Eining - 01.10.1957, Síða 10

Eining - 01.10.1957, Síða 10
10 EIN ING ins við brúði, sem æskumaðurinn geng- ur til faðmlaga við. ,,Brúðargangan“ var auðveld í fyrstu, en þegar tók að þyngjast fyrir fæti á þessari morgun- göngu lífsins, reyndi á kjarkinn, vilja- styrkinn og þolgæðið, ef settu marki skyldi náð. ,,Þá leistu aftur, vinur, það varð þín dauðasynd“. „Þú manst hinn fagra morgun; meö brosi þín hún bei'ö í brúöarklæöum sínum og heimti þig á leiö; þar þgrsti breiddan fáöminn í armlög ungra sveina, og opinn stóö hann hverjum, sem þoröi aö koma og regna. Þá fannslu allt i einu sem eld í hverri taug, og áfram þutu fælur, en lengra liugur flaug; svo bein og stull var brautin aö brunni nautna þinna, en brúöur ung og fögur, og lítiö til aö vinna. En lúniö þitt var þrotiö og þar var engin mær, en þér gekk fljótt á engjar, en hún var ekki nær, en ijúft og létt var sporiö, þó lengdist brúöargangan um löndin þau hin næstu, um dalinn endilangan Þannig lýsir skáldið þessari brúðar- göngu æskumannsins, þegar hann leitar í faðm sinnar æskuhugsjónar. Allt virð- ist auðvelt í fyrstu. Hugurinn er heitur og ör á þeim árum. Stutt leið virðist á stefnumótið við veruleikann eða stað- reyndirnar. Markið er skammt undan, finnst æskumanninum. En þessi brúð- arganga lengist, það reynir á þolrifin, — og svo kemur afturhvarf hugans og uppgjöfin. „Þá leiztu aftur, vinur, þaö var þín dauöasynd; þá varö þitt fjör aö lúa, þá hvarf hin fagra mgnd; Og væna sveitin víöa, sem var þér nóg og öllum: nú varö hún þröngur dalur og luktur liáum fjöllum." Eins og í sögunni um konu Lots, þá fullyrðir skáldið íslenzka, að þetta aft- urhvarf æskumannsins frá göfugri hug- sjón, leiði til andlegs dauða. Allt verð- ur svo þröngt og ömurlegt. Hugsjóna- eldurinn í augunum slokknar, þung- lyndið og deiglyndið heltekur hugann. Allir erfiðleikar verða að háum fjöllum, sem engin tök virðast á að yfirstíga. Svo er þá gripið til þess ráðs, að deifa hugarangrið með nautnum eiturlyfja og annarri ólyfjan. Og kvæði skáldsins um uppgjöf æskumannsins endar á þessu erindi: „Því sá, sem hræöist fjalliö og einlægt aftur smjr, fær aldrei lcijsl þá gátu: hvaö hinumegin býr. En þeim, sem eina lifiö er bjarta brúöarmyndin, þeir brjótast upp á fjalliö og upp á hæsta lindinn." Nemendur mínir. Þessi hugvekja mín er flutt ykkur í vissum tilgangi. Ég þekki það úr 30 ára skólastarfi, hve margir unglingar koma hingað í skólann með þeim fasta ásetningi að starfa vel, starfa með hug og hönd að náminu. I fyrstu virðast þeir hugfangnir af hugsjón sinni. Óskirnar um mark og mið eru þeim efst- ar í huga. Allt virðist svo auðvelt, með- an hugsjónaeldurinn logar. Engum kemur þá til hugar að líta aftur, meðan allt leikur í lyndi. — En svo tekur að sækja á brattann. Þá fer að reyna á viljann og þróttinn. Sem betur fer hrós- ar fjöldinn af ykkur miklum sigri í þess- ari fjallgöngu okkar eða brúðargöngu. En því miður reyndist sumum hún of erfið. Hugurinn reynist hvikull, viljinn veikur; umhverfið býður margs konar freistingar, sérstaklega á vertíð. Og fyrr en varir er sem allar frómar óskir séu gufaðar upp úr hugskotinu, fjörið orðið að lúa, hin fagra mynd horfin, ungling- urinn orðinn að saltstólpa eða andlegri hraunstrýtu. Ég þekki engan ungling á ykkar reki, sem ekki æskir þess að verða nýtur og góður þjóðfélagsþegn. Það er göfug hugsjón. Til þess þarf hug og dug. Á þeirri göngu að settu marki má ekki líta aftur, þó að mótvindur blási og öldur ýfist við keipa. Fátæk þjóð, fátækt land hefur löng- um verið viðkvæðið um íslenzku þjóð- ina. Nú eru þær harmatölur horfnar að mestu. Af hverju? Af því að þjóðin okkar hefur á undanförnum 100 árum eignazt nógu marga hugsjónamenn, sem ekki litu aftur, þó að á móti blési, heldur