Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Side 11
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
5
mentaskóla í Woodycliff Wool í South Orange í Bandaríkjunum.
Gat liann þá lítið átt við skák, nema hvað hann einstöku sinnum
fjekk tækifæri til að sína þessa frábæiu gáfu sína.
Árið 1909 ferðaðist Capablanca um Bandaríkin. M. a. kom
liann til New-York, St. Louis og New-Orleans og tel'ldi hann á
þessum stöðum. Af samtíðaskákum vann hann 560, tapaði 12 og
gerði 18 jafntefli, en í einvígum vann hann 126 skákir, tapaði 2 og
gerði 2 jafntefli. Eftir þetta liáði hann einvígi við skákmeistara
Ameríku, Frank Marshall, og sigraði glæsilega, með +8-r-l = 14.
Árið 1910 vann hann 1. verðlaun og skákmeistaratignina í New-
York á skákþingi þar.
Capablanca kom í fyrsla sinn til Evrópu í mars 1911, er hon-
um var boðin þátttaka í alheims-meistaraþinginu í San-Sebastian.
Vakti hann þar jafnmikla undrun og aðdáun, ekki síður en Banda-
ríkjamaðurinn H. N. Pillsbury á meistaraþinginu í Hastings 1895.
Vann hann þar 1. verðlaun, þótt flest-allir bestu skákmeistarar þess
tíma keptu á því þingi. Tapaði liann aðeins einni skák, móti Pól-
verjanum Rubinstein.
Nú ferðaðist hann um alla Evrópu og sýndi list sína. í þessari
för vann hann, á 35 samtíðaskáksýningum, 821 skák, tapaði aðeins
37 og gerði 97 jafntefli. Var nú Capablanca orðinn heimsfrægur og
þegar nefndur meðal keppenda að heimsmeistaratigninni. — Nú get-
ur hans samt ekki aflur fyr en árið 1913 á meistaraþingi í New-
York. Par vann hann 11 skákir af 13 og hlaut 1. verðlaun. Ekki
fjekk hann þó nema 2. verðlaun á meistaraþingi, sem nokkru síðar
var haldið í Habana; tapaði hann þar tveim skákum, annari fyrir
Pólverjanum D. Janowski og hinni fyrir Frank Marshall, sem hlaut
þar 1. verðlaun.
Síðast á árinu 1913 byrjaði Capablanca aðra ferð sína til Ev-
rópu. Var í þeirri ferð merkust dvöl hans í St. Pjetursborg, þar
sem hann tefldi við — og sigraði — alla mestu skákmeistara Rússa.
í apríl 1914 tók hann þátt í stórmeistaraþinginu, sem þá var háð í
Pjetursborg. Stóð hann þar lengi í broddi fylkingar, þar til hann
tapaði tveim skákum, annari móti heimsmeistaranum, Dr. E. Lasker,
og hinni móti skákmeistara Pýskalands, Dr. S. Tarrasch. Hlaut hann
þar 2. verðlaun, en Lasker 1.
Éftir þetta sneri Capablanca heim á leið. Kom hann þá við í
Buenos Aires og var þar tekið á móti honum með mikilli viðhöfn.
I janúar 1916 hlaut hann 1. verðlaun á meislaraþingi í New-
York og í desember 1918 einnig 1. verðlaun á sama stað. í mars-