Austurland - 31.08.2001, Síða 7

Austurland - 31.08.2001, Síða 7
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 7 Myndbandstæki og brú í björtu báli - með vinarkveðju til afmælisbarnsins Fyrir mörgum árum var ég á ferðalagi í Englandi og þurfti að bíða í tvær klukkustundir á lestar- stöð í Woking, smábæ rétt hjá Fleathrow flugvelli. Ástæðan var sú að á leiðinni til næstu stöðvar á minni leið stóð jámbrautabrú í björtu báli. Af og til komu til- kynningar í hátalarakerfi stöðvar- innar með skýringum á töfinni og fréttum af slökkvistarfi. Flugher hennar hátignar var mættur slökkviliði til fulltingis og tæmdi skjólur úr þyrlum yfir eldinn, að því er manni skildist af bjöguðum tóni hátalarakerfísins. Á endanum var tilkynnt að búið væri að ráða niðurlögum eldsins og lestin frá Waterloo væri væntanleg innan skamms. Brúin var sem sé fær og á leiðinni skimaði ég út um allt eftir ummerkjum um eldinn en sá ekkert. Þegar áfangastað var náð í Salisbury vildi ég endilega kveikja á BBC eða Sky og reyna að sjá myndir af þessu. Heima- menn sögðu mér að það væri öruggt mál að þessar stöðvar myndu ekki segja múkk um þenn- an atburð. Kannski kæmi smá innskot á lítilli svæðisstöð en líkast til bara lítil frétt í "dreif- býlisblöðum". Það stóð heima. Bruninn komst ekki í heimsfréttir, ekki í breskar innanlandsfréttir og ekki á dagskrá svæðisstöðva á suður-Englandi. Þessi saga rifjast oft upp fyrir mér þegar fréttamat og afstæði þess ber á góma. Hasarfengnar aðfarir hersins við slökkvistarf urðu ekki að frétt í sýslunni, þama rneðal breskra. Á íslandi er nóg að foreldrafélag gefi skóla myndbandstæki til að komast á baksíðu bæjarblaðsins. Við getum ímyndað okkur hvað hefði orðið fyrsta frétt í kvöldfréttum RÚV ef íslenskt samgöngumannvirki hefði bmnnið svo ákaft að þyrlur Bandaríkjamanna á Keflavíkurflug- velli hefði þurft til að slökkva. Já - það er afstætt hvað fjölmiðlum finnst vera umfjöllunarefni. Vikublaðið Austurland, sem nú stendur á fimmtugu, hefur alltaf haft sitt mat. Það mat hefur helg- ast númer eitt af þeim markaði sem blaðið hefur sinnt en mark- hópurinn er lítill og einsleitni lesenda mikil. Austurland er lausn í fjölmiðlun sem er klæðskera- saumuð fyrir svona markað og fjallar um það sem miðlar á landsvísu láta eiga sig. Blaðið endurspeglar austfirskt umhverfi á miklu ítarlegri hátt en einstaka fréttaskot á ljósvakanum og inn- síðufréttir í dagblöðunum gera. Allt plássið í Austurlandi er helg- að landsfjórðungnum og íbúum hans. Það er pláss fyrir Austur- land í Austurlandi. Það hefur reyndar verið mis- Steinþór Þórðarson munandi eftir ritstjórum og tíma- bilum hversu mikið pennar Aust- urlands hafa blandað sér í um- ræðu á landsvísu. Þó má ábyrgj- ast, ef eitthvað blað frá 50 ára sögu þess er valið af handahófi, að á því megi sjá í sviphendingu hverjum það er ætlað - þ.e. Aust- firðingum. Öllum vangaveltum um mikilvægi svona blaðs vil ég því svara með spurningunni; eru aðrir fjölmiðlar að sinna þessu svæði með þeim hætti að mér (og nú svarar hver fyrir sig) þyki fullnægjandi? Eg segi nei og vil sjá Austurland í útgáfu í önnur 50 ár og rekast á vini og vandamenn þar á baksíðunni - jafnvel að afhenda myndbandstæki. Sparisjoður Noröfjarðar sendir Austurlandi drnaðaróskir í tilefni 50 óra afmœlisins og þakkar samstarfið ó liðnum órum