Húsfreyjan - 01.07.1966, Qupperneq 6

Húsfreyjan - 01.07.1966, Qupperneq 6
livort lyf lians eðia kjarnorka sé „góð“ eða „iH“ fyrir mannkynið. Því liefur skilningurinn á því, að vís- indi megna ekki að sporna við misnotkun þeirra afla, sem þau liafa leyst úr læðingi, vakjð trúaráhuga milljóna manna. Þessi nýi trúaráhugi sannar, að margir gera sér grein fyrir því, að á kjarnorkuöld þarfn- ast maðurinn umfram allt sterkara sið- gæðislegs aðlialds til að stjórna þeim geig- vænlegu öflum, sem hann hefur sjálfur framkallað. Mörgum finnst sem kirkjan, þetta aldna vígi trúarinnar, gerizt illa leikin af árásum vísindalegrar vantrúar undanfarin þrjú hundruð ár. Af því hafa margir álitið, að trú og vísindi væru ósamrýmanleg, að þekk- ing og trú gætu ekki farið saman. Ekkert getur verið fjær hinu sanna. Yís- indi og trú eru ekki andstæð öfl, heldur systur. Vísindin reyna að kynnast sköpun- arverkinu sem bezt, trúin reynir að skilja skaparann betur. Vísindin reyna að beizla náttúruöflin í kring um manninn, trúin reynir að beizla öflin, sem húa hið innra með honum. Vísindin eiga ekki sérstaka siðfræði, en í skoðun sinni og leit að nýjurn skilningi á sköpunarverkinu, hafa þau mótað verð- mæti siðfræðilegs eðlis. Þau hafa skapað sannsögli og auðmýkt. Öll sönn vísindi lialda gildi sínu meðal allra þjóða og um allan aldur og vísindalegur sannleikur er viðurkenndur, þegar búið er að sannreyna hann. Hafi maðurinn nokkurn tíma kom- izt nærri því að svara spurningu Pílatusar, „Hvað er sannleikur?“, ])á hafa það verið vísindin, sem vörðuðu leiðina. Sjálfur trúi ég skilyrðislaust á endanlegan sigur sann- leikans. Ég er viss um, að jafnframt því, sem við lærum meira um náttúruna, verða almennt viðurkenndar vísindalegar niður- stöður til þess að móta liin almennu, mann- legu markmið og framkomu fólks. Efnishyggjumenn nítjándu aldarinnar og Marxistískir arftakar þeirra á tuttug- ustu öldinni, reyndu að sannfæra okkur um það, að þegar við fræddumst frekar um sköpunarverkið með tilstyrk vísind- anna, þá gætum við lifað án trúar á skap- arann. Enn sem komið er, er þó niðurstað- an sú, að nteð hverju nýju svari, sem við fáurn, vakna nýjar spurningar. Því betur sem við skiljum margbreytileik frumeind- anna, eðli lífsins eða ntikilfengleik sólkerf- anna, þess meiri ástæðu höfum við til að undrast dýrð sköpunarverks Drottins. En það er ekki lotningin og aðdáunin cin, sem skapar okkur þörf á guðstrú. Mað- urinn þarfnast trúar, eins og liann þarfnast fæðu, vatns og lofts. Þrátt fyrir öll vísindi heimsins þörfn- umst við trúarinnar á Guð. Við þörfnumst liennar í livert sinn og trúin á okkur sjálf ])rýtur. S. Th. j>ýddi. Páll Ólafsson: Xífwwut Tíminn mínar treinir ævistundir, líkt sem kemba’ er teygð við tein treinir hann mér sérlivert mein. Skyldi’ liann eftir eiga’ að hespa, spóla og rekja mína lífsins leið, láta’ í höföld, draga’ í skeið? Skyldi’ liann eftir eiga’ að slíta, linýta, skammel troða, skeið að slá, skjóta þráðum til og frá? Skyldi’ hann eftir eiga mig að þæfa, síðan úr mér sauma fat, síðast slíta á mig gat? Skyldi’ liann eftir eiga mig að bæta? Það get ég ekki gizkað á; en gamall held ég verði þá. 2 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.