Íslenskt skákblað - 01.12.1926, Blaðsíða 15
ÍSLENSKT SKÁKBLAD
13
36. Bb2Xf4 e5Xf4!
Oefið.
Skák pessi er ein af símakapptöfl-
um peim, sem háð voru milli Reykja-
víkur og Akureyrar nóttina milli 2. og
3. janúar síðastl. Skákin er tefld á
borð 1 (Akureyri: Stefán Ólafsson,
Reykjavík: Eggert G. Gilfer). — At-
hugasemdir eftir Eggert G. Gilfer.
L O F 'I' S K E Y I’ A-SKÁK 1 R N A R
MILLI KORÐMANXA O O í 8LENDINGA.
Rilstjórinn hefur beðið mig að skýra lesendum Skákblaðsins
frá fyrirkontulagi á kappskákunum milli Norðmanna og íslendinga,
sem háðar voru síðastliðinn vetur, og er mjer ánægja að verða við
þeirri ósk hans, og skal skýra frá því helsta, sem þessar skákir
snertir, án þess þó að ætla mjer þá dul, að leggja nokkurn dóm á
töflin sem slík, því til þess skortir mig dómgreind.
Síðastliðið haust mæltist Skáksamband Norðmanna, »Norsk
Schakforbund®, í Óslo til þess við sendiherra Norðmanna hjer á
landi, að Irann hlutaðist til um, að háðar yrðu ritsímakappskákir milli
Norðmanna og íslendinga, og benti Skáksambandið þar á Taflfje-
lag Reykjavíkur, sem væntanlegan keppenda fyrir liönd Islendinga.
Málaleitun þessi var síðan send stjórn Taflfjelags Reykjavíkur, sem
samþykti fyrir sitt leyti að verða við áskoruninni, og eftir að hafa
ráðfært sig við væntanlega keppendur, og trygt sjer hæfan mann
sem skákstjóra fyrir hönd íslendinga, tilkynti hún Skáksambandinu
norska, að Taflfjelag Reykjavíkur tæki fúslega á móti áskoruninni.
Síðan var tekið til að undirbúa ýmislegt, sem að þessu laut og þá
fyrst að reyna að tryggja sjer notkun símans. Landssímastjóri, O.
Forberg, var þá erlendis, en settur landssímastjóri taldi ýms tor-
merki á, að leyfi fengist til að nota símann, nema fult gjald kæmi
fyrir. Prófessor Einar Arnórsson, sem tekið hafði að sjer skák-
stjórnina, hlutaðist þá til um það við stjórnarráðið, að það greiddi
fyrir málinu, og varð niðurstaðan sú, að stjórnarráðið heimilaði
ókeypis notkun loftskeytastöðvarinnar hjer í Reykjavík í þessu skyni,
eins og norska stjórnin hafði þá gert með loftsteytastöðina í Bergen.
Aður en skákirnar hófust, var gerður samningur um fyrirkomu-
lagið, milli Skáksambandsins norska og Taflfjelags Reykjavíkur.
Helstu ákvæði samningsins voru þessi:
Tefldar skulu samh'mis tvær skákir, og hafi Norðmenn hvítt á
öðru borðinu, en íslendingar hvítt á hinu,