Dægradvöl - 01.06.1950, Page 14
HEILABROT.
/-----------
RÁÐNINGAR
V______
Hver opnaði bréf Ásu?
Elsa frænka er líklegust til þess að hafa opnað
bréf Ásu. Jaðar bréfsins sýnir að það hefur ver-
ið opnað með verkfæri, sem hefur haft bylgjaðar
eggjar. Myndin sýnir greinilega að Nonni er með
skæri, sem hafa beinar eggjar, afi er með venju-
legan dólk, Metta er með kjötsveðju og mamma
er með bréfhníf. Ekkert þessara verkfæra hefði
skilið slík för, eins og bréfið sýnir, eftir sig. En
Elsa frænka er að snyrta á sér neglurnar, og
mamma segir við hana: „Viltu lána mér skærin
þín, þegar þú ert búin? Ég þyrfti sánnarlega að
snyrta neglurnar á méri“ Slík skæri eru með
beygðum eggjum, sem myndu klippa eins og
bréfið hefur verið klipt. Það er því sennilegast
að Elsa frænka hafi hnýst í bréfið til Ásu.
-* -
LEYNILÖGREGLUVERKEFNI.
Morðið við Washington squarc.
Rannsóknir lögreglunnar bentu til þess mögu-
leika að Stevens væri í raun og veru „Dr.
Krauss.“ Svarta skeggið og dökku gleraugun
bentu á dulargerfi. Hasta málróminn var ekki
vandi að temja sér. „Dr. Krauss“ var hávaxinn,
og það var Stevens einnig. Enginn hafði nokkru
sinni séð þá „Dr. Krauss" og Stevens saman.
Vitnisburður ráðskonunnar sannaði ekkert um
það, að Stevens hefði verið heima um það leyti,
sem morðið var framið. Vitnisburður þernunnar
sannaði heldur ekki að ,.Dr. Krauss“, hefði dvalið
í hótelinu á nóttunni, heldur aðeins að hann
hafði viljað láta líta þannig út. Stevens játaði að
frænka sín hefði haft áhuga fyrir að ná sam-
bandi við einmitt slíkan lækni, sem hann sjálf-
ur varð til að benda henni á. Og að lokum: Stev-
ens var einasti ættingi hinnar auðugu ekkju, og
hlaut því strax að verða „grunaður nr. 1,“ því að
fyrsta spurning lögreglunnar er ávallt, þegar
morð hefur verið framið: „Hver hagnast á dauðs-
fallinu?"
John Devery, leynilögregluforingi, handtók því
Stevens út frá þessum forsendujn, og við frekari
yfirheyrzlur játaði Stevens glæpinn, og bar
framburði hans að lokum alveg saman við það,
sem lögreglan þegar hafði fengið grun um, varð-
andi undirbúning hans og framkvæmd.
Stúdentarnir og unnustur þeirra.
Johnson er frá Dartmouth; Barry er frá Yale;
Brewster er frá Harvard; Edwards er frá Colum-
bia; Adams er frá Princeton; Hunter er frá Corn-
ell.
„Barry hefur látið sauma stórt Y á brjóstið á
íþróttaskyrtunni sinni.“ Barry er því vafalaust
frá Yale. „Unnusta Brewsters heitir ungfrú Phil-
ips,“ „Ungfrú Philips þekkir engan Cornell-stúd-
ent.“ Brewster er því ekki frá Cornell. „Ungfrú
West hatar alla Harvard-stúdenta," „Brewster
þekkir ungfrú West, en hún vill ekkert hafa með
hann.“ Brewster er því frá Harvard. „Unnusta
Hunters heitir ungfrú Klag.“ „Ungfrú Klag hef-
ur aldrei kynnzt neinum Columbia-stúdent."
Hunter er því ekki frá Columbia. „Unnusta Ed-
wards heitir ungfrú West,“ „Ungfrú West hatar
alla Harvard-stúdenta." Edwards er því ekki frá
Harvard. Adams, eini stúdentinn, sem ekki er
trúlofaður, er frá Princeton því að ungfrú Kent,
eina stúlkan, sem nefnd er og ekki er trúlofuð,
nemur þar. „Unnusta Johnsons heitir ungfrú
Rice.“ „Ungfrú Rice elskar Dartmouth.“ John-
son er því frá Danrtmounth. Þá eru þar Hunter
og Edwards frá Cornell og Columbia. „Ungfrú
Klag er unnusta Hunters og hefur aldrei kynnzt
neinum Columbia-stúdent; þess vegna er Hunt-
er frá Cornell og Edwards frá Columbia.
Hvað ráðlagði vitringurinn?
Spekingurinn sagði við konungssynina: „Hafið
hestaskipti!“
Allt er hey í harðindum.
Flækingurinn reykti fimm sígarettur og átti
þá einn stubb eftir. Hann þurfti fjóra stubba í
hverja sígarettu. Ur sextán stubbum fékk hann
því fjórar sígarettur. En af hverri sígarettu var
einn stubbur eftir, og þannig gat hann búið sér
þá fimmtu til. Og auðvitað var einn stubbur eft-
ir af henni líka.
- * -
SKÁKÍRAUTIR.
1) Lykill: 1. Bf5-h7. 2) Lykill: 1. Da8-a5. 3)
Lykill: 1 Hc3-a3. 4) 1...Hc3xBf3. 2. Dd6xb6,
(ef 2. g2xHf3, He5-g5 skák og mát í 2. leik) Hf3x
h3. 3. Hvítur gefur. 5) 1. Hdl-d8 skák, Kf8-e7 2.
Be3-g5 skák, f7-f6 3. Bg5xf6 skák, Svartur gefur.
Ef .... g7xBf6. 4. Dg4-g7 skák, Ke7xHd8. 5. Hhl
-dl o. s. frv. 6) 1. e5-e6, He8-g8 (ef Dc8 eða He8
xe6 2. Hf5-f8 skák). 2. Hf5-f7, Hg8-g7. 3. Hdl-fl,
Hg7-Hf7. 4. HflxHf7, Svartur gefur. Ef .... Dc8-
g8. 5. Dh3-c3 skák, Rc6-d4. 6. Bd6-e5 skák o. s,
frav,
14
DÆGRADVÖL