Austurland - 20.12.1989, Síða 22
22
JÓLIN 1989.
fluttar á árabátum af Borgar-
firði í ósinn á síðustu árum
aldarinnar? Hér getur orðið fátt
um svör. Um uppboðið á efni
því, sem af gekk við brúarsmíð-
ina, má að sjálfsögðu lesa í Út-
tekta- og uppboðsbók Hlíðar-
hrepps frá þessum árum. (Hér-
aðsskjalasafn, Hlí 4).
Menn reka ugglaust augun í,
að ótrúlega litlu fé er varið til
búarsmíðarinnarsjálfrar. Hvers
vegna? Svar við þeirri spurningu
fæst eftir öðrum leiðurn.
Það datt upp úr mér hér á
dögunum við vin minn úr Jökuls-
árhlíð, að ég væri að glugga í
heimildir frá því um aldamót um
brú á Kaldá. Benti hann mér þá
á prentaða frásögn í bók. sem ég
hafði lesið nýútkomna 1971, en
mörgu gleymt úr, þ. á nt. því, að
Kaldár væri að einhverju í henni
getið. Þetta er bókin Orð skulu
standa eftir Jón Helgason rit-
stjóra, saga hins sérstæða og ein-
staka manns Páls Jónssonar veg-
fræðings. Sumarið 1899 stjórnaði
hann brúarsmíð á Slenju og gerð
vegar frá Egilsstaðahömrum inn
fyrir Úlfsstaði á Völlum, en í
tómstundum sínum, einkum um
helgar, kannaði hann vegarstæði
um Fagradal og samdi kostnaðar-
áætlun. Við skulum grípa niður
í bókina á bls. 88 - 89:
Pegar vetnr lagðist að, hélt Páll
til Seyðisfjarðar. Hafði hann ein-
sett sér að sigla til Noregs og kynn-
ast nýmœlum þeim í vegagerð, er
upp kynnu að hafa komið síðustu
árin. Pessa ferð œtlaði hann þó
ekki að fara í óþökk þess manns,
sem hann hafði þjónað sumar
hvert síðustu árin: Eins og hans
var von og vísa hafði hann fyrir
löngu sóit um fararleyfi hjá lands-
höfðingjanum eins og embœtis-
menn landsins gerðu á þeim
árum, þegar svipað stóð á.
Páll beið skipsferðar alllengi á
Seyðisfirði, og batnaði þá tíð
nokkuð. Pótti Páli illt að sitja auð-
um höndum, og þeim mun verra
sem hann vissi óunnið verk, er
hann bar fyrir brjósti. Svo varmál
með vexti, að brúarstöplar höfðu
verið hlaðnir við Kaldá í Hlíð hjá
Sauðahyl, en brúnrt^ sjálfri ekki
verið komið á. Olli því lasleiki
Eiríks Guðmundssonar á Brú, er
áður hafði unnið hjá Páli og tald-
0 'Ot H’SI
CJ <>Z :vw
VHZ V Cl
O'LZ JZI
v -yz cru
CJ sz tJOI
vrz J '6
a ii V 'K
Cl zz a ‘l
OIZ j >j
íl oz trs
3:61 V V
Ö '81 CI X
VZI 0 1
fi '91 VI
^eieBumjnds
Q|A JOAS
ist einn manna þar efra fœr um
að koma brúnni á ána. Brúarviði
hafði Páll útvegað ári fyrr, og
þótti honum leitt að hugsa tilþess,
að þeir lœgju annan vetur í reiðu-
leysi úti á víðavangi. Hann kom
því að máli við Jóhannes Jóhann-
esson sýslumann og bauðst dl þess
að bregða sér upp í Jökulsárltlíð
og koma brúnni á ána. Sýslumað-
ur sló ekki hendinni á móti því,
og tygjaðist Páll tilferðar. En með
því að fœrð var talin vond með
hesta yfir Fjarðarheiði, afréð
hann að fara gangandi. Verkfœri
nokkur varð hann að hafa með
sér, og ekki þorði hann að treysta
því, að nœgjanlegt vœri af svo
stórum nöglum þar efra. Urðu
það því sex fjórðungar, sem hann
snaraði á bakið. Er skemmst af
því að segja, að Páll lauk brúar-
smíðinni á tíu dögum og kafaði
að því búnu til Seyðisfjarðar í
hinni verstu fœrð. En þegar til
Seyðisfjarðar kom og sýslumaður
hugðist gera upp reikningana,
vildi Páll ekki við öðru taka en
aurum, sem hann hafði greitt í
ferjutoll eða annan fararbeina.
„Ég slökkti engu niður," sagði
hann. Pess vegna barhonum ekki
heldur neitt kaup.
Hitt er svo annað mál, að þessi
brú varð ekki langæ samgöngu-
bót fyrir þá sem leið áttu yfir
Kaldá. Hún sligaðist undan
snjóþyngslum veturinn 1902.
Árið 1913 var svo byggð stein-
steypt brú á sama stað og munu
stöplar gömlu brúarinnar hafa
komið þar að gagni, a. m. k. að
einhverju leyti; en það er önnur
saga. SÓP
Heimildir aðrar en þær sem getið er í Geir Stefánsson á Sledbrjót: Munnleg
texta: frásögn.
Helgi Gíslason: Vegagerð og brúarsmíð Prestþjónustubók Kirkjubœjar 1877 -
í Múlasýslum frá 19. öld til 1984. Múla- 1920.
þing, 15. h. 1987. Alþingismannatal.
Gleðileg jól
FARSÆLT KOMANDI ÁR
Þökkum ánægjuleg viðskipti
, á árinu sem er að líða
fTLa ufskálinn
Nesgötu 3 Neskaupstað 01 71212
*
*
* - jf
***-¥■
Veiðigleði 1989
Veiðigleði norðfirskra sjómanna verður hald.
í Egilsbúð föstudaginn 29. desember
Húsið opnað kl. 1930 með fordrykk
Borðhald hefst kl. 2000
* Matseðill +
Hvítvíns-rjómasúpa
með sjávarsælgæti
★
Lambapiparsteik
með gratineruðu grænmeti
*
t * *
Að loknu borðhaldi hefst
dúndur dansleikur
með Súellen sem
stendur til kl. 0300
Miðar seldir 23. desember
frá kl. 1800 til 2000
Veiðigleðinefnd