Húsfreyjan - 01.07.1960, Qupperneq 16

Húsfreyjan - 01.07.1960, Qupperneq 16
SILFURSTJARNAN Eftir Erling Paulsen Niðurl. Elísa fæddi barn sitt hálftíma áður en ráðhúsklukkan hringdi inn nýja árið. Það var drengur. Þegar klukkan sló 24 var hún komin í mjallhvítt rúm með dreng- inn við brjóstið í einu af tveggja manna herbergjum fæðingarstofnunarinnar. En frá útvarpinu hljómaði áramótasálmur, sunginn af blönduðum kór. „Frú Nohr.“ Unga, vingjarnlega hjúkr- unarkonan birtist í dyrunum. „Maðurinn yðar er hérna úti.“ „Maðurinn minn?“ tók hún upp undr- andi. En um leið sá hún fölt, en bros- andi andlit Toms að baki hjúkrunarkon- unnar. „En Tom,“ kallaði hún upp, „þetta er vinnutíminn þinn.“ Hann kom inn að rúminu, stór og klunnalegur með vönd af liljum og fjögralaufasmára í hendinni, en augun brún og blikandi hvíldu stöðugt ýmist á henni eða barninu. „Eg hringdi út að geyminum,“ sagði hann í fáti. „Ég bað Larsen að sjá um mína vakt til klukkan eitt. Ég varð að sjá þig og barnið fyrst.“ Hann lagði blóm- vöndinn á borðið við hliðina á rúminu og vöggunni. Augu hans voru gljáandi og rök af gleðitárum og klökkvi í röddinni, svo að hún næstum því brast. „Og það varð drengur," hvíslaði hann. „Til ham- ingju, Elísa. Hvernig líður þér núna?“ „Þakka þér fyrir,“ sagði hún blíðlega. „En hvernig gaztu náð í þessi blóm, Tom, á þessum tíma sólarhringsins?“ Hann brosti vandræðalega. „Ég gekk frá einni búð til annarrar, þangað til ég fann eina, þar sem eigandinn hafði íbúð áfasta við búðina. Hann var röskur og skilningsríkur og seldi mér þennan vönd.“ „Þakka þér fyrir, Tom,“ sagði hún aft- ur og skyndilega brá fyrir klökkva í rödd- inni. í fyrsta sinn í tvö ár Ijómuðu augu hennar af einlægri gleði. En í myrkrinu úti fyrir snjóugum gluggarúðunum þaut flugeldur upp í loftið og dró á eftir sér grænar og rauðar eldrákir yfir himininn. f rúminu við hliðina á Elísu lá dökk- hærð, ung kona. Við brjóst hennar lá líka nýfætt barn, tæplega klukkutíma gamalt. Þegar hjúkrunarkonan kom inn til að ráðstafa blómum Elísu, sagði konan: „Er maðurinn minn ekki hérna fyrir framan, ungfrú?“ ,,Nei,“ svaraði hjúkrunarkonan, „en hann ætlaði að koma aftur. Hann ætlaði að hringja á hverjum klukkutíma til þess að vita, hvað gerðist, sagði hann.“ Elísa lá með barn sitt við brjóstið og hélt í höndina á því. Hún horfði á dökk- hærðu konuna í hinu rúminu og stirðnaði upp sem snöggvast. Konan hafði lyft handleggnum til þess að hagræða barni sínu. En við grannt armband hennar, sem hún hafði um úlnliðinn, var fest silfur- stjarna alveg sams konar og sú, sem hékk við armband Elísu sjálfrar. „Hún hlýtur að vera kona Bents,“ hugsaði Elísa með sér, „og það er barnið hans Bents, sem liggur þarna við brjóst hennar.“ Konan í hinu rúminu sneri sér að hjúkr- unarkonunni á ný. „Sagði maðurinn minn nokkuð um, hvert hann ætlaði, ungfrú? Ætlaði hann að fara heim?“ „Það veit ég ekki,“ svaraði hjúkrunar- konan. „Ó, ungfrú, viljið þér ekki reyna að hringja til hans? Segið honum, að það hafi orðið stúlka. Hann óskaði einmitt eftir því. Og biðjið hann að koma strax hingað á fæðingarstofnunina." Stundarfjórðungi síðar stóð Tom upp til að fara. Hann hafði nú unnið bug á feimni sinni og ráðaleysi. Hann beygði sig yfir vögguna, þar sem hinn nýfæddi sonur hans lá og svaf. Svo sagði hann hlæjandi: „Er það ekki ótrúlegt, Elísa? Við höfum eignazt son. Við tvö höfum 16 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.