Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 35

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 35
vera stjórn K.I. til aðstoðar í máli þessu, en vitanlega hafði stjórnin úrskurðarvald- ið. Eftir marga sameiginlega fundi nefnd- arinnar og Stjórnar K.í. og margs konar undirbúning varð það að ráði að hleypa af stokkunum blaði, er bæri nafnið ,,Hús- freyjan“ samkvæmt uppástungu formanns sambandsins, Guðrúnar Pétursdóttur. — Kom fyrsta tölublaðið út fyrri hluta árs árið 1950 og hófst með ávarpi formanns K.I. Endaði ávarp formanns á þessa leið: ,,Það er ósk vor, að ,,Húsfreyjunni“ megi í framtíðinni auðnast að flytja þann fróð- leik til íslenzkra kvenna, sem efli þær til að styðja að heill og hamingju heimilanna og að þær verði sífellt minnugar þess, að heimilið er hyrningarsteinn þjóðfélags- • _ U ms. I þessum orðum formanns er innifalinn aðaltilgangur blaðsins. En vitanlega var einnig til þess ætlazt, að blaðið yrði til þess að auka og efla félagsanda innan samtakanna og á þann hátt tryggja ein- læga samvinnu um stefnuskrármál K.I. Stjórn K.I. sá ein um útgáfu fyrsta tölu- blaðsins, en réði skömmu siðar frú Guð- rúnu Sveinsdóttur, fjölhæfa gáfukonu, vel ritfæra, sem ritstjóra blaðsins. Hennar naut þó eigi við í starfi þessu lengur en svo, að undir hennar ritstjórn kom út hálfur fjórði árgangur. Lét hún af störf- um á miðju ári 1953, þar eð henni bauðst þá söngkennarastarf, tímafrekt, en henni mjög hugstætt, því að hún er söngelsk og söngfróð mjög. Gegnir hún nú söng- kennslu við kennaraskólann. Á landsþingi 1953 kom fram tillaga um að kjósa sérstaka útgáfustjórn fyrir blað- ið með það fyrir augum, að nefnd, er eigi hefði öðrum störfum að sinna fyrir sam- bandið en að sjá um útgáfu blaðsins, gæti frekar einbeitt sér að útgáfu og útbreiðslu blaðsins en stjórn K.I., er hafði í mörg horn að líta við stjórn á málefnum sam- bandsins. Náði tillaga þessi fram að ganga og var ákveðið, að nefndin skyldi skipuð þremur konum, kosnum á því þingi. Kjörnar voru þær Svafa Þórleifsdóttir, Elsa E. Guðjónsson og Sigrún Árnadóttir. Varð það skömmu síðar að samráði með stjórn K.I. og útgáfustjórn, að Svafa Þór- leifsdóttir skyldi vera aðalritstjóri, en þær Elsa og Sigrún annast vissa þætti í blað- inu. Einnig féllst stjórn K.I. á, að Rann- veig Þorsteinsdóttir skyldi fyrst um sinn annast afgreiðslu og innheimtu blaðsins á skrifstofu sambandsins, eins og verið hafði frá upphafi. En árið 1957 varð sú breyting á með afgreiðslu og innheimtu blaðsins, að Rannveig Þorsteinsdóttir lét af þeim störfum, að eigin ósk, en við tók Svafa Þórleifsdóttir. Fluttist afgreiðslan þá og skömmu síðar af skrifstofu sam- bandsins að Laugavegi 33A, þar sem hún er enn til húsa. Brátt varð það að samkomulagi innan útgáfustjórnarinnaar, að sérhæfa efni blaðsins meira en verið hefði, með því að hafa í hverju blaði sérstaka greinaflokka, manneldisþátt og heimilisþátt. Annaðist Sigrún hinn fyrrnefnda, en Elsa heimilis- þáttinn. Nokkurt skemmtiefni hefur og verið leitazt við að hafa í hverju blaði, auk ýmiss konar fróðleiks um almenn efni. Með útkomu 4. tölublaðs 5. árg. (1954) hófst nýr fastur þáttur í blaðinu, er fjalla skyldi um ýmis sambandsmál, eftir því sem stjórn K.I. óskaði eftir á hverjum tíma. Átti Rannveig Þorsteins- dóttir upptökin að þessum þætti og hefur lang oftast séð um þær greinar. Þær Svafa og Elsa eru enn í ritstjórn blaðsins, en árið 1957 baðst Sigrún undan endurkosningu og þær Elsa og Svafa tóku eigi endurkosningu nema með því skil- yrði, að kosnar væru varakonur þeirra. I stað Sigrúnar Árnadóttur var kosin Kristjana Steingrimsdóttir, húsmæðra- kennari og í varastjórn voru kosnar Sig- ríður Thorlacius fyrir Svöfu, en Sigríður Kristjánsdóttir, húsmæðrakennari fyrir Elsu. Á siðasta landsþingi voru þær allar endurkosnar, þó með þeirri breytingu, að nú skipa þær allar útgáfustjórn blaðsins samkvæmt tillögu, er samþykkt var á þinginu. I fyrstu var ákveðið, að blaðið skyldi koma út fjórum sinnum á ári og hvert HÚSFREYJAN 35

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.