Austurland - 20.12.1989, Side 24
24
JÓLIN 1989.
Hátíðarhöldin voru fjölþœtt. - Hér eru þœr Anna Porvarðardóttir,
ína Gísladóttir og Alda Sveinsdóttir að undirhúa sýningu á verkum
Norðfirðingsins Sveins Vilhjálmssonar.
staðurinn á landinu sem fékk
bæjarréttindi. Þann 2. janúar
1929 fóru fram fyrstu bæjar-
stjórnarkosningarnar. Kosnir
voru 8 menn og fékk Alþýðu-
flokkurinn 4, en síðan skipaði
ráðhprra níunda manninn, sem
var bæði bæjarstjóri og bæjar-
fógeti. Var það Alþýðuflokks-
maðurinn Kristinn Ólafsson frá
Vestmannaeyjum. Alþýðu-
flokkurinn hafði allt frá því að
Jónas Guðmundsson kom í bæ-
inn og var kosinn oddviti 1925,
verið lang sterkasta pólitíska
aflið. Má segja að þá hafi ferskir
vindar blásið um þorpiðj bæði í
framkvæmdalegu og menning-
arlegu tilliti. Pá fór hið íhalds-
sama útgerðar- og kaupmanna-
vald sem réði ríkum, fyrst að
finna fyrir andstöðu hjá fólkinu,
sem vann hjá þeim.
Nú er aðeins einn þeirra
manna, sem kosnir voru í fyrstu
bæjarstjórnina á lífi, en það er
Gísli Kristjánsson, sem bjó á
Bjargi. Dvelur hann á Hrafnistu
í Hafnarfirði hálf tíræður að
aldri. Stefán J. Guðmundsson,
byggingarmeistari frá Laufási
var kosinn í fyrstu bæjarstjórn-
ina og síðan aftur 1930 og 1934
fyrir Alþýðuflokkinn. Stefán
lést nýlega, nærri níræður.
Hann flutti ávarp á 50 ára af-
mæli bæjarins 1979. Segir hann
þar m. a.: „Hingað hafði flust
nokkrum árum áður ungur
kennari Jónas Guðmundsson.
Hann var fluggáfaður og ötull
til framgangs að reyna að leysa
ýmis félagsleg vandamál. Hann
hreif okkur með sér félagslega
sinnaða umbótamenn. Okkur
var ljóst, að hér vantaði flest
það, er sveitarstjórnirnar þurftu
að sjá fyrir. Barnaskólinn hafði
aðeins tvær kennslustofur og
unglingaskólinn ekkert eigið
húsnæði. Sjúkrahús með tvær
stofur. Þorpið óskipulega byggt
og engir vegir að húsunum upp
á Melum. Aðeins mjó gata með
sjónum. Vatnslagnir voru úr
mörgum brunnum víðsvegar um
þorpið og ofan við það. Frá-
rennsli var ekkert. Fyrsta verkið
okkar í fyrstu bæjarstjórninni á
verklega sviðinu var að steypa
35 metra langan garð út frá Eyr-
aroddanum. Sama sumar lögð-
um við veg út Ekrubrekkuna að
væntanlegu skólahúsi, er við lét-
um byggja á árunum 1930 og
1931. Barnaskólahúsið byggð-
um við fjórir trésmiðir í félagi
fyrir ákvæðisverð 98 þúsund
krónur fullgert og málað. Ungl-
ingaskólinn fékk inn í gamla
barnaskólahúsinu."
Þetta eru orð eins af frum-
kvöðlunum, sem var mjög fé-
lagslega sinnaður og kraftmikill
maður. Pað vakti athygli sástór-
hugur, sem bæjarstjórnin sýndi
með því að byggja eitt af stærstu
og myndarlegustu barnaskóla-
húsum á landinu. Áður hafði
verið byggð mótorrafstöð, sem
var nærri eingöngu til ljósa.
Mikið framfaraspor steig
hreppsnefndin þegar hún keypti
af Sameinuðu verslununum
bæjarhúsin og bryggjuna, en þá
voru samgöngur eingöngu á sjó
og höfnin lífæð sjávarplássanna.
Norðfjörður var landfræðilega
séð, vel settur hvað sjósókn varð-
aði, vegna þess að stutt var á fiski-
miðin. En einangrun á landi var
mikil þar sem hann var umgirtur
háum fjöllum. Merkur maður
sagði eitt sinn við mig: Ég held að
barátta ykkar Norðfirðinga, sem
bjugguð við vissa einangrun hafi
gert það að verkum, að þið stóðuð
fast saman og voruð harðari við
að fá til ykkar ýmislegt sem þarf
til að byggja upp bæjarfélag, en
aðrir staðir hér fyrir austan, svo
semsjúkrahús,dráttarbrauto. fl.“
Hér hefir á þessum 60 árum
byggst upp samfélag, sem að
vísu er ekki fjölmennt, en hefir
margt af því, sem gerir búsetu
lífvænlega miðað við aðra sam-
bærilega staði á landinu. Kaup-
staðurinn hefir óneitanlega sér-
stöðu þar sem félagshyggja og
vinstri sinnuð sjónarmið eru
höfð að leiðarljósi allt frá upp-
hafi.
Þegar maður hefir sjálfur frá
unga aldri, eða um hálfrar aldar
skeið tekið þátt í félagsmálum,
atvinnumálum og pólitísku lífi
staðarins, gerir maður sér ljóst
að það sem ávannst, nteð ótrú-
legri samstöðu meirihluta
bæjarbúa, var ekki allt fengið
átakalaust. Það voru hugsjóna-
menn sem stofnuðu Kaupfélag-
ið Fram fyrir nærri 80 árum,
menn sem létu eignir sínar að
veði fyrstu árin og gerðu það að
verkum að hér hefir nærri öll
verslun verið í almannaeign
þessi 60 ár.
1932 þegar útgerðarmenn,
félagslega sinnaðir aldamóta-
menn, stofnuðu Samvinnufélag
útgerðarmanna, reyndu kaup-
mennirnir að koma í veg fyrir
að þeir fengju að kaupa salt frá
heildsölum í Reykjavík.
Allir vita hve afgerandi þýð-
ingu þessi félagskapur hefir
haft.
Það var heldur ekki átaka-
laust, þegar Síldavinnslan hf.
var stofnuð 1957 og síldar-
bræðsla byggð. Tókst með harð-
fylgi, að verjast því að það fé-
lagið yrði eign 8 einstaklinga í
stað almennings eins og nú er.
Við vorum svo heppnir Norfirð-
ingar, að á síldarárunum, á
sjötta og sjöunda áratugnum C>
Hluti mannfjöldans við hátíðarhöldin í veðurblíðunni þann 17. júní í sumar. - Jóhannes Stefánsson
fyrir miðri mynd.
VINN'NgW
___ . Wr 25.000,
■— ,, 797 vinn. a Kr'
. 4kr 75.000, 13Ja'
Tkr 250.000, 1-953;r2268.00° 000'
.— _ 324vinn. akr- , qqo vinn. a w-
,B" . „ * kr 2.000.000, ^ Sarntals 135.00V
— „nr, losvinn. aKt- Akr. 50.000-
_ Akr 5 000.000, 034 aukavinn. a w
no^0: 07575vinn.áWM2.0° ,
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS
vænlegast til vinnings