Eining - 01.10.1957, Page 9

Eining - 01.10.1957, Page 9
EINING 9 Gengið á fflelgafell Ræða, fluti af skólastjóra gagnfræ'ðaskólans í Vestmannaeyjum, Þorsíeini Þ. Víglundssyni. Að afloknum öllum prófum vorið 1955 fóru nemendur 3. bekkjar hér í skólanum í ferðalag vestur á Snæfells- nes. £g átti að heita leiðtogi fararinnar. Um ferðalag þetta skrifaði einn nemand- inn skemmtilega frásögn og birti í Bliki í fyrra. Á heimleiðinni gerðum við dálitla lykkju á Ieið okkar og ókum heim að Helgafelli, bæ Snorra goða. Bær þessi stendur undir samnefndu felli. Helgafell er lágt og auðgengið. Það er hálft á hæð við Helgafell okkar en grösugt og fagurt. Snemma á öldum trúðu forfeð- ur okkar því, að menn dæju í fjöll og hæðir, tækju sér þar dvalarstað eftir andlátið. Þórólfur Mostrarskegg nam land á Þórsnesi, þar sem Helgafell rís. Hann hóf fyrstur átrúnað á fell þetta og gaf því nafn. Hann trúði því, að hann sjálfur og frændur hans mundu þangað fara eftir andlátið. Þessi eða annar átrúnaður á Helgafell hélzt öld- um saman. Eitt sinn, er Snorri goði skyldi ráða fram úr vandamálum, sagði hann við þann, sem til hans leitaði: ,,Þá skulum við ganga upp á Helgafell; þau ráð hafa sízt að engu orðið, er þar hafa ráðin verið.“ Við höfum afráðið að ganga á Helga- fell og haga göngu okkar eftir fornri sögn með vissum ásetningi. Sögnin er á þessa leið: Þú afræður í huga þér þrjár óskir göfugar og frómar, gengur síðan á Helgafell með þær í huga, þögull og einbeittur. Aldrei máttu líta aftur á leið- inni upp fellið. Þegar upp kemur snýrðu ásjónu þinni gegn austri og berð fram óskirnar þrjár. Trúin flytur fjöll, segir gamalt orðtak. Svo djúpt er tekið í árinni um mátt trú- arinnar. Henni verður því eigi mikið fyr- ir því að uppfylla þrjár frómar óskir þín- ar, ef hugur þinn og hjarta fylgir máli. Afturlitið skal vera sönnun þess, að viljinn um óskirnar er veikur og reikull, og þá færðu þeim ekki fullnægt. Guð hjálpar þeim, sem hjálpa sér sjálfir, segir annað orðtak. Þegar viljann vant- ar og framtakssemina, er hætt við, að okkur gangi seint að ná markmiðinu eða fá óskum okkar fullnægt. Ég hafði gilda ástæðu til að ætla, að við hefðum öll, þegnar skólans, sem þarna vorum á ferð, öðlazt trú á hina fornu sögn, ef við færum rétt að og höguðum ferð okkar eftir settum regl- um. Til þess að tryggja okkur það, drápum við á dyr að bænum Helgafelli í von um að fá að bera saman ráð okk- ar við kunnugan. Húsfreyjan sjálf kom til dyra. Við tjáðum henni erindi okkar. Hún tók því sérstaklega alúðlega. Virt- ist okkur, að hún tryði sjálf hinni fornu sögn um dulmögnun Helgafells og ósk- aði innilega, að okkur mætti verða að trú okkar. Það styrkti mig í trú minni. Áður en við lögðum á fellið, fylgdi húsfreyja okkur handan fyrir bæinn og sýndi okkur leiði Guðrúnar Osvífurs- dóttur, sem þar er. Síðan lagði hún á ráðin um gönguna á Helgafell. Við skip- uðum okkur í eina röð. Hæst á fellinu er grjótbyrgi, sem Snorri goði á sjálfur að hafa hlaðið. Inn í það skal gengið, snúa andliti í austur og bera svo fram í huga hinar þrjár óskir. Ég gat ekki ann- að fundið, en við værum öll staðráðin í því að hlíta settum reglum og bera síðan fram óskirnar af föstum vilja, bljúgu hjarta og einbeittum hug. Ég gekk fyrstur hina troðnu slóð upp á fellið. Ekki fyrst og fremst vegna þess, að ég átti að heita leiðtogi fararinnar, heldur með þeim ásetningi að fá aðstöðu til að lesa í andlit nemenda minna, sem á eftir mér gengju í byrgið, eftir að ég hefði borið þar fram sjálfur þrjár óskir. Allt gekk þetta samkvæmt reglunum. Við einbeittum huga okkar og vilja að óskunum þrem, gengum þögul á fellið og litum