Austurland - 26.10.1989, Page 9
FIMMTUDAGUR, 26. OKTÓBER 1989.
9
Minning
Guðjón Marteinsson
yfirverkstjóri og fyrrverandi skipstjóri frá Neskaupstað
F. 21, 8.1922 - d. 12.10.1989
Laugardaginn 21. október,
var Guðjón Marteinsson jarð-
sunginn frá Norðfjarðarkirkju.
Guðjón Marteinsson var fæddur
á Sjónarhóli í Neskaupstað 21.
ágúst 1922. Hann var sonur
hjónanna Maríu Steindórsdótt-
ur er var fædd Austfirðingur en
átti ættir að rekja til Árnessýslu
og Marteins Magnússonar út-
vegsbónda sem einnig fæddist á
Austfjörðum en var ættaður úr
V-Skaftafellssýslu. Þau hjónin
eignuðust 13 börn alls, tvær dæt-
ur dóu ungar en 11 börn þeirra
komust til fullorðinsára. Sonur
þeirra Stefán Skaftfell lést um
þrítugt og lét þá eftir sig eigin-
konu og dóttur.
Af þeim systkinum sem kom-
ust til efri ára er Guðjón sá fyrsti
sem fellur í valinn af þessum
stóra systkinahópi. Alla tíð hef-
ur verið mjög kært með þeim
systkinum og ekki síst sterk
bræðrabönd. Ármann Bjarna-
son, nú búsettur í Vestmanna-
eyjum, kom á heimili þeirra
Marteins og Maríu, sem barn að
aldri og móðurlaus og eignaðist
hann þar gott heimili og góðan
systkinahóp. Sérstaklega voru
sterk tengsl á milli bræðranna
Magnúsar og Guðjóns. Æsku-
minningar þeirra og systranna
eru þeim sem nú eftir lifa dýr-
mætur fjársjóður.
Guðjón ólst upp í föðurhús-
um á Sjónarhóli allt fram til full-
orðinsára. Hann stundaði sjó-
mennsku frá 14 ára aldri og
hafði þá þegar fengist við ýmis-
konar ígripavinnu sem drengur,
þá tilbúnin til að leggja sitt af
mörkum fyrir heimili sitt og
samfélag. Um 16 ára aldur hóf
hann störf á togaranum Brimi,
var það sjálfsagt allmikið lagt á
ungan mann en hann stóðst þá
raun með sóma.
Þegar hann var 22 ára að aldri
lagði hann leið sína til Reykja-
víkur til að nema við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík.
Lauk hann þaðan hinu meira
fiskimannaprófi árið 1946 eftir
2 ára skólavist.
Hugur hans hafði þó ætíð
stefnt að því að verða íþrótta-
kennari, því íþróttir áttu hug
hans allan þar til yfir lauk. En
sjómennskan og þar með barátt-
an fyrir þjóðfélagið var sú íþrótt
sem hann taldi sína köllun og
sem hann vildi takast á við.
Um þessar mundir hafði hann
kynnst konuefni sínu, Guðrúnu
Sigríði Guðmundsdóttur, Þor-
grímssonar frá Brimnesi í Fá-
skrúðsfirði og konu hans Sól-
veigar Eiríksdóttur. Þau Guð-
rún og Guðjón fluttu svo austur
til Neskaupstaðar sama ár og
hófu að byggja sér hús í landi
Sjónarhóls eða að Hlíðargötu
18. Hefur þar verið heimili
þeirra síðan.
Samvistir þeirra hjóna hafa
verið byggðar á gagnkvæmu
trausti og virðingu, ásamt mik-
illi hlýju og samheldni í einu og
öllu. Þau skiptust oft á skoðun-
um um hin ýmsu og ólíku mál-
efni. Var stundum meiningar-
munur á milli þeirra en þau
fylgdust ætíð að og því varð
þessi gagnkvæma samstaða og
virðing þeim báðum til heilla,
hvar sem þau bar að garði.
Minningin um hið sérstæða
samspil þeirra hjóna, verður
dætrum, tengdasonunum og
barnabörnum, afar minnisstætt
vegarnesti um ókomin ár og
fordæmi um fyrirmyndarhjóna-
band.
Fyrstu ár þeirra í Neskaup-
stað voru þeim gleðistundir og
sífelld hvatning til góðra verka
og jákvæðra hugsana. Afkom-
endur þeirra eru: Gígja Sólveig,
gift Harald S. Holsvik, börn
þeirra eru Guðjón Dagbjörn og
Guðrún Dagmar, heimili þeirra
er í Mosfellsbæ. Guðný Stein-
unn, gift Jóni Má Jónssyni, þau
eiga tvíburadætur Guðrúnu Sig-
ríði og Sigurlaugu Maríu og eru
búsett í Garðabæ. María, gift
Karli Jóhanni Birgissyni, þau
eiga þrjú börn, Guðrúnu Júlíu,
Guðríði Elísu og Guðjón Birgi
og eru búsett í Neskaupstað.
