Húsfreyjan - 01.07.1960, Qupperneq 27
Síld x kryddlegi: lauksneiðar og dill.
Síld í ediki: lauksneiðar.
Sardínur í olíu: sítrónusneiðar.
Sardínur í tómat: grænt salat eða kai'si.
Síldarsalat: eggjasneið, steinselja.
Reykt síld: hrærð egg eða hreðkur og
hrá eggjarauða eða laukur.
Steikt fiskflök: sítrónusneið, remolaði-
sósa, eitthvað grænt.
Rækjur: sítrónusneið, mayonies og
grænt.
Humar: sítrónusneið, mayonies og
grænt.
Reyktur lax: hrærð egg, steinselja.
Enskt buff: brúnaður laukur eða asíur,
piparrót, soðhlaup eða steikt egg.
Svínasteik: rauðkál, soðhlaup, sveskj-
ur og soðin epli, asíur.
Saxað buff: brúnaður laukur, asíur,
steikt egg.
Kálfasteik: agúrkusalat, soðhlaup.
Lambasteik: agúrkusalat, soðhlaup,
sveskjur.
Lifrarkæfa: rauðrófur, soðhlaup.
Kæfa: rauðrófur.
Sviðasulta: rauðrófur.
Hangikjöt: hrærð egg.
Steikt flesk (bacon): brúnaður lauk-
ur og steikt epli.
Hamborgarhryggur: ítalskt salat.
Uxatunga: ítalskt salat og grænt.
Ávextir: þeyttur rjómi ávaxtahlaup.
Heitt ostabrauð með reyktu fleski og tómötum
Brauðterta skreytt með tómötum, rækjum
og majones
,,Spege“pylsa: lauksneiðar.
Eggjasneiðar: beinlaus síld eðatómat-
sneiðar, majones.
Kartöflusneiðar: agúrkusneiðar eða
tómatsneiðar, majones.
Rifið hrátt grænmeti: sítrónusneiðar,
steinselja eða hreðkur, grænt salat.
Tómatsneiðar: agúrkusneiðar, lauk-
sneiðar, steinselja, majones.
Ostur: hreðkur eða agúrkusneiðar eða
tómatsneiðar.
Setja má fleiri en eina áleggstegund á
sömu brauðsneiðina, sem ýmist getur ver-
ið kringlótt, ferköntuð eða aflöng. Er þá
áætluð ein brauðsneið á mann. Raða
skal álegginu á brauðsneiðarnar í þeirri
röð, sem gert er ráð fyrir að það sé bor-
að, hafa t.d. ekki sild á miðri sneið, en
síld á að borða fyrst.
Heitt brauð er hægt að útbúa nokkru
áður en það er borið fram, stungið svo
inn í heitan ofn, þegar húsmóðirin fer að
hella á könnuna.
Nokkrar tillögur að heitu brauði:
Sardínur í olíu, rifinn ostur.
Tómatar, steinselja, ostur.
Rækjur, karrý, ostur.
Rækjur, steinselja, majones þeytt
eggjahvíta.
Ostur, reykt flesk, tómatar.
Hangikjöt eða skinka, sinnep, ostur.
HÚSFREYJAN
27