Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Blaðsíða 29

Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Blaðsíða 29
ÍSLENSKT SKÁKBLAí) 23 SKÁKENDIR. Skákenda þenna hefir pólski skákmeistarinn D. Grzepiorka búið til. Hafa margir skákmenn spreylt sig á að ieysa hann, en orðið þeim örðugur viðfangs. Með- al þeirra, er hafa reynt sig á honum, er Dr. E. Lasker og Dr. Tatrasch, og er sagt, að þeim hafi reynst hann eifið- ur. Skákendinn birtist fyrir þrem árutri í pólsku skákblaði og gat enginn af kaupendun- uni sent ijetta lausn. — Mundu lesendur íslensks skákblaðs geta gert betur? Væri ánægju- legt, ef lesendur vildu senda ráðningarnar til ritstjóra ísl. skákblaðs. TILLESENDA, Pað eru vinsamleg tilmæli vor til yðar, skákvinir góðir, að þjer á ýmsan hátt eflið og styrkið þessa viðleitni vora að halda úti ís- lensku skákblaði, Petta getið þjer gert með ýmsu móti. í fyrsta lagi er það ósk vor og von, að þjer Ieggið yður fram að útbreiða blaðið í nágrenni yðar. Eins og þjer sjáið á þessu 1. hefti er ís- lenskt skákblað ekki aðeins ætlað æfðum skákmönnum, lreldur er það einnig samið við liæfi byrjenda í skák. Það eru því tilmæli vor og krafa — og að oss virðist rjettmæt — að þjer reynið til að útbreiða blaðið meðal þeirra, sem lítið eða ekkert hafa enn fengist við skák. Það velfur æði mikið á yður í þessu efni, því að lekjur Skáksambandsins veiða litlar í fyrstu, en kostnaður við útgáfu blaðsins mikill. Vjer vitum, að í bæjum og í sveitum landsins-eru fjölmargir, sem tefla skák, og er brýn nauðsyn á leið- beiningum þeirn, sem blað þetta hefir að bjóða. Enda er verð blaðsins ekki svo hátt, að öllum sje ekki kleyft að kaupa það. Vjer væntum einnig þess, að þjer styðjið það með því, að senda því l'nur, t. d. um skákiðkanir í nágrenni yðar, tefldar skákir og skákdæmi og þvíuml. Fyrirspurnum mun og verða svarað eft r bestu getu.

x

Íslenskt skákblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.