Austurland - 31.08.2001, Síða 9
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001
9
A tímamótum
Ekkert austfirskt blað hefur
lifað jafn langan tíma og Austur-
land og mér er til efs að nokkuð
annað landsmálablað eigi svo
langa sögu. Þegar blaðið hóf
göngu sína fyrir hálfri öld hafði
ekkert blað verið gefið út í fjórð-
ungnum um langa hríð, þrátt fyrir
að blaðaútgáfa á Austurlandi hafi
hafist nokkru fyrir aldamót og er
það merkileg saga sem rakin var
að nokkru í jólablaði Austurlands
fyrir nokkrum árum.
Blaðið er elst þeirra svokölluðu
bæjar- og héraðsfréttablaða sem
gefin eru reglulega út á landinu.
Það er engin launung að Aust-
urland var upphaflega gefið út í
pólitískum tilgangi og var blaðið
skeleggur málsvari sósíalista um
langt skeið. Pólitísk skrif fyrsta
ritstjóra blaðsins, Bjama Þórðar-
sonar, náðu langt út fyrir að vera
bundið við bæjarmálin í Neskaup-
stað eða Austurland þrátt fyrir
grein sem birtist á fyrsta tölu-
blaðinu 31. ágúst 1951. Forsíður
blaðsins voru stundum undir-
lagðar af landsmálapólitík og
jafnvel á stundum heimspólitík.
Bjama var ekkert óviðkomandi
þegar hagsmunir hinna minni
máttar vom í húfi og gilti þá engu
hvort vegið var að þeim frá
Alþingi eða utan úr hinum stóra
heimi.
Það fer ekki hjá því að blað
breytist á 50 áram. Þó í megin-
dráttum hafi stefnu Bjarna verið
fylgt þá urðu alltaf einhverjar
breytingar með nýjum ritstjóram
sem hafa þó ekki verið fleiri en
átta á þessum 50 áram. Breyting-
ar í fjölmiðlaheiminum á síðustu
áram hafa verið örar og kallað á
annars konar blað, blað óháð
pólitískum skoðunum, blað með
fleiri stuttum fréttum, viðtölum
og síðast en ekki síst myndum að
ógleymdu því að blað þarf að
vera að hluta til í lit. Því hefur
löngum verið haldið fram að
myndir hafi skipt litlu máli fyrir
Bjama Þórðarson og eftir honum
haft að myndir væra fljótlesnar.
Auðvitað var það á margan hátt
erfiðleikum bundið að hafa
myndir í blaðinu. Það þurfti að
senda filmur til framköllunar til
Reykjavíkur. Aftur austur og
síðan aftur suður til að vinna
myndimar á blýplötu. Myndir af
atburðum líðandi stundar vora því
afar fátíðar. Það var líka jafn
eðlilegt að blaðið hefði mikinn
Norðfjarðarsvip og þar áttu aug-
lýsingarnar stóran hlut að máli,
því auglýsingum utan Neskaup-
staðar var ekki mörgum til að
dreifa. Allt til dagsins í dag hefur
það verið svo að flestar auglýs-
ingar blaðsins era úr heimabyggð
og blaðið hefur átt því láni að
fagna að hafa traustan og góðan
hóp auglýsenda þó á stundum þær
hafi frekar verið birtar af velvilja
til blaðsins en af þörf á auglýs-
ingunni sem slíkri.
Austurland hefur nú rannið sitt
skeið sem Norðfjarðarblað þó svo
að útgáfa nýs blaðs sé fyrirhuguð
þar áfram. Nýtt Austurland verð-
ur óháð blað sem birta mun fréttir
af öllu Austurlandi. Útgefendur
þessa nýja blaðs gefa sér ákveð-
inn tíma til að sjá hvort tilraunin
heppnast og á því hef ég fulla trú.
Sjálf hef ég átt góðar stundir
með blaðinu frá því að ég seldi
það fyrst 10 ára gömul eða svo.
Samfylgdin er því þökkuð af
heilum hug og nýju blaði óskað
velfamaðar.
Elma Guðmundsdóttir
Úr 40 ára afmælisblaðinu
'Tí^jjstu
rland
barat
Heig'
Seljan\
“A3ói«
utverki að gegrta ’i
Eysteinn Jónsson
‘Álít
er
Birgif
Óh™Sm!lfös,urnsi‘°i“"-:
VllhJalmur Hjáimarsson
‘TH hamingju með afmælið”
Haraidur Bjarnasonl
Úr blaðinu
fyrir 50 árum
Til lesenda
Það eru nú liðin allmörg ár síðan blaðaútgáfa
Austfirðinga lagðist niður að mestu. Aður hafði þessi
starfsemi um langt skeið staðið með miklum blóma og þá
fyrst og fremst á Seyðisfirði, þar sem prentsmiðjur höfðu
verið reknar áratugum saman og landsþekkt blöð verið
gefin út undir forystu landsþekktra athafnamanna og
menntamanna.
Nú um margra ára skeið hefur ekki verið um neina
blaðaútgáfu á Austurlandi eða nánar tiltekið á öllu
svæðinu frá Vestmannaeyjum til Akureyrar að ræða, að
undanskildu tímariti Fjórðungsþings Austfirðinga, sem
er allt annars eðlis en hér er um rætt.
Þetta ástand getur ekki talist vanzalaust. - Blöð eru
nútímamanninum nauðsynleg og það er illt fyrir heilan
landsfjórðung að vera algjörlega upp á aðra kominn í
þeim efnum.
Blaði því, er hér hefur göngu sína, er ætlað að bæta úr
þessari vöntun og ef til vill gæti útkoma þess orðið til þess
að fleiri Austfjarðablöðum yrði hleypt af stokkunum.
Eins og nafnið bendir til, er blaði þessu ætlað að vera
fjórðungsblað. Það mun fyrst og fremst ræða sérmál
Austurlands bæði fjórðungsins í heild og einstakra
byggðarlaga. Reynt verður eftir föngum að hafa efni
blaðsins fjölbreytt og almennu efni ætlað mikið rúm.
Einkum verður Iagt kapp á að í blaðinu komi sem mest af
fréttum af Austurlandi, en engin áherzla verður lögð á
aðrar fréttir, hvorki innlendar né erlendar.
Þó blaðið sé gefið út af pólitízkum félagsskap, mun
hendinni ekki slegið á móti greinum utanfiokksmanna
um málefni Austurlands.
Framtíð þessa blaðs er undir því komin, að
Austfirðingar kaupi það og lesi. - Austfirðingar heima og
heiman eru því hvattir til að styðja þessa viðleitni til að
endurvekja blaðaútgáfu Austfirðinga, með því að gerast
áskrifendur að blaðinu.
ÚTGEF.
r
Olíuverslun Islands
sendir vikublaðinu
Austurlandi kveðjur
í tilefni 50 ára
afmælisins og
þakkar áralangt
og gott
samstarf
olis