Húsfreyjan - 01.07.1960, Page 14
Kindur rúnar í haga
manns, en alls eru í landinu um 30 mill-
jónir manna.
Hvernig var aðstaða kvenna í Póllandi
fyrr á árum? Voru þær lítilsvirtar og
undirokaðar?
Saga Póllands er um aldir saga þjóð-
ar, sem barizt hefur gegn áþján og árás-
um og konur hafa aldrei látið sinn hlut
eftir liggja í þjóðernisbaráttunni og hafa
því ætíð notið virðingar í þjóðfélaginu.
Ein kona klæddist karlmannsfötum og
barðist af miklum hetjuskap og vissi eng-
inn að hún var kona, fyrr en hún féll í
orrustu. Það var í uppreisn Pólverja um
miðja 19. öld og síðan
er hún meðal þeirra
þjóðhetja, sem mestur
ljómi er um. A 19. öld
komu líka fram margir
merkir kvenrithöfundar
og skáld, sem með rit-
verkum sínum lögðu
sjálfstæðisbaráttunni
mikið lið. Nei, pólskar
konur hafa ekki staðið
í skugga karlmannanna
sem ósjálfstæðar verur,
heldur samhliða þeim og
oft í fylkingarbrjósti.
Hver er yðar per-
sónulega reynsla — er
erfiðara fyrir konu að
komast til metorða inn- Ung vísindakona
an utanríkisþjónustunn-
ar en fyrir karlmann?
Þvert á móti, liggur
mér við að segja. Nú eru
konur hvattar mjög ein-
dregið til að taka þátt í
þeim störfum sem öðrum
og frami byggist ein-
göngu á hæfni einstak-
lingsins, kynið skiptir þar
engu máli. En auðvitað
gæti kona staðið gagn-
vart því að neyðast til að
velja milli þess að taka t. d. hátt em-
bætti erlendis og ef hún væri gift, að
verða þá að skilja við fjölskyldu sína um
sinn, eða afsala sér stöðunni.
Hverjar breytingar hafa einkum orðið
á kjörum kvenna í Póllandi eftir styrj-
öldina?
Fyrst og fremst það, að nú eiga konur
auðveldara með að notfæra sér mennt-
unarmöguleika vegna þess, að mismunur
á launum karla og kvenna hefur minnk-
að. Áður höfðu konur lagalega jafnan
rétt og karlar til menntunar, en fjárhag-
urinn meinaði mörgum að notfæra sér
hann. Þá var líka oft atvinnuleysi í land-
inu og þegar fækka þurfti starfsfólki á
vinnustað, urðu það að jafnaði giftu kon-
14
HÚSFREYJAN