Félagsrit Sláturfélags Suðurlands - 01.09.1933, Page 4
100
Félagsrit Sláturfélags Suðurlands
Kjfitsalan í sumar.
Oft liefir verið erfitt að halda kjötverðinu nokkurnveg-
inn í horfinu, en líklega þó aldrei eins og nú í sumar.
Áður en félagið byrjaði á lamhaslátrun í s. 1. júlímán-
uði, voru ýmsar smáverslanir hér og í Hafnarfirði farnar
að selja kjöt af fé, er þær nefndu „veturgamalt og sauði“.
Mun innkaupsverð á því kjöti hafa verið um kr. 1,60 pr.
kgr.
Fyrstu lömbunum slátraði Sf. Sl. 13. júlí, og var inn-
kaupsverð á því kjöti kr. 1,80, en heildsöluverð til versl-
ana kr. 1,90. Ekki leið þó lengur en til 21. júlí, að lieild-
sali einn i bænum var með eitthvað af kjöti, og bauð það
verslunum fyrir kr. 1,60 pr. kgr. — eða 30 aurum lægra
en félagið seldi þá fyi'ir. Urðu þá ýmsar verslanir lil þess
að lækka verðið að sama skapi og seldu í nokkra daga
fyrir 30 aurum lægra verð en búðir félagsins og aðrar
aðal-kjötverslanir bæjarins. í næstu viku á eftir lækkaði
svo félagið verð sitt um 20 aura kgr.
Þannig liélt verðfallið áfram lállaust og óviðráðanlega
um 20 til 30 aura kgr. í hvert sinn, svo að 25. ágúst var
heildsöluverð félagsins komið niður i kr. 1,10 livert kgr.
Auk sveilakaupmanna og annara, scm altaf selja undir
verði félagsins og bjóða kjötið i allar hugsanlegar versl-
anir, matsöluhús, veitingahús og sjúkrahús og jafnvel til
einstaklinga alt með sama lága verðinu, seldu nú ýmsir
lieildsalar kjöt í pakkhúsum sínum, alt niður í *4 úr kropp>
og auðvitað meira og minna undir vei-ði félagsins. Dærni
eru einnig til þess, að maður úr sveit seldi kjöt á götum
bæjarins úr handvagni.
Eftirtektarvert er það, að félaginu tekst ávalt að halda
samvinnu um kjötverðið við hinar eldri og reyndari kjöt-
verslanir, sem lengi hafa starfað í bænum. Það eru því
ekki þær, sem markaðinum spilla, heldur hinir sem fyr
eru nefndir, en þó einkanlega ýmsir menn, sem hlaupa i