Fjórða barn þeirra hjóna var
drengur, skírður Guðmundur
en hann misstu þau sem korna-
barn 1955. Yngst er Hólmfríður
Guðlaug, hennar maður er Jón
Ásgeir Tryggvason, þau eiga
eina dóttur Guðrúnu Stellu og
eru búsett í Reykjavík.
Guðjón sótti sjóinn af mikl-
um dugnaði næstu árin eftir
námið. Hann var m. a. á Valþóri
og síðar á Goðanesi sem háseti,
stýrimaður og seinna sem skip-
stjóri. Oft var hart sótt og í þá
daga, ekki hugsað um það hvort
sjómenn gætu haldið jólin
heima. En veturinn 1955 var
hann 1. stýrimaður og lenti þá
í miklu sjóslysi er togarinn Egill
Rauði fórst undir Grænuhlíð í
slæmu janúarveðri. Þótti Guð-
jón sýna þar afburða harðfylgi,
karlmennsku, trú og þrek. Með
skipinu fórust 5 menn og er erf-
itt að setja sig í spor þeirra sjó-
manna sem sjá á eftir félögum
sínum í hvífyssandi helgreipar
öldurótsins og finna vanmátt
sinn til bjargar. En sjálfsagt
marka slík áföll mennina sem í
þeim lenda á mismunandi vegu.
Eftir slysið var Guðjón á ýmsum
smærri bátum til ársins 1958.
Um þessi tímamót má segja
að nokkur þáttaskil hafi orðið á
lífsferli Guðjóns Marteinsson-
ar. Hann réð sig til vinnu við þá
nýstofnað fyrirtæki, Síldar-
vinnsluna í Neskaupstað, er var
hlutafélag sem hann og flestir
bæjarbúar bundu miklar vonir
við. Var hér um að ræða al-
menningshlutafélag er stofnað
var til á félagslegum grunni en
með aðild bæjarfélagsins sem
grundvöll.
Fáum mun hafa verið betur
ljós þörfin fyrir sterkt og öflugt
fyrirtæki með eignaraðild
bæjarfélagsins en Guðjóni.
Um fyrirtækið myndaðist
mjög góð samstaða og samhug-
ur, var það hverjum manni í
bænum sérstakt kappsmál að
framgangur þess yrði sem
mestur, enda var fyrst og fremst
um að ræða heill og atvinnu-
möguleika flestra bæjarbúa.
Þessi uppbygging var Guðjóni
mjög hugstæð. Hann byrjaði
störf sín sem verkstjóri við upp-
byggingu Síldarbræðslunnar og
hélt því starfi fram til 1968, en
um það leyti hófst hann handa
við að setja á stofn Saltfiskverk-
un SVN. Hann starfaði þar sem
yfirverkstjóri og átti jafnframt
sæti í stjórn Síldarvinnslunnar
til æviloka.
Hann hafði drukkið í sig með
móðurmjólkinni sterka tilfinn-
ingu fyrir samfélagslegu réttlæti
og nauðsyn þess að hlúa að hverj-
um og einum með því að tryggja
honum atvinnu og möguleika til
viðkomandi lífsafkomu.
Þeir sem urðu svo heppnir að
kynnast Guðjóni, minnast hans
án efa sem mikils baráttu- og
drengskaparmanns. Hann var
ungu fólki til fyrirmyndar og af
honum gat það lært hvernig
undirstaða okkar þjóðfélags var
uppbyggð. Margir sem á sínum
unglings- og námsárum leituðu
eftir vinnu hjá Guðjóni, virtu
hann sem mikilhæfan stjórn-
anda á sínum vinnustað og báru
til hans mikið traust. Guðjón
hafði einnig gaman af að fá ungl-
ingana úr grunnskólanum til
starfskynningar og lýsa fyrir
þeim hinum ýmsu þáttum í salt-
fiskvinnslunni. Hann lagði einn-
ig sitt af mörkum til að viðhalda
námi fyrir ung og uppvaxandi
stýrimannsefni á staðnum. Var
hann alloft beðinn um að vera
prófdómari þegar námskeið
voru haldin. Hann var einnig oft
tilkallaður sem meðdómari í
sjóréttarmálum.
Guðjón var af flestum virtur
og vinsæll yfirmaður, kröfu-
harður um gott vinnuframlag,
vandvirkni og samviskusemi en
um leið trúr fulltrúi verka-
mannsins og stóð við hlið hans
þegar leysa þurfti úr hinum
ýmsu málefnum, hvort sem um
var að ræða kjaramál eða önnur
atriði um aðbúnað á vinnustað.
Jafnframt þessu leitaðist hann
stöðugt við að finna leiðir til
betri vinnubragða og til að
skapa betri nýtingu á hráefni og
að fá sem mest verðmæti úr
framleiðslunni til hagsbóta fyrir
verkafólk og fyrirtækið. Hann
starfaði í sérstakri hagræðingar-
nefnd innan Sölusamtaka fisk-
framleiðenda, SÍF, og lagði sig
fram í hvívetna til að fylgjast
með öllum nýjungum.