báru ótrauðir og einbeittir frelsis- og framfarahugsjónir þjóðarinnar fram til sigurs. Þessi fjölmenni hópur góðra íslendinga á að vera fyrirmynd hinna uppvaxandi kynslóða á hverjum tíma. „Iívort sem þú í hendi hefur hamar, skóflu eöa pál, pentskúf, meitil, penna, nál, lwaöa starf, sem Guö þér gefur, geröu þaö af lífi og sál. Láttu dag hvern Ijós þitt slærra lýsa, — klif þú sérlivern múr, áfram gegnum skin og skúr. Iijörorö þiti sé: Hærra, hærra! Ilugsjón þinni vertu trúr." Þannig hvatti skáldið okkar, Sigur- björn Sveinsson, æskulýð Eyjanna til hugsjónalífs, — til dugs og dáða. En hvað sem öllum öðrum hugsjón- um líður, þá skyldi það vera hugsjón hugsjónanna hverjum æskumanni að vera maður. I þeirri brúðargöngu um fjöll og firnindi er hollt að minnast þess, þegar á reynir, að hugur mannsins á eðli til að vera dulmagnað segulafl til Frelsi og ábyrgð. heitir bæklingur, sem áfengisvarnaráð hef- ur nýlega gefið út. Höfundurinn er Karl Marthinussen biskup í Stafangri í Noregi, en íslenzkað hefur Björn Magnússon, prófessor. Bæklingur þessi, sem er 58 blaðsíður, er allefnismikill, fróðlegur mjög og yfirleitt ágætt innlegg í upplýsingarstarfsemi bind- indishreyfingarinnar. Par er gerð rækileg grein fyrir því, hvaða öfl gróðursettu upp- haflega bindindishreyfinguna og áttu drýgst- an þáttinn í að bera hana fram til sigurs. Það var ekki fyrst og fremst liin vísinda- lega rökhyggja, heldur skilningur mannvin- arins -—- liins góðviljaða kristna manns, hvort sem var kennimaður eða leikmaður. Sú lífsskoðun var runnin frá hjartahlýju hins ræktaða sálarlífs. Skaðsemi áfengis- neyzlunnar var svo augljós, að ekki þurfti vísindalega þekkingu á málinu til þess að ráðast gegn bölinu, heldur fyrst og fremst mannkærleika, og í þeim anda og skilningi verður bindindislireyfingin að vinna sinn fullnaðarsigur og má ekki treysta um of á hina hlutlausu og þurru fræðslu. Andi mann- kærleikans, sprottinn af guðselsku, verður að gefa öllu starfinu líf og kraft. ----—ooOoo------ Ilall Caine hefur sagt: „Eg get varla rifj- að upp í liuga mér nokkra þá ógæfu né eyðileggingu, sem hefur ekki átt rót sína að rekja benlínis eða óbeinlínis til áfengis- neyzlunnar. Það er hræðilega langur listi, sem eg á í safni minninganna, og eru þar á meðal nöfn göfugra og vel efnaðra manna, sem áfengisneyzlan liefur leitt út í dauð- ann“. Góðtemplarahúsið í Reykja- vík 70 óra. 8á merkisviðburður gerðist í sögu bind- indismála á íslandi, og reyndar fleiri félags- mála, 2. október 1887, að þá vígði Jón Ólafs- son, rithöfundur og skáld, Góðtemplarahús- ið í Reykjavík. Það átti því 70 ára afmæli 2. okt. sl. Skyldu þeir menn ekki vera tiltölulega fáir, er gera sér ljóst, hvílíka þjónustu þetta hús er búið að láta Reykvíkingum í té, og reyndar allri þjóðinni. Ef til vill ætti þar við orðtækið : Gleymt er þegar gleypt er. Allir munu þó ekki hafa gleymt og verður ef til vill eittlivað af sögu hússins rifjað upp við tækifæri. ------ooOoo----- Maður nokkur hrotugjarn kom í heim- sókn til sonar síns, sem átti lítinn son. Gamli maðurinn settist í hægindastól, sofn- aði og tók að lirjóta hátt. Litli snáðinn í húsinu skreið upp á kné afans og tók að snúa upp á hnapp í treyju hans. Hvað ertu að gera? spurði faðir drengs- ins. Þú mátt ekki trufla afa þinn. Eg er ekkert að trufla liann, svaraði litli snáðinn, eg er aðeins að reyna að ná sambandi við aðra útvarpsstöð. manntaks og dáða í atbeina með huld- um guðseðlisöflum, ef við þjálfum hug- ann og temjum viljann í þá átt. Til þess þarf stál í sál og einbeittan ásetning, — og svo þarf hjartað, sem undir slær, að vera hlýtt og næmt. Mætti lífið náðarsamlegast veita ykk- ur það allt saman. Blik, 1957. - Þ. Þ. V.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.