Austurland - 20.12.1989, Síða 9
JÓLIN 1989.
9
Óskar Jónsson
Tildrög að stofnun Lúðrasveitar Neskaupstaðar
og tónlistarskóla í Neskaupstað
Árið 1953 réðist Höskuldur
Stefánsson skrifstofunraður til
Dráttarbrautarinnar hf. í Nes-
kaupstað. Höskuldur var þá út-
skrifaður frá Samvinnuskólan-
um og hafði auk þess lært á
hljóðfæri syðra. Skrifstofumað-
urinn ungi lék á píanó, harmón-
ikku og básúnu og hafði nokkra
reynslu af að leika með dans-
hljómsveitum. Á meðal þeirra
manna sem Höskuldur hafði
spilað með í hljómsveitum var
Haraldur Guðmundsson, en
Haraldur var þá vel þekktur
tónlistarmaður og hafði m. a.
stjórnað Mandólínhljómsveit
Reykjavíkur og Lúðrasveit
verkalýðsins.
Norðfirðingar voru að vonum
ánægðir með að fá jafn hæfan
tónlistarmann og Höskuld til
bæjarins, en reyndar er Hösk-
uldur borinn og barnfæddur
Norðfirðingur. Sem dæmi um
hve Höskuldur var í miklum
metum á meðal tónlistarmanna
syðra má nefna að skömmu eftir
að hann hóf störf hjá Dráttar-
brautinni hringdi Svavar Gests
í hann og bauð honum að taka
sæti í hljómsveit sinni sem þá
var í burðarliðnum. Höskuldur
tjáði Svavari að hann væri ný-
búinn að ráða sig í fast starf á
heimaslóðum og gæti ekki
þekkst boðið.
Á þessum tíma var Ingvar
Bjarnason prentari hjá Nes-
prenti. Hann átti trompet og var
hinn þokkalegasti blásari enda
hafði hann leikið í lúðrasveit-
inni Svaninum í Reykjavík. Hjá
Ingvari vaknaði áhugi fyrir því
að koma á fót lúðrasveit í bæn-
um og fékk hann menn til liðs
við sig til að vinna að framgangi
málsins. Þegar var hafist handa
við að safna saman gömlum
hljóðfærum sem til voru á Aust-
urlandi og eins voru tvær úr sér
gengnar túbur keyptar í Þýska-
landi og fluttar til Neskaupstað-
ar með togara. Öll þessi hljóð-
færi voru í mjög slæmu ástandi
og víða á þeim rifur og göt. Sig-
urður Jensson bakarameistari
og mikill áhugamaður um tón-
list sat marga daga með lóðbolta
og lagfærði hljóðfærasafnið
þannig að flestir lúðrarnir voru
sæmilega vindheldir að viðgerð
lokinni. Sigurður varð síðar
heiðursfélagi Lúðrasveitar
Neskaupstaðar og þegar hann
var jarðsunginn frá Norðfjarð-
arkirkju lék sveitin við athöfn-
ina, en það var í eina skiptið
sem sveitin öll lék við slíka
athöfn.
Þegar hljóðfærin voru komin
í notkunarhæft ástand hóf
Ingvar Bjarnason að kenna á
þau. Jafnframt unnu hann og
Jón Lundberg að formlegri
stofnun félagsskapar um lúðra-
sveit. Stofnfundur Lúðrasveitar
Neskaupstaðar var síðan hald-
inn í Gúttó sunnudaginn 7.
febrúar 1954. Eftirtaldir munu
hafa komið til fundarins: Ingvar
Bjarnason, Jón Lundberg,
Höskuldur Stefánsson, Birgir
D. Sveinsson, Baldvin Þor-
steinsson, Karl Pálsson, Gísli S.
Gíslason og Jón Sigurðsson. í
fyrstu stjórn sveitarinnar voru
eftirtaldir kjörnir: Ingvar
Bjarnason formaður, Höskuld-
ur Stefánsson gjaldkeri og
Baldvin Þorsteinsson ritari.
Þegar var hafist handa við
æfingar af miklum krafti og var
Höskuldur Stefánsson fyrsti
stjórnandi. I upphafi var æft í
hinni svokölluðu rauðu stofu í
Gúttó.
Fljótlega bættist í hópinn og
þegar sveitin kom fyrst fram op-
inberlega var hún skipuð 11
mönnum. Það voru einungis
þrír mánuðir liðnir frá stofnun
sveitarinnar þegar bæjarbúar
fengu fyrst að hlýða á leik
hennar, en það var 15. maí 1954
þegar haldið var upp á 25 ára
kaupstaðarafmæli bæjarins.
Nú þegar lúðrasveitin var
komin nokkuð á legg vaknaði
mikill áhugi fyrir að fá Harald
Guðmundsson austur til að
segja mönnum til við blásturinn.
Þetta tókst fyrst og fremst fyrir
tilstilli Höskuldar, en eins og
fyrr segir voru þeir kunningjar
frá fyrri tíð. Haraldur dvaldi í
nokkra daga í Neskaupstað og
kenndi hann hverjum og einum
í sveitinni auk þess að stjórna
æfingum. Þegar Haraldur var
farinn kviknaði sú hugmynd að
vert væri að reyna að fá hann til
að flytja til bæjarins. Hélt Óskar
Jónsson á fund Bjarna Þórðar-
sonar bæjarstjóra og greindi
honum frá þessarri hugmynd
lúðrasveitarfélaga. Bjarni tók
Óskari vel og sagði honum að
nú vantaði prentara í Nesprent
og tilvalið væri að bjóða Haraldi
prentsmiöjuna, en Haraldur var
einmitt lærður setjari. Fljótlega
hélt Óskar suður til Reykjavík-
ur og heimsótti þá Harald sem
bjó í Nökkvavogi 15. Eftir
nokkrar umræður tók Haraldur
Lúðrasveit Neskaupstaðar í fyrsta sinn sem hún kom opinberlega
frarn á bœjarafmœlinu 1954. Taliðfrá vinstri: Höskuldur Stefánsson
Ingvar Bjarnason prentari, fyrsti stjórnandi, Jón Lundberg, Jón Karlsson, Lárus Sveinsson, Geir
formaður Lúðrasveitar Nes- B.Jónsson, Karl Pálsson, Jón Sigurðsson, Gísli S. Gíslason, Frið-
kaupstaðar. rik Sigurðsson, Ottó Sigurðsson og Kristján Lundberg.
þá ákvörðun að flytjast búferl-
um austur með fjölskyldu sína,
en Óskar sá um að útvega Har-
aldi íbúð í Neskaupstað og var
hún að Þiljuvöllum 29.
Þann 3. mars árið 1955 kom
Haraldur og fjölskylda hans til
Neskaupstaðar. Tók hann þá
þegar við stjórn lúðrasveitarinn-
ar og rekstri prentsmiðjunnar.
Haraldur stjórnaði sveitinni æ
síðan og má segja að hún hafi
starfað með miklum blóma allt
til ársins 1969. Ferðaðist £> Lúðrablástur á 25 ára afmœli Neskaupstaðar 1954.
Tónleikaskrá frá árinu 1955.