Guðjóni fannst það ætíð
mikilvægt að finna öllum störf
þar sem gáfur og verkþekking
hvers og eins nýttist til fulls, því
með því var hann viss um að
fólki liði best og að fyrirtækið
hefði sem mesta hagsæld af
vinnu þess. Honum fannst
brauðstritið hvorki vandamál né
erfiði, heldur lífið sjálft. Hon-
um var það jafnmikil ánægja að
ganga til vinnu sinnar og taka
til hendinni þar, eins og að
bregða á leik með flugustöng-
ina. En Guðjón hafði gaman af
lax- og silungsveiði. Hann var
einn af stofnendum veiðifélags-
ins Vopna og undi sér vel í þeim
félagsskap.
Guðjón hafði einnig gaman af
að spila billjard og eru þær
stundir mér ógleymanlegar sl.
sumar er við stunduðum þessa
iðju sem um unglingspilta væri
að ræða.
íþróttir hverskonar og Þrótt-
ur í Neskaupstað, voru Guðjóni
mikið hugðarefni. Mátti hann af
engum íþróttafréttum missa.
Hann var óþreytandi og ötull
stuðningsmaður Þróttar og vildi
veg þess og virðing sem mesta.
Þróttur heiðraði hann sérstak-
lega í tilefni nýliðinna tímamóta
hjá félaginu.
Guðjón var mikilvirkur fé-
lagsmálamaður, hann var félagi
í sísíalistaflokki Neskaupstaðar
en síðar í Alþýðubandalaginu.
Hann var einn af stofnendum
Verkstjórafélags Austurlands
og gegndi formennsku í stjórn
þess til æviloka. Félagið var
Guðjóni mikils virði enda gat
hann oft á þeim vettvangi hjálp-
að þeim sem minna máttu sín.
f störfum sínum sem formaður
Verkstjórafélagins átti hann
sinn þátt í að byggja upp þrjú
sumarhús í Breiðdal sem verið
hafa vinsæll sumardvalarstaður
félagsmanna. Áþessumstaðátti
fjölskylda hans oft yndislegar
gleði- og samverustundir.
Sjómannadagurinn í Nes-
kaupstað var Guðjóni mikil há-
tíðarstund. Hann tók mjög virk-
an þátt í öllum undirbúningi
þessa dags á hverju ári enda í
Sjómannadagsráði og vildi að
öll viðhöfn yrði sem best. Hann
stýrði oft kappróðrabátum og
hafði unun af. Var til þess tekið
af aðkomusjómönnum hve há-
tíðahöldin voru oft skemmtileg
og um leið einlæg í Neskaup-
stað. En þar hafa menn haft fyr-
ir sið að þakka Guði gjafir sínar
úr djúpi hafsins og veita syrgj-
endum og þeim sem um sárt eiga
að binda hluttekningu og virð-
ingu. Komu menn víða að til að
vera hjá fjölskyldum sínum oft
í allt að þrjá daga sem hátíða-
höld hafa stundum staðið. Fjöl-
skylda Guðjóns hafði einnig að
markmiði ef þess var kostur að
koma saman þessa daga. Ég veit
að ég mæli hér fyrir munn okkar
allra tengdasona hans að vand-
fundinn hefði verið betri félagi
og skilningsríkari tengdafaðir.
Erum við allir Guði þakklátir
fyrir allar ógleymanlegu sam-
verustundirnar sem við höfum
átt með honum.
Allur leikur var Guðjóni
skemmtan og ekki síst þegar
börn eða barnabörn voru með
honum. Hann var hvetjandi,
æðrulaus og allir erfiðleikar
voru til að sigrast á en ekki til
vorkunnar.
Guðjón gekk ekki heill til
skógar hin síðari ár. Hans mikli
styrkur í þeirri baráttu var
Guðrún sem gætti velferðar
hans eins og hún frekast gat og
gleymdi þá gjarnan sínum eigin
vandamálum. Guðjón Mar-
teinsson lést eftir skurðaðgerð í
sjúkrahúsi í London hinn 12.
október sl. Hafði hann þá barist
undrunarverðri baráttu við erfið
skilyrði í 4 vikur.
Hann gekk til örlaga sinna
eins og hinn sanni sjómaður sem
veit vart hvað býr að baki næstu
öldu sem skipið hans klýfur.
Hann vissi það eitt að hvert svo
sem stefnan kynni að verða
tekin, myndi hann fylgja ráðum
Guðs og stýra skipi sínu þá
stefnu sem hann einn hafði lagt
fyrir. Harald Holsvik
Flócimcirkciður
Óska eftir að kaupa notaðan afruglara.
Upplýsingar í síma 71836.
3Í>
OKTÓBER
usr"'”' /
' < c3>'~