Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 39

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 39
tillaga var borin upp um breytingar á núgild- andi skipulagi. Helga Magnúsdóttir bar fram þá ósk, að Rann- veig Þorsteinsdóttir veitti skrifstofunni forstöðu eins og verið hefði, og tóku margir fulltrúanna undir það. Fjárhagsnefnd var sammála sjónarmiðum stjórnar K.I. í fjármálunum. 2. Ráðunautastarfsemin og samstarfið við Búnaðarfélag íslands. Framsögumaður Helga Magnúsdóttir. Rœddi hún málið á breiðum grundvelli og taldi nauð- synlegt, að haldið vœri opnum möguleikum bæði fyrir því að hafa ríkisráðunauta og héraðsráðu- nauta. Eftir allmiklar umræður voru svofelldar álykt- anir samþykktar: I. — Formannafundur K.í. lætur í ljós ánægju sína yfir því, að B.í. hefur kosið nefnd til þess að starfa með milliþinganefnd K.í. að auknu og nauðsynlegu samstarfi milli þessara samtaka. II. — Formannafundurinn ítrekar ályktun síð- asta landsþings um fjölgun heimilisráðunauta K.í. og felur stjórninni að vinna að því, að sem fyrst komi fleiri landsráðunautar til starfa hjá sambandinu. Jafnframt telur fundurinn nauð- synlegt, að sem fyrst verði sett lagaákvæði um heimilisráðunauta, er starfi sem héraðsráðunaut- ar. Ennfremur telur fundurinn nauðsynlegt, að samstarfsnefnd og stjórn K.I. hlutist til um, að gerðar ver$i ráðstafanir til þess, að ráðunautar K.í. fái sömu réttindi og ráðunautar B.I. 3. Orlof húsmæðra. Framsögumaður Aðalbjörg Sigurðardóttir. Út- skýrði hún hin nýju lög um orlof húsmæðra, er gefin voru út hinn 30. maí 1960. Voru lögin og væntanleg framkvæmd þeirra mikið rædd, og ýmsar fyrirspurnir og athugasemdir gerðar. Að umræðum loknum voru eftirfarandi álykt- anir samþykktar: I. — Formannafundur K.f. beinir því til hér- aðssambandanna, að þau kjósi sem allra fyrst orlofsnefndir, samkvæmt lögum um orlof hús- mæðra og að nefndirnar fari að vinna að fram- kvæmd laganna, hver á sínu svæði. II. — Formannafundurinn beinir því til stjórn- ar K.Í., að fá til birtingar á landsþingi hverju sinni, yfirlit félagsmálaráðuneytisins um orlofs- mál húsmæðra og reikninga orlofssjóðs. III. — Formannafundur K.í. beinir því til fé- lagsmálaráðuneytisins, að það setji sem allra fyrst reglugerð um orlof húsmæðra í samræmi við lög frá 30. maí 1960 um það efni. 4. Samræming á lögum félaga. Framsögumaður Svafa Þórleifsdóttir. Gat hún þess fyrst, að ennþá ættu nokkur sambönd eftir HÚSFREYJAN kemur út 4 sinnum á ári. Ritstjórn: Svafa Þórleifsdóttir Laugavegi 33A - Sími 16685 Sigríður Thorlacius Bólstaðahlíð 16 - Sími 13783 Elsa E. Guðjónsson Laugateigi 31 - Sími 33223 Sigríður Kristjánsdóttir Stigahlíð 2 - Sími 35748 Kristjana Steingrimsdóttir Hringbraut 89 - Sími 12771 Afgreiðslu og innheimtu annast Svafa Þórleifsdóttir, Laugavegi 33 A. Verð árgangsins er 35 krónur. í lausasölu kostar hvert venjulegt hefti 10 kr. Gjald- dagi er fyrir 1. október ár hvert. Prentsmiðja Jóns Helgasonar. að skila lögum sínum samræmdum, samkvæmt því, sem landsþing ákvað, en þó taldi hún, að tími væri kominn til þess, að fara að undir- búa samræmingu á lögum félaganna, samkvæmt ályktun landsþings. Lagði framsögumaður fram tillögur frá milliþinganefnd í félagsmálum um nokkur ákvæði, sem skylt væri að hafa í félags- lögum kvenfélaga. Málið var rætt nokkuð, eftir að það kom frá nefnd, og var síðan ákveðið að iáta ekki fara fram atkvæðagreiðslu um tillögur félagsmálanefndar, en vísa málinu til næsta landsþings. 5. Steinunn Ingimundardóttir, heimilisráðunaut- ur sambandsins flutti mjög skemmtilegt og fróð- legt erindi um starfsíþróttamót, sem hún sótti í Danmörku á s.l. hausti á vegum K.í. og U.M.F.Í. Sýndi hún jafnframt myndir frá mótinu, svo og nokkrar myndir sem hún hefur tekið í sambandi við starf sitt hér og á fundum sambanda, sem hún hefur sótt. Var gerður mjög góður rómur að máli Steinunnar. 6. Önnur mál. Enginn kvaddi sér hljóðs undir þeim lið. Fundinum barst kveðjuskeyti frá Sambandi norðlenzkra kvenna, og sendi hann Halldóru Bjarnadóttur svar, þar sem henni voru þökkuð ómetanleg störf í þágu kvenna. HÚSFREYJAN 39

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.