Austurland - 26.10.1989, Side 10
Pioneer hljómtæki "
Samsung örbylgjuofnar
Salora sjónvörp
Pictionary teiknispilið
Tónspil
Hafnarbraut 2a Neskaupstað ® 71580
Ný skósending
í hverri viku
Skóverslunin
Egilsbraut 21 Neskaupstað S 71288
Egilsstaðir
Bæjarstjórn mótmælir
skerðingu á löggæslu
Á fundi sínum 17. október sl.
samþykkti bæjarstjórn Egils-
staða ályktun þar sem harðlega
er mótmælt þeirri skerðingu á
þjónustu sem íbúar Egilsstaða
verða fyrir vegna gildandi tak-
mörkunar á yfirvinnu hjá lög-
reglunni í umdæminu.
í samþykktinni bendir bæjar-
stjórnin á þá staðreynd að eftir-
litssvæði lögreolnnnar úti um
Það virðist œtla að verða bið á
að loðnu verði landað á Aust-
fjörðum. Mynd hb
Engin
loðna
Þrír austfirskir loðnubátar
hafa verið við loðnuleit þcssa
vikuna en án árangurs. Þetta eru
Börkur frá Neskaupstað og
Eskifjarðarbátarnir Jón Kjart-
ansson og Harpa. hb
land sé jafnan víðáttumikið og
erfitt yfirferðar, vegna snjóa og
slæmra vega og því sé algjörlega
óraunhæft að beina sömu að-
haldsaðgerðum að öllum lög-
gæsluumdæmum landsins án til-
lits til aðstæðna á hverjum stað.
Þá er nefnt sem dæmi að tím-
ar sem greiddir séu af þriðja að-
ila, t. d. vegna gæslu við dans-
leiki, séu jafnframt dregnir af
þeim kvóta sem lögreglan hafi
til yfirvinnu. Bæjarstjórnin var-
ar við þeirri hættu sem getur
stafað af því að auglýst er van-
mætti lögreglu til þess að halda
uppi eðlilegu eftirliti og krefst
þess að ráðuneytið beiti sér nú
þegar fyrir því að úr verði bætt
áður en í algert óefni verður
komið með vaxandi skammdegi
ogversnandiveðriogfærð. hb
Eitt
og annað
Ríflega 20 í einu
Félagi Ólafur Ragnar gerir þaö
ekki endasleppt og virðist ætla aö
hafa betur í samkeppni viö samráð-
herra sinn, Jón Baldvin Hannibals-
son á mörgum sviðum.
Allir muna eftir áfengiskaupum
Jóns Baldvins á kostnaðarverði í af-
mælið hans Ingólfs Margeirssonar
ritstjóra Alþýðublaðsins. Ólafur
Ragnar var hins vegar ekki með
neina smámunasemi á laugardag-
inn því hann bauð ekki einum rit-
stjóra heldur tuttugu og tveimur í
ráðherrabrennivín í Rúgbrauðs-
gerðinni. Tilefnið var stofnun sam-
taka bæjar- og héraðsfréttablaða en
að stofnfundinum loknum bauð
Ólafur í klukkutíma kokteil.
Þessa friðsœlu mynd tók Pétur Eiðsson á Borgarfirði ekki alls fyrir löngu. Einn af mörgum báturn
Borgftrðinga heldur á miðin í morgunkyrrðinni.
Hjúkrunarfræðingar á Austurlandi
Mótmæla nýjum hugmyndum
um heilsuliða
Aðalfundur Austurlands-
deildar Hjúkrunarfélags íslands
haldin í Valaskjálf 7. október
1989 mótmælir framkomnum
hugmyndum um tilkomu nýrrar
starfsstéttar, svokölluðum
heilsuliðum.
Aðalfundurinn telur slíkar
hugmyndir tilkomnar vegna
skorts á mannafla á heilsugæslu-
stöðvum í samræmi við breytt
og aukið starfssvið stöðvanna.
Telur fundurinn að allar
breytingar á mönnun heilsu-
gæslustöðva þurfi góðan undir-
búning, þar sem núverandi heil-
brigðisstefna krefjist aukinnar
þekkingar og samvinnu milli
starfshópa.
Telur fundurinn að nær væri
að fjölga stöðuheimildum
hjúkrunarfræðinga á heilsu-
gæslustöðvum, bæta kjör þeirra
og viðurkenna mikilvægi vel
skipulagðs forvarnarstarfs.
Auk þess telur fundurinn
tímabært að fá inn stöðu-
heimildir fyrir sjúkraliða á
heilsugæslustöðvar, sem nýtast
munu vel við heimahlynningu
og til aðstoðar á stöðvunum.
Þar gengur fundurinn út frá
þeirri von að starfssvið sjúkra-
liða á heilsugæslustöð verði
skýrt og allar fagstéttir verði
meðvitaðar um starfssvið
þeirra.
Þá bendir fundurinn á að öll
togstreita milli heilbrigðisstétta
er af hinu illa, þar sem slíkt bitn-
ar á þeirri þjónustu sem veitt er
og starfsánægju heilbrigðis-
starfsmanna.
Ljósastilling
Verðum með ljósastillingu eftirtalda daga:
Fimmtudag og föstudag kl. 17 — 19
Lokaskoðun 28. október kl. 13-17
Munið að 1. nóvember þurfa öll
ökutæki að vera ljósastillt
Bílaverkstæði SVN
Neskaupstað © 7 16 02
Væntanlegir
húsbyggjendur
Nú er hver síðastur að huga að gerð
undirstöðu ef gera skal fokhelt fyrir vorið
Framleiðum timbureiningahús á ýmsum
byggingastigum á hvaða árstíma sem er
Leitið upplýsinga og tilboða
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs
Fellabæ S 11450