Húsfreyjan - 01.07.1960, Qupperneq 19

Húsfreyjan - 01.07.1960, Qupperneq 19
þögn, ,,við flytjum okkur. Við erum búin að vera nógu lengi í bakhúsinu. Drengur- inn á að vaxa upp, þar sem er bæði loft og ljós og falleg græn tré að horfa á. A morgun fer ég og skrifa undir kaupsamn- inginn um raðhúsið, sem þú varst hrifn- ust af.“ „Já, en Tom, það er dásamlegt,“ greip hún fram í. ,,En við höfum bara ekki efni á að greiða svona stóra upphæð.“ ,,Ég sel mótorhjólið,“ sagði hann. ,,Ég get fengið 3000 krónur fyrir það og með því sparifé, sem við eigum, verður það nóg.“ Augu hennar fylltust tárum. „Mótor- hjólið,“ sagði hún, „en það er þér fyrir öllu.“ „Það er það ekki,“ sagði hann og brosti, „ekki lengur, ekki núna. Það er mér meira virði, að þú og drengurinn fái góða íbúð en að geta ekið um á mótorhjóli.“ „Mundu, hvað langt er í vinnuna, Tom.“ „Ég get hjólað eða farið á tveimur jafnfljótum." Hann hló ánægjulega. „En það er ekki til neins fyrir þig að mót- mæla. Þetta eru afgerð kaup.“ „Ó, Tom, en hvað þú ert indæll.“ Hún grét hljóðlega. Hann tók hendurnar, sem hún rétti honum og kyssti þær blíðlega. Svo leit hann enn einu sinni í vögguna og stóð upp til að fara. „Farðu nú að sofa,“ hvislaði hann. „Ég kem aftur i fyrramálið. Góða nótt, elskan mín.“ „Góða nótt, Tom.“ Hún lá með spennt- ar greipar á brjóstinu og hlustaði eftir skellunum í mótorhjólinu, sem fjarlægð- ust og dóu út niðri á götunni. Kyrrðin ríkti á ný. Aðeins smásnökt frá rúmi frú Bang rauf öðru hvoru þögnina. Utan við gluggann tók að skíma. Skýin hurfu og dauf, fjarlæg stjarna kom í ljós á morg- unhimninum. Elísa greip um litlu silfur- stjörnuna, sem hékk við úrkeðjuna henn- ar. Svo sleit hún stjörnuna af keðjunni. Aldrei, aldrei framar ætlaði hún að bera þessa stjörnu. Hún minnti hana svo sorg- lega á mann, sem hún nú fyrirleit. Frú Bang sofnaði að síðustu, en Elísa lá vakandi umvafin djúpum friði, og horfði brosandi móti nýja árinu. Hún hlustaði á rólegan andadrátt sofandi barnsins síns í vöggunni við hliðina á rúminu. „Litli drengurinn okkar Toms,“ hvíslaði hún og var á þessari stundu fullkomlega ham- ingjusöm. Hún hélt enn á litlu silfur- stjörnunni í lófanum og fann nú, að hún vildi samt sem áður ekki fleygja henni. Hún ætlaði að geyma hana, ekki til minn- ingar um mann, sem henni hafði einu sinni þótt vænt um, heldur til minning- ar um það, sem þessi langa nýársnótt hafði kennt henni: Að lífið getur verið kalt og miskunnarlaust, en að það getur líka verið gjafmilt og fagurt. Bent var maður, sem var hvorki verður ástar henn- ar né nokkurrar annarrar konu, en hann hafði rétt fyrir sér i því, að jörðin var líka stjarna. Hún spennti greipar aftur og brosti. Já, hún lifði á stjörnu og ham- ingjan lá fyrir fótum hennar. Hún þurfti aðeins að höndla hana og deila henni með Tom og litla barninu, sem þau höfðu eignazt. Svanhildui- Eggertsdóttir þýdddi. KONAN OG HEIMILIÐ Framh. af bls. 6. lausnarans bjó, mannssonarins, sem saknaði heimilisins og átti hvergi höfði sínu að að halla? Og þó hafði málaramunkurinn fundið heimili, sem bjó yfir sterkum töfrum. Þá töfra fann ég vel eftir einnar viku dvöl í Beuron, þegar gestafaðirinn hafði leitt mig til dyra, hin þungu klausturhlið lokuðust, ég var aftur staddur úti í um- heiminum og leit um öxl til klaustur- hliðanna, sem báru að yfirskrift þetta eina orð, höggvið í steininn: PAX: Friður. Ég veit ekki elskulegu konur, hvort mér hefur tekizt að flytja hér mál, sem yður hefur orðið ánægja eða gagn að hlýða á. En hér er á ferðinni svo mikið mál. Raunar ekki sérstaklega prests- kvennanna, heldur allra kvenna. En ég þakka fyrir, að þið hlustuðuð á mig. Sr. Jón Auðuns. HÚSFREYJAN 19

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.