nafni
var sjómaður. Þeim nöfnunum
samdi vel og spiluðu þeir oft
saman á síðkvöldum.
Föðurömmu sína missti Jó-
hann Karl þegar hann var fjórtán
ára en með henni og móður-
ömmu sinni átti hann margar
góðar og gefandi stundir. Iðulega
leitaði Jóhann Karl til þeirra sem
jafnan áttu góðsemi og hlýju sem
þær gáfu ömmudreng.
Jóhann Karl var bæði greindur
og kappsamur og hafði m. a.
áhuga á að læra ensku og sumarið
1987 fór hann til Englands í
sumarskóla og bætti tungumála-
kunnátfu sína. Þá dvaldi Jóhann
Karl ásamt fjölskyldu sinni um
stund heima hjá mér og Marteini
frænda sínum og minnist ég þess
hve Jóhann var þá glaðlegur og
ánægður með líf og tilveru.
Marteinn, Silja og ég sendum
hugheilar samúðarkveðjur til
ættingja og vina sem eiga um
sárt að binda vegna fráfalls Jó-
hanns Karls.
Sorg þín er sár elsku mágkona
og vona ég að lífskraftur fylgi
þér, Birgi svila mínum og börn-
unum í nútíð sem í framtíð.
Minning lifir um einlægan
bróður, ljúfan og bjartan son.
Minning um Jóhann Karl.
Megin hann hvíla í friði.
Ágústína Jónsdóttir.
Norðfjörður
Síðustu golfmót sumarsins
Sigurður Bjarnason lyfsali tekur við firmaverðlaunum úr hendi
Pórs Haukssonar.
Þá er vetur genginn í garð og golf-
menn hafa lagt kylfurnar á hilluna
og tekið til við aðrar íþróttir í tóm-
stundunum.
Síðustu mót sumarsins hjá Golf-
klúbbi Norðfjarðar voru Frammót-
ið, (kennt við Kaupfélagið Fram)
og „Firmakeppnin“, en 23 fyrirtæki
styrktu Golfklúbbinn í ár.
Úrslit í Frammótinu, þar sem
keppt var bæði með og án forgjafar,
urðu þau, að sömu keppendur voru
í öllum verðlaunasætum með og án
forgjafar, bæði í flokki fullorðinna
og unglinga.
I flokki fullorðinna voru ieiknar
36 holur, en í unglingaflokki 18
holur.
Úrslit urðu sem hér segir:
Jón Grétar Guðgeirsson, 162
högg, Ragnar Sverrisson 172 Eirík-
ur Þór Magnússon 190. í flokki
unglinga Steingrímur Fannar
Stefánsson með 91 högg og Stefán
Karl Guðjónsson með 127 högg.
Eins og áður segir styrktu Golf-
klúbb Norðfjarðar að þessu sinni 23
fyrirtæki. Sigurvegari í þessari
keppni fyrirtækja bæjarins urðu
þau, að Apotekið sigraði og var
leikmaður Þór Hauksson og var
skor hans með forgjöf 57 högg, en
firmakeppni í golfi er alltaf með
forgjafarsniði. Annað í röðinni var
Tryggingamiðstöðin, leikmaður
Ragnar Sverrisson með 58 högg og
jöfn í 3. - 4. sæti urðu Shellskálinn
og Netagerðin, leikmenn Víðir Ár-
sælsson og Stefán Þorleifsson með 63
högg. Þau önnur fyrirtæki sem tóku
þátt í þessari keppni voru: Bæjar-
sjóður, Endurhæfingarstöð FSN,
Flugleiðir, Hafnarsjóður, Kaupfé-
lagið Fram, Landsbankinn, Lífeyris-
sjóður Austurlands, Matvörubúðin,
Melabúðin, Nesprent, Rafalda, Raf-
tækjaverslun Sveins Ó Elíasson,
SÚN, SVN útgerð og frystihús,
Sparisjóður Norðfjarðar, Verkalýðs-
félag Norðfirðinga, Vikublaðið
Austurland og Þvottahús FSN.
Þessum fyrirtækjum er hér með
þakkaður mikilvægur stuðningur
við klúbbinn, en þessum fjármun-
um er varið til þeirra endurbóta og
uppbyggingar sem fyrirhugaðar eru
og þegar er byrjað á, samkvæmt
skipulagi gerðu af Hannesi Þor-
steinssyni golfvallahönnuði. Nú
hefur verið gerður langtíma leigu-
samningur við landeigendur, en það
er forsenda þess að hægt sé að gera
varanlegar framkvæmdir á vellin-
um. Nú þurfa Norðfirðingar að
leggjast á eitt við að gera þetta að
góðu og fallegu íþróttamannvirki.
í sumar hefur fjölgað verulega í
klúbbnum og hafa golfiðkendur
aldrei verið jafn margir hér og nú í
sumar. Meðal golfiðkenda hafa ver-
ið nokkrar konur og tóku þær m. a.
þátt í firmakeppninni, en allt til
þessa hafa þær verið sjaldséðar á
golfvellinum hér.
Það er von mín að ennþá fleiri
átti sig á að golfíþróttin er fyrir alla,
aldna sem unga og gangi til liðs við
GolfklúbbNorðfjarðar.
Stefán Þorleifsson
Ljósmyndari: Eyj. Jónsson, Ljósmyndari: Eyj. Jónsson,
Seyðisfirði. Seyðisfirði.
Allar upplýsingar má senda til Guðmundar Sveinssonar, Urð-
arteigi 10,740 Neskaupstað eða hringja í síma 71584 eða 71515
Skjala- og myndasaín Norðfjaröar:
: ;y:I . _ MAÐURINN?
Atvinna
Póstur og sími Neskaupstað óskar að ráða
bréfbera í hálft starf frá 1. nóvember nk.
Upplýsingar gefur stöðvarstjóri S 71101
Póstur og sími
Neskaupstað
HEILSUFOTIN FRA FINULL
FÁST í SÚN
Heilsufötin eru framleidd úr 100% angóru. Þau
hafa reynst sérstaklega vel til að lina þrautir af
völdum gitar- og vöðvabólgu. Einnig sem nærföt
fyrir útivistarfólk og alla sem vinna í kulda.
Aukið vellíðan ykkar með heilsufötunum frá
FÍNULL
VERSLUN WÍM
HAFNARBRAUT 6 - NESKAUPSTAÐ ® 7 11 33
Hjartansþakkir viljum við senda öllum þeim
sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð viðfráfall
og útför sonar okkar og bróður
Jóhanns Karls Birgissonar
Birgir Sigurjónsson Sigrún Jóhannsdóttir
og börn