Austurland - 20.12.1989, Page 11
JÓLIN 1989.
11
lúðrasveitin um með tónleika
nánast á hverju ári og spilaði
auk þess víða við ýmis tækifæri.
Nokkur greiðsla fékkst venju-
lega fyrir hverja spilamennsku
og hafði sveitin því þokkaleg
fjárráð. Eftir 1969 dró umtals-
vert úr starfsemi lúðrasveitar-
innar þar til henni lauk endan-
lega á árinu 1973.
Út frá lúðrasveitinni hófst öfl-
ugt tónlistarlíf í Neskaupstað og
má m. a. nefna eftirtalda tónlist-
armenn sem stigu sín fyrstu
músíkspor innan hennar: Lárus
Sveinsson, Birgir D. Sveinsson,
Guðmundur Haraldsson,
Hlöðver Smári Haraldsson,
Lúðrasveit Neskaupstaðar 1956.
Fremri röð frá vinstri: Olafur H.
Jónsson, Kristþór B. Helgason,
Birgir D. Sveinsson, Jón
Lundberg, Haraldur Guð-
mundsson stjórnandi, Pálmar
Magnússon, Óskar Óskarsson,
Jón Karlsson.
Aftari röð frá vinstri: Geir B.
Jónsson, Ottó Sigurðsson, Lár-
us Sveinsson, Óskar Jónsson,
Höskuldur Stefánsson, Guð-
mundur Haraldsson, Friðrik'
Sigurðsson og Kristján
Lundberg.
Lúðrasveit Neskaupstaðar 1957. Myndin er tekin við vígslu sjúkra-
hússins í Neskaupstað. Lengst til vinstri stendur Haraldur Guð-
mundsson stjórnandi. Aftasta röð frá vinstri: Höskuldur Stefáns-
son, Geir B. Jónsson, Kristján Lundberg. Nœstaftasta röð: Kristþór
B. Helgason, Jón Karlsson og Guðmundur Haraldsson. Nœst-
fremsta röð: Lárus Sveinsson, Óskar Jónsson og Friðrik Sigurðs-
son. Fremsta röð: Gísli S. Gíslason, Óskar Óskarsson og Jón
Lundberg. Ljósm. Sigurður Guðmundsson
Smári Geirsson, Þórður Ó. um sem eitthvað gátu spilað á
Guðmundsson, Jón Lundberg blásturshljóðfæri til bæjarins.
og Örn Óskarsson. Og vissulega Því var það árið 1956 þegar
mætti telja fleiri. fréttist að Jón Ásgeirsson, sem
Félagar í lúðrasveitinni höfðu þá var útskrifaður úr tónlistar-
mikinn áhuga á að ná sem flest- skóla í Reykjavík og lék m. a.
r
Oskum
viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
Vélar hf.
Vatnagörðum 16
Reykjavík
Lúðrasveit Neskaupstaðar að leika á útisamkomu í Atlavík. Stjórnandi er Haraldur Guðmundsson
Myndin er tekin á árunum 1956 - 1957.
Lárus Sveinsson trompetleikari. A fyrsta eða öðru starfsári Lúðr-
asveitar Neskaupstaðar vantaði tilfinnanlega althornleikara í sveit-
ina. Jón Lundberg hafði um tíma aðstoðað Birgi D. Sveinsson,
bróður Lárusar, að innrétta sér kjallaraherbergi og á meðan þeir
unnu við innréttingarnar hlustuðu þeir á Llarus spila á munnhörpu
á efri hœðinni. Lárus stillti útvarpið hátt á Radio Luxemburg og
lék með útvarpinu ásamt því að stappa taktinn kröftuglega. Jóni
datt í hug að reyna Lalla litla á althornið og sýndi hann snemma
óvenju mikla tónlistarhœfileika. Fljótlega hóf Lárus síðan básúnu-
leik í sveitinni og að lokum tók hann að blása í trompet. Lárus
hefur verið 1. trompetleikari Sinfóníuhljómsveitar íslands um
margra ára skeið. Ljósm. Vilberg Guðnason
Jón Ásgeirsson tónskáld. Jón
var fyrsti skólastjóri tónlistar-
skóla í Neskaupstað.
á valthorn, væri að vinna við
smíðar í Grímsárvirkjun, að
mönnum datt i hug að fá hann
til að setjast að í Neskaupstað.
Tvær ástæður voru fyrir áhuga
lúðrasveitarfélaga á að fá Jón til
bæjarins, sú fyrri að hann myndi
verða sveitinni góður liðsstyrk-
ur, en sú síðari að hann yrði
heppilegur skólastjóri tónlistar-
skóla, sem þá var rætt um að
koma á fót. Haraldur hafði sam-
band við Jón og var ákveðið að
halda fund á Reyðarfirði um
málið næsta laugardag.
Áður en til fundarins á Reyð-
arfirði kom gengu Haraldur
Guðmundsson og Óskar Jóns-
son á fund Bjarna bæjarstjóra
til að ræða nánar stofnun tónlist-
arskóla. Bjarni tjáði þeim lúðra-
sveitarfélögum að afstaða
bæjaryfirvalda til skólastofnun-
arinnar væri jákvæð. „Þið skulið
bara sjá um að koma skólanum
á fót“, sagði Bjarni.
Þeir Haraldur og Óskar héldu
til Reyðarfjarðar umræddan
dag og hófu viðræður við Jón.
Fljótlega fóru þeir allir þrír til
Neskaupstaðar og héldu áfram
bollaleggingum heima hjá Ósk-
ari. Um kvöldið var Jóni síðan
skilað aftur til Reyðarfjarðar og
þá var ákveðið að hann £>