SPARISJOÐURINN SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR -jýrirþig ogþírn NORÐFIRÐI OG REYÐARFIRÐI Austurland í "denn" Ekki veit ég hvemig maður hefði komist á legg án Austur- lands. Hvemig átti maður að vita hvað var í bíó og hvenær banan- amir kæmu í Allabúð? Án blaðs- ins vissi maður ekkert í sinn haus og ekki einu sinni hvenær skólinn átti að byrja og enn síður hvaða bollaleggingar voru í gangi með sundnámskeiðin. Með því að lesa Austurland í hverri viku hafði maður allt á hreinu og vissi bæði hver stjómaði lúðrasveitinni og hver formaður hestamannafélags- ins var. Hafandi alist upp með mál- gagnið innan seilingar vissi ég sitthvað um innviði þess þegar ég fór að fikta við að ritstýra því í kennaraverkfalli árið 1995. Elma Guðmundsdóttir, sem þá var að hætta sem ritstjóri og Smári Geirsson ritnefndarmaður, komu mér á sporið og endirinn varð sá að ég stýrði blaðinu til haustsins 1997. Þetta var tími töluverðra breytinga á skipulagi og vinnu- brögðum við útgáfuna en efnistök og yfirbragð blaðsins held ég að hafi breyst minna. Svigrúm skap- aðist til að ráða blaðamann í hlutastarf sem stundum varð meira en fullt starf þegar rit- stjómin var farin að taka að sér ýmis tilfallandi útgáfuverkefni. Elma kom aftur og nú í hlutverk blaðamannsins og ýmsir lausa- pennar voru viðloðandi blaðið í lengri og skemmri tíma, einkum þeir Pjetur St. Arason, Gunnar Ólafsson og Guðmundur R. Gísla- son. Ritnefndarmenn, einkum Smári Geirsson, Guðmundur Bjamason og Einar Már Sigurðar- son vom einnig áberandi í blaðinu svo og ötulir greinahöfundar eins og Hjörleifur Guttormsson. Aust- urland átti víða hauk í homi í ná- grannabyggðum Neskaupstaðar og gjarnan birtust pistlar frá Jóhanni Jóhannssyni á Seyðis- firði. Ari Hallgrímsson á Vopna- firði og Magnús Stefánsson á Fá- skrúðsfirði vom blaðinu oft innan handar með fréttir og annað efni og margir eru ótaldir. Það var því fjarri því að Austurland væri eins manns fréttablað á þessum tíma sem undirrituðum þótti afar mik- ilvægt. Blaðið átti að vera vett- vangur margra radda og skoðana- skipta en ekki einræða ritstjórans og einhliða miðlun á skoðunum hans. Það má nærri geta að oft hafi verið líflegt á ritstjórnarskrifstof- unni í Brennu. Ritstjómarstarfið fól í sér mikil samskipti við fólk um allan fjórðung og í því starfi kynntist maður fjöldanum öllum af góðu fólki. Allir vildu greiða götu Austurlands. Ég á ekki von á að það hafi breyst. Lukku til Austfirðingar góðir. Austurland hefur náð þeim áfanga að hafa verið hluti af tilveru okkar í hálfa öld. Önnur sambærileg blöð, sem víða finnast allt landið um kring, hafa ekki gert betur - Austurland er aldursforsetinn. Þetta er tilefni til að fagna og aðstandendum blaðsins, starfsfólki, ritnefnd og öðrum velunnurum, svo og Aust- firðingum öllum vil ég senda árnaðaróskir í tilefni þessara tímamóta. Megi Vikublaðið Austurland og austfirsk fjöl- miðlun dafna vel um ókomin ár. Verkmeimtaskóli Austurlands Meistaraskóli / Iðnmeistaranám Kenndar verða almennar bóklegar- og stjórnunargretnar. Kennt verður í lotum um helgar og í mynd- kennslubúnaði VA eftir því sem við verður komið. Kennsla hefst föstudaginn 14. sept. Skráning stendur yfir. Upplýsingar og skráning hjá Marinó í síma 477-1285 og 477-1620 Skólameistari

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.