Íslenskt skákblað - 01.05.1926, Blaðsíða 8

Íslenskt skákblað - 01.05.1926, Blaðsíða 8
78 ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ bow hefir teflt ágætlega síðastliðið ár, og er það 4. skifti, að liann nær 1. verðl. á árinu. Hann er ungur maður (37 ára), svo að skák- heimurinn býst við miklu af honum, þegar fram í sækir. Næstur varð Lasker. Tefldi hann af sinni gömlu snild, en kvað þó hafa verið óheppinn um mitt þingið. Priðji varð skákheimsmeistarinn Capablanca. Orsakirnar til þess telja flestir það, að hann tók ekki kappleik þennan nógu al- varlega í fyrstu. T. d. notaði hann frídag sinn til þess að ferðast til Pjetursborgar og tefla þar samtímaskákir. Var hann 30 tíma á ferðalagi, enda tapaði skák (á móti Werlinski), þegar heim koni. Um tíma hjeldu menn, að hann næði tæplega verðlaunum. Sýhir það þá því betur snild hans, er hann náði þó 3. verðlaunum. Marshall sýndi enn þá, að hann sje jafnan í allra fremstu röð stórmeistaranna. Tartakower, Torre og Reti hafa einnig leyst sig vel af hólmi. — Torre, sem er maður tvítugur, telur Capablanca hinn tilvonandi skákheimsmeistara. Rússarnir hafa, auk Bogoljubows, teflt við glæsilegan orðstír á þinginu. T. d. er Romanowski fremri stórmeistaranum Grúnfeld, lljin-Genewski jafn honum, en Bogatirschuk fremri stórmeisturunum Rubinstein og Spielmann, Werlinski jafn þeim. — Nánari skýringar gefur taflan hjer að framan. Pótt Bogoljubow hafi unnið hjer fyrstu verðlaun, mun hann samt enn þá ekki talinn jafningi þeirra Capablanca eða Lasker, jafn- vel ekki Aljechin, en hann var því miður ekki á þessu þingi. Pó býst Bogoljubow við, að fá að keppa á næsta ári um skákheims- meistaratignina og kvað hann ætla þegar að fara að búa sig undir einvígið. S K Á K I R Nr. 21. Biskupsleikur. 4. c2—c3 f7—f5 5. d2—d3 Rg8—f6 6. e4Xf5 Bc8Xf5 7. d3—d4 e5—e4 8. Bcl—g5 d6—d5 BRUHL GREIFI. PHILIDOR (blindandi). Hvítt: Svart: e7—e5 c7—có 1. e2—e4 2. Bfl—c4 3. Ddl—e2 Philidor hefir pegar náð uppáhalds stöðu sinni, nfl. óslitinni peðaröð. Rjettur Ieikur í 3. , , , svona stöðu. d7—d6 9. Bc4—b3 Bf8—d6 10. Rbl-d2 Rb8-d7

x

Íslenskt skákblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.