Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 18

Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 18
úti í bænum, syngjandi, áhyggjulaus, hugsunarlaus, fullur af lífsgleði-og kampavíni? I tvö ár hafði Elísa haft hina dýpstu meðaumkun með sjálfri sér. Hún fann einnig nú til meðaumkunar, en ekki með sjálfri sér, heldur með frú Bang. Hún sneri höfðinu og horfði á litla nýfædda drenginn sinn. „Hann hefur erft sterkleg- an munn Toms og skarðið í hökuna,“ hugsaði hún og varð skyndilega hlýtt um hjartarætur. Hugur hennar reikaði áfram. Hún minntist þess, þegar þeir Bent og Tom höfðu staðið hlið við hlið frammi á ganginum og talað við hjúkrunarkonuna, Bent í sínum glæsilega kjólbúningi, Tom í grófum og snjáðum vinnufötum. Aftur gerði hún samanburð á þessum tveimur mönnum, sem örlög hennar voru svo tengd við, og nú sá hún þá í öðru og nýju ljósi. „Já,“ hugsaði hún, „það er til margs konar ást. Ást, sem blossar skyndilega upp með glæstu litskrúði — líkt eins og flugeldarnir þarna úti —, en er svo horfin samstundis út í veður og vind. Og það er til ást, sem verður til í gráum hvers- dagsleikanum, en vex og dafnar óendan- lega hægt, unz hún verður loks að eldi, ekki loga, sem blossar upp og deyr um leið, heldur eldi, sem brennur á jörðinni og vermir og blessar þá, sem hafa fundið hann.“ „Tom,“ hvíslaði hún skyndilega og grúfði andlitið ofan í koddann, „ég elska þig. Það er ekki aðeins að byrja nýtt ár, það er líka nýtt líf.“ Klukkan var nærri því fimm. Unga hjúkrunarkonan stóð við fótagaflinn á rúmi frú Bang, með óákveðna og dapur- lega drætti í kringum munninn. „Frú Bang, maðurinn yðar hefur. nú hringt.“ „Ó, guði sé lof, hann kemur þá loks- ins.“ „Nei, frú Bang, hann kemur ekki. Hann bað mig að skila kveðju. Hann getur því miður ekki komið. Hann ætlar að koma á morgun, sagði hann-----í dag, meina ég, í heimsóknartímanum.“ Frú Bang leit döprum augum á hjúkr- unarkonuna. „Hvaðan hringdi hann? Var hann í veizlu? Var hann fullur?“ „Hann hefur áreiðanlega aðeins verið þreyttur, frú Bang, eða kannski lasinn. Ég hugsa, að hann hafi hringt heiman að. Ætli hann hafi ekki bara verið lasinn og háttað?“ Frú Bang hné niður á koddann og starði vonsvikin og hrygg út í loftið. „Já, það er líklega þannig,“ sagði hún hljóm- laust. „Getið þér ekki látið mig fá svefn- töflur, ungfrú, ég hef ekkert getað sofið.“ Elísa lá einnig vakandi og horfði á fölt og þreytulegt andlit frú Bang, og hana langaði mest til að fara að gráta. „Vesa- lings frú Bang. Að Bent skuli geta verið svona hugsunarlaus, svona hjartalaus,“ hugsaði hún með sér. Hjúkrunarkonan var tæplega horfin út úr dyrunum, þegar fótatak heyrðist úti á hinum langa sjúkragangi. Það var ekki fótatak hjúkrunarkonunnar, það var karl- maður. „Hann kemur þá samt sem áður,“ hvíslaði frú Bang, og settist til hálfs upp í rúminu. Hún starði eftirvæntingarfull á dyrnar. „Ó, Guði sé lof. Ég vissi, að hann myndi koma.“ Dyrnar opnuðust og há- vaxinn, brosleitur maður, klæddur vinnu- fötum, stóð í gættinni. „Tom,“ kallaði Elisa undrandi. „Já — en---------“ Hann kom alveg inn. Svo settist hann á stólinn við rúm Elísu. Hann ljómaði af fögnuði og horfði til skiptis á Elísu og barnið í vöggunni. „Ég fékk fríið fyrr,“ sagði hann andstuttur. „Ég sagði yfir- manninum, að barnið væri fætt og það hefði verið drengur. Það er heldur ekki svo mikið að gera svona seinni hluta næt- ur. Ég ók hérna um, af því-------.“ Hann hló lágt og feimnislega, „af því að mig langaði svo til að sjá þig og drenginn aftur og af því það er dálítið, sem mig langar til að segja þér.“ „Dálítið, sem þú ætlar að segja mér?“ tók hún upp eftir honum. Stór munnur haps opnaðist i hlýju brosi. „Já, en vertu ekki svona hræðslu- leg, elskan mín, það eru góð tíðindi, sem ég ætla að segja þér.“ Hann leit alvarlega á hana. „Elísa,“ sagði hann svo eftir litla 18 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.