aldrei aftur á leiðinni. Þar geng- um við beint í byrgið og bárum fram óskirnar, sem voru og eru einkamál okkar. Andlit nemenda minna voru ein- beitt og ákveðin, og gat ég ekki betur séð, en hjörtun slægju með og hugur fylgdi máli. Tvær óska minna voru þannig vaxn- ar, að þeim varð fullnægt á næstu 10— 12 mánuðum eða þá ekki. Vissulega fékk ég þeim báðum fullnægt á s.I. ári. Hin þriðja bíður síns tíma. Þær voru allar frómar, lausar við alla eigingirni og miðuðu að heillamálum almennings í þessu bæjarfélagi eftir minni gerð og mínum takmarkaða skilningi. Þessi forna sögn um óskirnar þrjár og Helgafell er mjög merkileg frá mín- um bæjardyrum séð. Hún er að einu leyti smækkuð mynd af lífinu sjálfu. Beitum við ekki viljanum og hugarorku í daglegu striti og stríði, verður okkur harla lítið ágengt. Það hafið þið sannar- lega fengið að reyna sjálfir, nemendur mínir, — þið, sem hlotið hafið góðar gáfur í vöggugjöf, en þó borið úr býtum mjög lítinn árangur af löngu barnaskóla- námi. Einkunnir ykkar, sem þann flokk fyllið, og reynsla okkar kennaranna segja sína sögu, hörmulega sögu um pund, sem grafið hefur verið í jörðu, gáfur illa notaðar — sögu um afturlit og reikult ráð. Við verðum að vona það, nemendur, að þetta standi allt til bóta, og megi verða til viðvörunar og skiln- ingsauka hinum, sem betur eru á vegi staddir. Nú vík ég máli mínu að öðru ferða- lagi. Helg rit greina frá því, að það hafi átt sér stað austur í Gyðingalandi. Við Dauðahafið stóð eitt sinn borg, sem Sódóma hét. Sagan segir, að líf fólksins þar hafi verið saurugt og syndsamlegt í meira lagi. Þess vegna afréð Guð að tortíma borginni. Einn var sá maður þar, sem sérstaklega gekk á guðs veg- um og forsjónin vildi ekki láta farast. Hann hét Lot. Honum bauð því Guð að ganga út úr borginni. Það þáði hann með þökkum. Kona Lots var viljaveik, götukær og gjálíf. Hún fylgdi þó manni sínum út úr borginni, vildi gjarnan njóta vináttu hans við Drottinn og njóta þannig ávaxta hins hreina lífernis. Á leiðinni út úr borginni hvarflaði hugur hennar sífellt til hins bága sið- gæðislífs, sem hún hafði tamið sér í Sódóma og unni. Viljinn til betrunar var veikur. Hún þráði gjálífið, veslings konan. Þess vegna leit hún aftur. Og Drottinn lét hana verða að saltstólpa. Þegar við börnin í barnaskólanum lás- um í Biblíusögunum okkar um konu Lots, sem leit aftur og varð að salt- stólpa, skildum við ekki söguna. Ekki fengum við heldur skýringu á henni, þegar við gengum til prestsins. Nú þyk- ist ég skilja þessa sögu prýðisvel. Hún greinir frá mannveru, sem engan vilja hefur til þess að lifa siðferðilegu lífi eða þiggja handleiðslu æðri máttar- valda. Þetta viljaleysi konunnar leiðir hana til andlegs dauða. Hún varð að saltstólpa þarna í nánd við Dauðahafið, af því að þar rísa slíkar vörður upp úr sandflæmunum, en hér á íslandi mund- um við hafa getað orðað það svo, að konan hefði orðið að hraundranga eða stuðlabergsstólpa. Alltaf kemur mér þessi saga í hug, þegar nemendur mínir láta botninn detta úr náminu eða sjálfum sér, ef ég mætti orða það svo, líta sem sé aftur á miðjum vetri, og gefast upp við námið. Sálarslénið heltekur viljann, hugur- inn verður reikull og ráfandi. Sannan- lega leiðir oft til þess, að þetta viljaslén veldur þessu æskufólki andlegum dauða, breytir því í steingjörvinga. Viljinn bíð- ur hnekki, hugurinn hvarflar af heilla- braut og frómar óskir láta sér þess vegna til skammar verða. I kvæði sínu, „Myndin“ fjallar Þorsteinn Erlingsson um hugsjónamál æskumannsins og afturhvarf eða upp- gjöf. Skáldið Iíkir hugsjón æskumanns-

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.