Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 3

Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 3
Húsfreyjxin Reykjavík _ _ 11. árgangur Júlí-sept. LJtgefandi: Kvenfélagasamband fslands 3. töiubiað Sr. Jón Auðuns: KONAN OG HEIMILIÐ Flutt á fundi Prestkvennafélags íslands í júní 1960. FYRIR röskum 25 árum átti ég ánægju- lega dvöl í eina viku á unaðslegum stað við óvenjulegar aðstæður, og aðstæður, sem þið konur fáið aldrei að kynnast. f yndislegum háfjalladal, þar sem Dóná liðast í mjúkum bugðum milli bakkanna, snævi þakin fjöll Alpanna ber við bláan himin og djúpur friður fyllir dalinn, stendur eitt af allra fegurstu klaustrum Þýzkalands. 80 munkar af Benedikts- reglu áttu heima í hinni geysi miklu klausturbyggingu, sem var full af lista- verkum og geymdi auk þess stórkostlegt bókasafn. Um langan aldur höfðu kunnir listamenn verið meðal munkanna þar í Beuron og þar hafa mörg menningar- verðmæti geymzt, meðal annars hinn frægi Ijóðaflokkur, Carmina Buronis, Beuron-ljóðið, sem flutt var á hljómleik- um hér í Reykjavík á liðnum vetri og mikinn fögnuð vakti þeirra, sem heyrðu. En einkum hafa málarar meðal munk- anna í Beuron getið sér mikið orð, og jafnvel myndað sérstakan málaraskóla, sérstaka liststefnu, sem kennd er við Beuron. Meðan ég dvaldist þar í eina viku sem gestur hinna gestrisnu munka, var þar frægastur bræðranna hinn víðkunni mál- aramunkur, Hollendingurinn Verkade, sem þá var orðinn aldurhniginn. Af hon- um hafði ég því miður ekki tal, en sá hann aðeins með sitt bogna bak og sínar silfurhærur í kirkjunni og í matsalnum. Verkade hafði á yngri árum farið víða, leitað og lært, og heimkynni hafði hann fundið á þessum fagra friðarstað, þar sem engar konuhendur búa bræðrunum heim- ili. I klaustrinu var að sjálfsögðu mikið næði til lestrar fyrir gestina, einkum á hinum löngu þagnarstundum. Og hljóð- leikinn var mikill í hinni miklu bygg- ingu, þar sem allir, munkar og gestir, gengu í mjúkum og þykkum flókaskóm, til þess að rjúfa ekki klausturkyrrðina með fótataki. I klaustrinu las ég meðal annars sjálfs- ævisöguna, sem bróðir Verkade hefur ritað um trúarleit sína og listþróun. Hann nefnir ævisöguna: Die Unruhe zu Gott: óróleikinn eftir Guði. Engu síður en hið ágæta og fróðlega innihald vakti mér margar hugsanir tileinkunin á bókinni. Hann tileinkar hana bróður sinum og lúterska æskuheimilinu sínu í Hollandi. Við klausturfriðinn í Beuron hafði hinn aldni málaramunkur unað í 40 ár, og vafalaust hafði hann fundið þar mikla hamingju. En þegar hann ritar ævisög- una, gat hann ekki annað en tileinkað hana æskuheimilinu sinu í fjarlægð, æskuheimilinu, sem hann hafði að mestu rofið tengslin við, er hann gerðist munk- ur. Hér i klaustrinu hafði hann lifað há- leitu lífi við iðkun trúar, fegurðar og list- ar, en foreldrahúsunum, sem miklu voru HÚSFREYJAN 3

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.