Íslenskt skákblað - 01.12.1926, Page 3
f SLENSKT SkJlKBLÁB.
ÚTOErANDI : SKÁKSAMBAND ÍSLANDS, AKUnETHI.
II. árg.
Akureyri 1. des. 1926.
1.
heftl.
ADOLF ANDBRSSKN.
1818—1870.
t>að er að vísu að bera í bakkafullan lækinn, að minnast þessa
fræga skákkonungs hjer, þótt á hinn bóginn þess væri vert að rita
um hann langt mál. En bæði er, að nafn hans er kunnara víðs-
vegar um heim en flestra eldri skákmeistara, og um hann hefir
verið ritað meira en flesta aðra. Og minningin um skáksnilli hans,
fegurð og kraft á því sviði, lifir áreiðanlega meðal allra skákmanna
meðan skák verður tefld.
Adolf Anderssen er fæddur í Breslau á Þýskalandi 6. júlí 1818.
Ólst hann þar upp og bjó þar síðan alla æfi. Yfirgaf hann aldrei
fæðingarborg sína, nema til þess, við og við, að flytja skáksnilli
og orðstír hennar út um allan heim. Þessi skákferðalög voru hon-
um áhugamál, því að hann unni skáklistinni hugástum, þótt
hann setti aldrei á odd skákfrægð nje skáksigra. Þetta einkennir
Anderssen — eins og að vísu Morphy — frá hinum síðari skák-
meisturum, án þess þó að skugga sje á þá kastað. En tímarnir
breytast og mennirnir með. —
Ungur hneigðist Anderssen að skáktafli, og þegar í bernsku
iðkaði harm skák mikið. Var hún ávalt, frá fyrstu dögum hans og
til æfiloka, heitasta áhugamál hans. En þrátt fyrir ást sína á skák-
listinni, var hann samt hinn ástundunarsamasti námsmaður skólaár
sín við latínuskólann í fæðingarborg sinni, og var auk þess hinum
bestu gáfum gæddur.
Við skóla þenna tók hann stúdentspróf með ágætis einkunn.
Síðan tók hann magisterpróf og fjekk kennarastöðu í fæðingarborg
sinni. Nokkru síðar hlaut hann prófessors- og doktors-nafnbót. —
A þessum árum var all margt góðra skákmanna í Þýskalandi.
Sköruðu þar einkum frain úr þeir v. Bledow og v. d. Lahsa, —
höfundar að Handbuch des Schachspieles, — Majet, Löwenthal
o. fl. — Eins og geta má nærri, varð hann framan af að lúta í
'ægra haldinu fyrir slíkum köppum. Þroskaðist þó taflstyrkur hans
brátt, er hann tók að þreyta kapp við bestu skákmenn. Og snemma
tóku menn eftir snild þeirri, sem liann þráfaldlega síðar sýndi um-
heiminum í skákum sínum. —