Húsfreyjan - 01.07.1960, Page 34

Húsfreyjan - 01.07.1960, Page 34
laganna í landinu. Hafa nú flest félög og héraðssambönd sent sína sögu, en sökum fjárskorts var tekin sú ákvörðun að koma handritunum í örugga geymslu, þar til fjárhagur rýmkaðist og hafizt yrði handa um að vinna úr þeim. Milliþinganefndin í félagsmálum bar fram á 2. formannafundi K.I., er haldinn var á Laugarvatni í sept. 1956, tillögur um viss atriði, er samræma bæri í lögum allra héraðssambanda. Jafnframt lagði nefndin til, að stofnað yrði til bréfaskóla til þess meðal annars að fræða konur í kvenfélögum um almenn fundarsköp. — Féllst fundurinn á að tillögur þessar færu óbreyttar fyrir næsta landsþing. A 12. landsþingi, er haldið var í september- mánuði 1957, lágu tillögur þessar fyrir og voru þar samþykktar óbreyttar ein- róma. Stjórn K.I. var falið að sjá um að héraðssamböndin breyttu lögum sínum skv. tillögum þessum. Hefur síðan verið að því unnið og talsverður meiri hluti héraðssambandanna þegar lokið þessum lagabreytingum, svo að vænta má, að verki þessu verði lokið, er 14. landsþing kemur saman á næsta ári, 1961. Á lands- þinginu 1957 og einnig 1959 var félags- málanefnd endurkosin í því skyni að halda uppi bréfaskólanum og jafnframt vinna að tillögum um samræmingu á lög- um allra kvenfélaga innan K.I. Verða þær tillögur að líkindum lagðar fyrir lands- þing 1961. Milliþinganefnd sú, er árið 1955 var kjörin til að undirbúa löggjöf um orlof húsmæðra, starfaði ötullega að undirbún- ingi málsins, meðal annars með því að kynna sér löggjöf nágrannaþjóða í þessu efni. Lagði hún fram skýrslu um störf sín á landsþingi 1957 og gerði grein fyrir, hvernig málum þessum væri háttað ann- ars staðar á Norðurlöndum. Taldi þing þetta sjálfsagt, að störfum yrði haldið áfram og voru kjörnar í milliþinganefnd til að vinna að málinu áfram þær Jósef- ína Helgadóttir, Herdís Ásgeirsd., Hall- fríður Jónasdóttir, Jakobína Matthiesen og Petrína Jakobsson. Áður höfðu þær Rannveig Þorsteinsdóttir og Helga Magn- úsdóttir beðizt eindregið undan kosningu sökum anna, en Ingibjörg Zofoníasdóttir hafði engan þátt getað tekið í nefndar- störfunum sökum f jarlægðar, og Hallfríð- ur Jónasdóttir þá tekið sæti í nefndinni sem fyrsta varakona. Á landsþingi 1959 lagði svo nefnd þessi fram frumvarp að lögum um orlof húsmæðra, er var sam- þykkt án verulegra breytinga á lands- þinginu og stjórn K.í. falið að sjá um, að frumvarp þetta yrði flutt á næsta Alþingi. Fengust alþingismenn úr öllum stjórn- málaflokkum til þess að vera flutnings- menn frumvarpsins. Lauk málinu svo á síðasta alþingi, að frumvarpið náði þar samþykkt með nokkrum breytingum og er nú orðið að lögum, þótt reglugerð um framkvæmd þess hafi enn eigi verið samin af ríkisstjórninni. Eitt nýmæli er nú mjög á döfinni hjá K.I. og var rætt á síðasta landsþingi, en það er samvinna milli K.I. og Búnaðar- félags Islands, einkum varðandi fræðslu. Kaus landsþingið þriggja kvenna nefnd til þess að vinna að málinu, en hún flutti málið á síðasta Búnaðarþingi, sem kaus 3 menn í nefnd til þess að starfa með nefndinni frá K.I. að undirbúningi máls- ins. Sýnt þykir, að einp heimilisráðunautur fái eigi annað fræðslustarfi um land allt og er nú að því unnið að fá úr þessu bætt með fjölgun ráðunauta. Sérstakur þáttur í starfi K.í. Útgáfa „Húsfreyjunnar“ Oft hafði á árunum 1947—1949 verið rætt um, að K.I. væri nauðsynlegt að eignast sitt eigið málgagn og jafnvel verið skipuð nefnd til þess að athuga, hvort til mála gæti komið að vera í samvinnu við einhverrf annan aðila um blaðaútgáfu. Virtist nefndarkonum slíkt ekki vera til- tækilegt af ýmsum ástæðum. Á landsþingi 1949 hafði blaðsútgáfa það mikið fylgi, að kosin var þriggja kvenna nefnd til þess að vinna að því að hrinda í framkvæmd útgáfu blaðs, ef unnt væri. Nefndin skyldi 34 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.