Húsfreyjan - 01.07.1960, Side 10

Húsfreyjan - 01.07.1960, Side 10
Rannveig Þorsteinsdóttir: Okkar á milli sagt Á ÖÐRUM stað hér í blaðinu birtast lögin um orlof húsmæðra, sem sam- þykkt voru á síðasta Alþingi. Það eru rétt 5 ár síðan mál þetta kom fyrst til umræðu á landsþingi K.í. og var vísað til milliþinganefndar, en áður hafði það nokkuð verið rætt inn- an samtakanna. Á þeim 5 árum, sem málið var í undirbúningi hjá K. í., var það m. a. rætt á landsþingum og for- mannafundum og ritað um það í Hús- freyjuna. Málið ætti því að vera orðið nokkuð kunnugt okkur öllum, sem um það höfum fjallað, en það sýnir sig, að nú, þegar lögin liggja fyrir og á að fara að framkvæma þau, þá er þó sitt hvað, sem þarf athugunar og kynning- ar. Enda þótt lögin geri ekki ráð fyrir, að sett verði reglugerð samkvæmt þeim, þá má ganga út frá því, að svo verði gert, og nýafstaðinn formanna- fundur K.f. beindi þeirri ósk til félags- málaráðuneytisins, að það setti sem fyrst reglugerð um orlof húsmæðra. Við setningu reglugerðarinnar, en þó einkum við framkvæmd laganna, hljóta að koma fram ýmsar spurning- ar, sem þarf að svara, og má búast við slíku lengi á meðan starfsemin er að fá festu hér hjá okkur, en þar sem ýmislegt hefur þegar komið fram í ný- afstöðnum umræðum um málið, vildi ég leyfa mér hér með að ræða það nokkuð og reyna að skýra það lítillega. Það, sem lögin um orlof húsmæðra fela í sér, er fyrst og fremst það, að ríkissjóður skal árlega leggja fram ákveðna fjárupphæð í orlofssjóð hús- mæðra. Eftir lauslegri áætlun, ætti sjóðurinn árlega að fá um 320 þús. kr., sem ætlazt er til, að verði varið til þess að styrkja orlofsdvöl fyrir hús- mæður víðs vegar um landið. Það verður Félagsmálaráðuneytið, sem út- hlutar þessu fé. Héraðssambönd kvenfélaga skulu kjósa orlofsnefndir, hvert á sínu svæði, og getur hvert héraðssamband ráðið því, hversu margar orlofsnefndir það kýs. Skilyrðið er, að hver orlofsnefnd hafi ákveðið orlofssvæði þar sem hún starfar, m.ö.o. héraðssamböndin þurfa að gera sér grein fyrir því, hvað séu eðlileg orlofssvæði innan héraðssam- bandsins og kjósa orlofsnefndirnar eft- ir því. Það má t.d. vel hugsa sér, að þar sem eru þorp og bæir á sambands- svæðunum. séu þessir staðir eðlileg orlofssvæði, og að rétt sé að kjósa sérstakar orlofsnefndir fyrir þá. Or- lofsnefndir skulu kosnar til þriggja 10 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.