Austurland - 31.08.2001, Page 20
Upptökustoðvirkin eru wikil mannsvirki og gefa myndirnar aðeins litla grein fyrir umfangi þeirra.
Stœrri myndin er tekin ofan við Drangaskarð og til suðurs og sýitir vel garðinn og keilurnar og
hin sýnir hvernig upptökustoðunum hefur verið raðað ífjallið.
Uppsetning á eítir áætlun
Framkvæmir við uppsetningu
upptökustoðvirkja í fjallinu ofan
við Neskaupstað eru nokkuð á
eftir áætlun. Verkinu átti að ljúka
í haust en ýmislegt hefur orðið til
að seinka framkvæmdum. Mikið
jarðvatn hefur tafið framkvæmdir,
snjóa leysti seint og veðrið í
sumar hefur ekki flýtt fyrir.
Bæjarbúar telja flugmann þyrl-
unnar einstakan snilling því
stundum hefur þyrlan hreinlega
horfið í þoku en alltaf skilað sér
til baka.
Búið er að flytja mest af
stoðvirkjunum upp en eftir að
reista nokkuð af þeim. Þyrlan
sem notuð er við flutningana
hafði í lok júlí farið 474 ferðir til
og frá fjallinu og í ágúst voru
ferðirnar mjög margar.
Alls hafa um 18 manns unnið
við þessar framkvæmdir, sjö
frakkar, tveir ítalir og átta
íslendingar.
Myndimar tók einn af
frökkunum.
Atmælisbiaö
Elsta landsmálablað lýðveldisins
Stofnað 1951
Austurland
Fjarðabyggð 31. ágúst 2001 Verð í lausasölu kr. 250-
/
Akvörðun um Hafið
tekin í vikunni
Eins og fram hefur komið
komu fulltrúar frá kvikmynda-
félaginu Sögu ehf.
hingað austur í byrj-
un júní. Tilgangurinn
var að kynna sér
aðstæður til kvik-
myndagerðar. Það er
Hafið byggt á Ieikriti
Olafs Hauks Símon-
arsonar og nú í end-
urgerð höfundar og
Kormáks Baltasar,
sem fyrirhugað er að
kvikmynda.
Að sögn Lísu Kristjánsdóttur
hjá Sögu ehf. þá mun hópur fólks
vera þessa dagana á Norðfirði að
kynna sér staðhætti og annað
frekar og verður nú væntanlega
tekin endanleg
ákvörðun um hvort
kvikmyndin verður
tekin hér eða ekki.
Hún sagði að til-
kynning um það yrði
gefin út fljótlega,
væntanlega í næstu
viku.
Ef af verður má
búast við að verkið
taki að minnst kosti
átta vikur og má búast við að
nokkuð mikið verði umleikis því
starfsfólk verður um 30 talsins
auk leikara.
Einstök 6. braut
Ný bru yfir Norðfjarðará
tilbúin í desember
Allt útlit er fyrir að almennri
umferð verði að nýju hleypt á
brúna yfir Norðfjarðará eftir helgi.
Þungaflutningar fara þó áfram
yfir bráðabirgðaveg sem settur
var yfir ána neðar. Byrjað verður
á byggingu nýrrar brúar í næstu
viku. Hún verður 35 metrum ofan
við gömlu brúna og verður 36
metrar að lengd. Aætlaður
kostnaður við brúarsmíðina er um
60 milljónir króna auk þess sem
breyta þarf vegastæðinu beggja
vegna hennar. Kostnaður vegna
byggingar 1,5 km langs vegar að
brúnni er áætlaður 40 milljónir
króna, svo heildarkostnaður nemur
um 100 milljónum króna.
Samkvæmt áætlun á að ljúka
við brúna í desember þannig að
hægt verði að taka hana í notkun,
en slitlag og lokaframkvæmd er á
framkvæmdaáætlun vorið 2002.
Norðfjarðarbrú var á áætlun og
stóð til að bjóða hana út núna og
ljúka smíði hennar næsta vor, en
framkvæmdinni er nú flýtt og
mun brúarvinnuflokkur frá Vega-
gerðinni byggja brúna.
I úrfellinu sem gekk yfir Aust-
firði 21. ágúst s.l. flæddi Norð-
fjarðará yfír bakka sína með þeim
afleiðingum að brúin yfir ána var
að komin að hruni og áin flæddi
yfir golfvöllinn með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum. Völlurinn var
um tíma óleikfær vegna aur- og
malarburðar úr ánni. Ain ruddi
m.a. yfir völlinn hluta efnishauga
sem biðu flutnings burt úr ánni
og var áttunda braut vallarins al-
gjörlega umlukun vatni. Þá var
völlurinn að stærstum hluta þak-
inn leir. AU nokkuð hefur grafist
úr bökkum árinnar að sunnan og
vestanverðu, en stjórn GN hefur
margsinnis bent á nauðsyn þess
að gera ráðstafanir til að verja
völlinn frekari ágangi árinnar.
Félagar í G.N. hófust þegar
handa um leið og völlurinn varð
fær við að lagfæra og snyrta það
sem skemmdist, en í sumar hefur
völlurinn verið í topp ástandi og
staðist samjöfnuð við það sem
best gerist annars staðar.
Einar Már úr þingflokknum?
Á heimasíðu DV í fyrradag
kemur fram að mjög sé þrýst á
Einar Má Sigurðarson að segja
sig úr þingflokki Samfylkingar-
innar. Vitnað er í ónafngreinda
einstaklinga, sem kallaðir eru
forkólfar Samfylkingarinnar á
Austurlandi. Hjá öðrum þeirra
kemur fram að „Menn séu búnir
að fá alveg upp í kok af fram-
komu flokksforustunnar í raforku-
málunum, bæði því sem snúi að
virkjunarmálunum og eins hvað
varðar álversmálið." DV segist
hafa fyrir því öruggar heimildir
að talsvert hafi verið um funda-
höld almennra flokksmanna fyrir
austan vegna þessa og rætt um
hugsanlegar hópuppsagnir úr
Samfylkingunni. Annar sagði að
„Það væri sama hvort það væri
formaðurinn eða einhverjir aðrir
úr forustunni, þeir berjast allir
gegn hagsmunum okkar í þessum
málum og við sjáum ekki að við
eigum samleið með þessu liði.“
Ekki náðist í Einar Má vegna
málsins, en hann er staddur
erlendis í sumarleyfi.