Húsfreyjan - 01.07.1960, Page 40
Um bækur
HÖFUNDUR NJÁLU
eftir Barða Guðmundsson
Það ev ekki venjulegt, að fræðilegar
bækur eins og þessi, séu svo spennandi,
að maður lesi þær með svipaðri eftirvænt-
ingu og skáldsögur. Bókin um höfund
Njálu er mestmegnis ritgerðir, sem birzt
hafa í blöðum og tímaritum undanfarin
tuttugu ár, en nokkrar þeirra voru þó
óprentaðar þegar bókarhöfundur lézt. —
Allar munu þær að verulegu leyti unnar
til undirbúnings meira verki, sem höf-
undi entist ekki aldur til að vinna, en
hvað sem því líður, þá eru þær stór-
skemmtilegar aflestrar í þeim búningi,
Fræðimenn munu taka kenningum
Barða Guðmundssonar mjög misjafnlega,
en hann heldur því fram, að höfundur
Njálu sé Þorvarður Þórarinsson. Hafi
hann fellt fjölmörg atvik sinnar eigin ævi
í söguferil, sem að einhverju leyti sé
byggður á arfsögnum um þæ persónur,
sem sagan fjallar um.
Bláu
eru sterkar
og þœgilegar
Skjólfatagerðin h.f.
Bolholti 6
Mér hefur alltaf þótt Sturlunga í heild
óaðgengileg, aldrei getað fylgzt að fullu
með öllum þeim ættarböndum og mála-
flækjum, sem þar er frá skýrt. En við
lestur á ritgerðum Barða Guðmundsson-
ar er sem margir þræðir greiðist og skýr-
ist, svo að hið mannlega verður ljósara
fyrir óbreyttan lesanda, sem aðeins les
fornsögurnar sér til skemmtunar, en ekki
til fræðimennsku. Barði rekur saman at-
burði, sem lýst er í Sturlungu og Njáls-
sögu og vefur þessa tvíhliða atburðarás
saman á svo skemmtilegan hátt, að aldrei
slaknar á athygli lesenda. — S. Th.
EFNI:
bls.
Konan og heimiliö (sr. Jón Auðuns .......... 3
Handavinnusýning (Sigr. Thorlacius) ......... 7
Okkar á milli sagt (Rannveig Þorsteinsdóttir) 10
Hver dagur var kraftaverk (Sigr. Thorlacius) 12
Lög um oriof húsmæðra ...................... 15
Silfurstjarnan (saga, niðurl.) ............. 16
Skrúðgarðar (niðurl. Óli Valur Hannesson) .... 20
Heimilisþáttur (Sigríður Kristjánsdóttir) .... 23
Manneldisþáttur (Kristjana Steingrímsdóttir) 25
Saga Kvenfélagasamb. ísl. (Svava Þórleifsd.) 31
Kvenfélag Selfoss (Sigr. Thorlacius) ....... 36
Utdráttur úr fundargerð 4. formannaf. K.í... 38
Um bækur (Sigr. Thorlacius) ................ 40
Orðsending ................................. 40
ORÐSEISDING
TIL KAUPENDA HÚSFREYJUNNAR
Afgreiðsla „Húsfreyjunnar" vill vekja athygli
á, að nauðsynlegt er, að tilkynna bústaðaskipti,
ef unnt á að vera að senda kaupendum blaðið.
Á það skal bent að gjalddagi blaðsins er fyrir
1. október ár hvert.
Þar sem nokkrir kaupondur eru í sama kven-
félagi er mjög æskiiegt, að einhver félagskona
taki að sér innheimtu. Með því móti sparast
póstgjöld og fyrirhöfn við að senda út póstkröf-
ur tii hvers einstaklings, enda óhjákvæmilegt
að bæta þá póstkröfugjaldinu við árgjaldið.
Skilvísi kaupendanna er eitt höfuðskilyrði fyr-
ir því, að fjárhagur blaðsins sé sæmilegur og
hægt sé að gera það sem bezt úr garði. Þeir
fáu, sem enn hafa ekki gert skil fyrir 10. árg.
(1959) eru vinsamlegast beðnir um að gera það
sem allra fyrst.
40
HÚSFREYJAN