Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 15

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 15
urnar, sem fyrst misstu vinnuna, ef eig- inmenn þeirra höfðu vinnu. Vegna vax- andi iðnvæðingar landsins eiga konur nú kost á fjölbreyttari og meiri vinnu, og má sem dæmi nefna þær tölur, að fyrir stríð voru aðeins 9 af hundraði vinnu- færra kvenna starfandi utan heimila, en nú eru það 33 af hundraði. Fyrir stríð unnu 47 konur af hverjum hundrað, sem líkamlega vinnu stunduðu, heimilisstörf, en nú er það aðeins 1 af hverjum hundrað. I öllum andlegurri störfum hefur þátttaka kvenna aukizt mjög mikið, t. d. eru 799 konur dómarar í Póllandi. Hafa konur í Póllandi sérfélög með sér? Já, þar starfa öflug kvennasamtök að menningar- og heilbrigðismálum, bæði í borgum og sveitum. I borgum leggja sam- tökin mikla áherzlu á að aðstoða konur til að afla sér aukinnar verkmenntunar, koma á fót sumardvalarstöðum fyrir börn og aðstoða bágstaddar fjölskyldur á ýmsan hátt. í sveitunum eru um 150 þúsund konur í kvennasamtökunum, þær halda uppi námskeiðum í störfum, sem varða heimilishald, útvega meðlimum sín- um heimilistæki til leigu, reka dagheim- ili og heilsuverndarstöðvar. I borgunum starfa um tvö þúsund ráðunautar á veg- um kvennasamtakanna og veita aðstoð í lögfræðilegum vandamálum, í mennt- unar- og heilbrigðismálum. Pólsku kvennasamtökin eru aðilar að alþjóðleg- um kvennasamtökum og hafa einnig sam- starf við kvennasamtök í einstökum lönd- um um ýmis málefni, sem varða allar konur heims. Frú Kowalska hefur sýnt mikinn áhuga á málefnum íslenzkra kvennasamtaka og hún er sennilega eina erlenda konan, sem er áskrifandi að Húsfreyjunni, en hún les nú þegar íslenzku sér til gagns. Við þökk- um henni þá vinsemd, sem hún hefur sýnt okkur og óskum henni velfarnaðar. Sigríður Thorlacius. Lög um orlof husmæðra 1. gr. Komið skal á fót orlofsnefndum, einni eða fleiri, á starfssvæði hvers héraðssambands kvenfélaga, er hafi það hlutverk að sjá um veit- ingu orlofsfjár til húsmæðra, skipulagningu hvíldarstaða þeirra og ferðalaga svo og önnur verkefni í því sambandi. Þar sem mæðrastyrks- nefndir eru starfandi á orlofssvæðinu, skulu or- lofsnefndir leita samstarfs við þær. 2. gr. í hverri orlofsnefnd skulu vera þrjár konur, kosnar á aðalfundi hlutaðeigandi héraðs- sambands, og þrjár til vara. Kosið skal til þriggja ára i senn. Orlofsnefndir skipta sjálfar með sér verkum. Þær skulu vera ólaunaðar. 3. gr. Fé orlofssjóðs skal fengið með þessum hætti: 1. Ríkissjóður greiðir árlega upphæð, sem svarar til minnst 10 kr. fyrir hverja hús- móður á landinu. 2. Með framlögum bæjar- og hreppsfélaga. 3. Með framlögum kvenfélaga og kvenfélaga- sambanda. 4. Með gjöfum, áheitum og öðrum þeim hætti, sem orlofsnefndum og kvenfélögum þykir henta. Framlögum samkvæmt 1. lið skiptir félags- málaráðuneytið milli orlofssvæða með hliðsjón af mótframlögum samkvæmt 2., 3. og 4. lið. 4. gr. Rétt til orlofsfjár eiga allar konur, sem veita heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Enn fremur má veita orlofsfé vegna barna allt að 10 ára aldri, helming á móti konu, ef sérstaklega stendur á. Orlof skal að jafnaði ekki vera styttra en 10—14 dagar. 5. gr. Við úthlutun orlofsfjár, er getur numið öllum kostnaði við fullt orlof, skulu orlofsnefndir hafa til hliðsjónar efnahag f jölskyldunnar, barna- fjölda og aldur þeirra, húsnæði og heilsufar svo og aðrar þær ástæður, sem að áliti orlofsnefndar ber sérstaklega að taka tillit til. Geyma má fé orlofssjóðs milli ára, ef ástæða þykir til. 6. gr. Félagsmálaráðuneytið skal láta prenta umsóknareyðublöð fyrir umsóknir um orlofsfé til húsmæðra og senda orlofsnefndum. 7. gr. Á meðan ekki hafa verið reist sérstök orlofsheimili, skulu orlofsnefndir hafa samvinnu við félagsmálaráðuneytið og menntamálaráðu- neytið og aðra hlutaðeigendur um afnot skóla og annarra opinberra bygginga til oorlofsdvalar, eftir því sem við verður komið. 8. gr. Skylt er orlofsnefndum að senda fé- lagsmálaráðuneytinu árlega skýrslu um starf- semi sína ásamt reikningsskilum. 9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. HÚSFREYJAN 15

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.