Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 31
Saga Kvenfélagasambands íslands árin 1951—1960
(Framhald af sögu sambandsins í 1. tbl. 1. árg.)
Árin 1951—1954
Á LANDSÞINGI K.í. 1949 var kosin milli-
þinganefnd til þess að endurskoða lög K.í.
Lagði hún fram nokkrar breytingartillög-
ur á landsþingi 1951, en ekki mikilvægar.
Þar eð fjárhagur sambandsins var enn
þröngur, virtust litlar.líkur fyrir því, að
unnt yrði í bráð að taka upp aftur það
fyrirkomulag að hafa framkvæmdastjóra
á fullum launum. Var þvi frestað breyt-
ingu á lögunum, en sömu nefnd falið að
vinna áfram að breytingum á lögunum í
samráði við stjórn K.I. Skyldi þá meðal
annars tekið til athugunar, hvort laga-
ákvæðið um framkvæmdastjóra skyldi
eigi niður fellt, enda framlengd á þessu
landsþingi tillagan frá þinginu 1949, að
fela stjórninni að sjá um framkvæmdir
og skrifstofuhald. Hafði Rannveig Þor-
steinsdóttir annazt um skrifstofuna fyrir
stjórnarinnar hönd undanfarin tvö ár.
Er landsþing kom saman árið 1953,
lágu fyrir víðtækari breytingar á lögun-
um en verið hafði árið 1951, meðal ann-
ars sú breyting að nema úr lögum ákvæð-
ið um framkvæmdastjóra. Náðu flestar
breytingartillögurnar fram að ganga,
enda stefnuskrá sambandsins í engu
breytt né aðalfyrirkomulagi og uppbygg-
að gefa því gætur innan frá húsinu. Leik-
svæðið má ekki skera um of við nögl, því
börnin þurfa gott svigrúm til athafna. Á
leiksvæðinu þarf að hafa rúmgóðan sand-
kassa, og mætti helluleggja í kringum
hann. Fleiri leiktæki koma og til greina.
Yfirleitt fer vel á því að afmarka eina
eða fleiri hliðar leiksvæðisins með lág-
vöxnum gróðri, sem má þó ekki draga að
verulegu leyti úr birtu þess.
Óli Valur Hansson.
HÚSFREYJAN
ingu. Mikilvægasta nýmæli í hinum end-
urskoðuðu lögum var, að það árið, sem
ekki væri haldið landsþing, skyldi haldinn
fulltrúaráðsfundur, en fulltrúaráð ætti að
vera skipað formönnum allra héraðssam-
banda. Gæti stjórn sambandsins á þennan
hátt rætt mikilvæg mál við formennina
og héraðssamböndin á hinn bóginn staðið
í lífrænna sambandi við aðalstjórnina,
auk þess sem fundir þessir gætu lagt fyrir
landsþingin til ákvörðunar ýmis mál, er
héraðssamböndin bæru fyrir brjósti.
Á þessu sama landsþingi, 1953, var
stjórn K.I. falið að undirbúa 25 ára af-
mælismót sambandsins á árinu 1955.
Skyldi hátíð þessi vera haldin í sambandi
við 11. landsþing K.I. og fulltrúum öllum
boðið til mótsins, ásamt formönnum allra
félaga innan sambandsins. Ákveðið var
og, að gæti formaður félags ekki mætt á
móti þessu, væri heimilt að einhver önnur
kona úr stjórn hlutaðeigandi félags gæti
komið í hennar stað. Að öðru leyti hafði
stjórn K.I. óbundnar hendur um undir-
búning og tilhögun mótsins.
Afmælismótið 1955
Mótið hófst með samsæti i Sjálfstæðis-
húsinu í Reykjavík mánudaginn 6. júní
kl. 8.30 síðdegis. Voru þar saman komnir
formenn kvenfélaga eða fulltrúar þeirra
viðs vegar að af landinu, auk stjórnar og
starfsmanna K.I. og nokkurra boðsgesta
annarra, þar á meðal félagsmálaráðherra,
Steingríms Steinþórssonar.
Hófst mótið með því, að lúðrasveit lék
lagið „Island ögrum skorið“. Að því búnu
flutti formaður K.I., frú Guðrún Péturs-
dóttir, ávarp, bauð gesti velkomna, minnt-
ist brautryðjenda samtakanna, lýsti nokk-
uð starfsháttum Kvenfélagasambandsins
og kvað efnt til móts þessa meðal annars
til þess að koma á nánara sambandi milli
31
L