Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 32

Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 32
kvenfélaganna í landinu og stjórnar K.l. Að ávarpi formanns loknu var sungið „Blessuð sértu sveitin mín“. Þá flutti félagsmálaráðherra ræðu. Flutti hann K.I. og kvenfélögum landsins þakkir ríkisstjórnarinnar fyrir unnin þjóð- nýt störf á undanförnum árum. Drap hann meðal annars á, hversu mörg kven- félög hefðu lagt fram af mikilli fórnfýsi störf við fjársöfnun til ýmissa stofnana þjóðfélagsins og þar með átt drjúgan þátt í, að þær kæmust á laggirnar. Var að ræðu ráðherrans lokinni sungið „Hver á sér fegra föðurland“. En að þvi búnu tal- aði frú Ragnhildur Pétursdóttir, heiðurs- formaður sambandsins. Rakti hún í stór- um dráttum tildrög og undirbúning að stofnun K.I. Var nú sungið „Hvað er svo glatt“, og svo sezt að kaffidrykkju. Á rPeðan setið vai" undir borðum skemmti Þuríður Pálsdóttir með söng, en Arndís Björnsdóttir leikkona las ævintýrið „Ósk- in“ eftir Einar H. Kvaran. Samkvæminu lauk laust eftir miðnætti. Næsta dag, þriðjudaginn 7. júní, var áformað að halda sýningu á heimilis- áhöldum í húsakynnum Húsmæðrakenn- araskóla Islands í kjallara Háskóla Is- lands. Hafði skólastjóri Húsmæðrakenn- araskólans, Helga Sigurðardóttir með hjálp nemenda skólans, annazt um upp- setningu og tilhögun sýningarinnar. Skyldu þátttakendur afmælismótsins mæta í hátíðasal Háskólans kl. 10 ár- degis. Flutti þá formaður K.I. nokkur ávarpsorð, en gaf að því búnu Helgu Sig- urðardóttur, skólastjóra, orðið. Bauð hún gesti velkomna til sýningarinnar og fór nokkrum orðum um sýninguna sjálfa. Að ræðu skólastjóra lokinni léku þeir saman á fiðlu og píanó Þorvaldur Steingrímsson og Karl Billieh. Var síðan gengið til kjall- ara og sýningin skoðuð undir leiðbeiningu og með útskýringum nemenda Húsmæðra- kennaraskólans, en jafnframt voru þarna kaffiveitingar. Klukkan 2 síðdegis þennan sama dag var svo fundur settur í Tjarnarbíó. For- maður K.I. setti fundinn og tilnefndi að fundarstjóra Aðalbjörgu Sigurðardóttur, en að fundarritara Sigríði Einarsdóttur á Eyrarlandi. Samkvæmt dagskrá, er fyrir lá, flutti Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri húsmæðraskólans að Varmalandi, erindi um húsmæðraskólana og heimilin, en að því erindi loknu flutti Rannveig Þorsteins- dóttir erindi um starf Kvenfélagasam- bands Islands, héraðssambanda og ein- stakra kvenfélaga. Var að því búnu orðið gefið laust. Til máls tók þá Sigurbjörg Hólm frá Siglufirði og flutti stutta hvatn- ingarræðu til húsmæðraskólanna og raun- ar allra kvenna landsins um að vemda móðurmálið. Nokkrar fleiri konur tóku til máls. Sama dag mættu konurnar að Hótel Borg kl. 7 síðdegis til þess að sitja veizlu í boði félagsmálaráðherra. Fór veizla sú fram með mestu prýði og var séð fyrir nokkrum skemmtiatriðum, er gestir skemmtu sér við hið bezta og að síðustu var stiginn dans af mesta fjöri. Miðvikudaginn 8. júní höfðu félögin í Bandalagi kvenna í Reykjavík tekið að sér umönnun fulltrúanna utan af landi. Hófst dagskrá þessa dags með því, að konurnar skyldu mæta í Þjóðminjasafn- inu kl. 10 árdegis. Eftir að hafa skoðað safnið dreifðust aðkomukonur í smáhóp- um, ásamt þar til kjörnum nefndum frá kvenfélögunum í Reykjavík, og skemmtu sér með ýmsum hætti, er mun hafa lokið hjá flestum með því að fara í Þjóðleik- húsið um kvöldið. Fimmtudaginn 9. júní kl. 11,30 árdegis var lagt af stað til Þingvalla. Var hinn fornhelgi sögustaður íslendinga skoðað- ur rækilega og að því búnu setið kaffiboð áfengisvarnanefnda kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, en síðan haldið aftur til Reykjavíkur. Um kvöldið kl. 19.30 hófst kvöldverð- arboð í Sjálfstæðishúsinu og skyldi það vera skilnaðarhófið. Var fljótlega sezt að borðum og matur fram reiddur. Voru ræðuhöld mikil yfir borðum, minni drukk- in og árnaðaróskir fluttar. Meðal annars talaði þar sendiherra Dana á Islandi, Bodil 32 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.