Íþróttablaðið - 01.11.1928, Side 10
238
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Synt yfir Borgarfjörð.
I landfræðibókum um landið okkar eru á einum
stað taldir upp þeir firðir, víkur og vogar, sem
ganga inn úr Faxaflóa. Næst mesti fjörðurinn þar
er Borgarfjörður, fjörðurinn, sem Skallagrímur
Kveldúlfsson sigldi inn í skipi sínu, tók sér land
kringum og bygði við bæ sinn, Borg, sem alla tíð
síðan hefir verið eitt af höfuð-býlum þessa blóm-
Iega og nú jafnbest hýsta bygðarlags landsins.
Sunnan fjarðarins var svo stofnaður fyrsti bún-
aðarskóli landsins (landseign) árið 1886 og starf-
ræktur þar síðan, á Hvanneyri.
Þangað réðist til búnaðarnáms í fyrrahaust, 1927,
fyrsta stúlkan, sem þá námsgrein hefir lagt fyrir
sig. Hún heitir Anna Gunnarsdóttir. Er fædd í
Gíslakoti í Holtum (Ásahreppi) 26. júlí 1906. Faðir
hennar, Gunnar Gunnarsson, er dáinn fyrir all-
löngu, en móðir hennar, Þuríður Einarsdóttir, á nú
heima hér í Reykjavík. Með henni fluttist Anna til
bæjarins vorið 1915 og hefir átt hér heima síðan.
Hún lærði nokkuð snemma að synda og fékk
mikinn áhuga á þeirri íþróttagrein.
Svo var það sumarið 1924, þegar Islandssundið
var upptekið aftur, að byrjað var á að láta fleiri
sund fara fram um leið. Þá fengust í fyrsta sinni
tvær stúlkur til að synda kappsund. Þessar stúlkur
voru Regína Magnúsdóttir á Kirkjubóli, sem síðan
hefir oft synt og ætíð við ágætan orðstýr fyrir
fagurt sund og flýti, og Anna Gunnarsdóttir. Anna
hefir síðan öll sumrin tekið þátt í kvennasundum
hér með góðum árangri og sýnt bæði dugnað og