Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 21

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 21
birgðaskjólgjafi. Að öðru leyti tilkomu- lítill og lússækinn. Reyniviður — gráreynir, ilmreynir og silfurreynir eru góð garðatré, en eru yfir- leitt látin standa of þétt, svo að þau njóta sín sjaldan. Til frambúðar mun ekki veita af 2.5—2.3 m rými. Hlynur — fagurt garðatré, en nokkuð viðkvæmt í byrjun. Styrkist með aldrin- um. Aðeins haft sérstætt. Askur — einnig viðkvæmur á uppvaxt- arárunum, en sækir sig. Aðeins hafður sérstæður. Gullregn — blómauðugt, lágvaxið tré eða stór runni. Fjallagullregn þrífst hér vel og er haft sérstætt, t.d. í námunda við tjöm eða bekk í garðinum. Að sjálf- sögðu koma margvíslegir aðrir staðir til greina. Heggur — stórvaxinn runni eða lítið tré sem þrífst hér mjög misjafnlega. Blómsælt og gróðursetjist sem sérstætt eða oftast í runnabeði, sé það í beinu áframhaldi af skjólbelti. Grasflatir Þegar gengið hefur verið frá trjá- og runnabeðum, liggur næst fyrir að jafna svæði það, sem eftir er og sá í það grasi. Um leið og þetta er gert, er merkt fyrir þeim blómabeðum, sem í garðinum eiga að vera. „Hvort er betra að sá, eða nota þök- ur?“ spyrja margir. Það er betra að sá. Með sáningu fæst yfirleitt langum fallegri og mýkri grasflöt en eftir þökur. Ástæð- an er fyrst og fremst sú, að við sáningu er notazt við grastegundir, sem reynsla er fengin fyrir, að henti bezt grasflötum garða. Með þökum fylgja einatt ýmsar tegundir, sem eru miður heppilegar, eru t.d. of grófgerðar, greina sig illa við sí- endurtekinn slátt, eða þola illa mikla um- ferð. I þokkabót bætast svo við ýmsar illgresistegundir, sem alltaf leynast innan um þökur. Ef þökur væru beinlínis ræktaðar til þess að nota í garða, eins og víða tíðkast erlendis, horfði málið öðru vísi við; þá væri þökulagning jafnvel réttlætanlegri en sáning, vegna þess yfirburðar, að gras- flöt lögð þökum er svo að segja tilbúin til notkunar strax. Sáðflöt krefst aftur á móti töluverðrar biðlundar, því helzt má ekki ferðast á henni fyrsta sumarið nema til nauðsyn- legra verka. Af þeirri ástæðu munu marg- ir velja að leggja þökur, og máski einnig sökum þess að það er auðveldara og ein- faldari vinna að þekja en sá. í fáum löndum mun gefast betra tæki- færi til ræktunar á góðum grasflötum en einmitt hér, en því veldur hið svala og raka veðurfar. Og þótt ekki væri annað en vel hirtar grasflatir í kringum öll íbúð- arhús, yrði ærin breyting á umhverfi okk- ar. Fyrsta skilyrði fyrir góðri grasflöt er, að jarðvegur sé djúpur, myldinn og hvorki of leir- né sandborinn. Gott er að stinga eða tæta hann upp að hausti, svo frost og loft nái að leika um hann yfir veturinn. Leggja verður mikla áherzlu á, að hann sé laus við allt rótarillgresi (t.d. húsapunt oð þistil) áður en sáð er. Bera þarf ríflega á landið af vel fúnum búfjár- áburði, eða 50—70 kg á 10 m2. Að auki er rétt að dreifa 150 g af kalí, 350 g af þrífosfati og 1.5—2.0 kg af áburðarkalki Mynd I. Sandkassinn er ómissandi, þar sem börn eru. Gætið þess að láta hann liggja vel við sólu, og að trjágróður skyggi ekki um of á hann. HÚSFREYJAN 21

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.