Eining - 01.04.1963, Side 7
EINI NG
7
\
I
fræðslu skólaæskunnar og almennri upplýsingastarfsemi um
áfengis- og bindindismál, en á því hvorttveggja er mikil þörf.
Áfengisvarnanefndirnar og félagssamtök þeirra eiga þakkir
skilið fyrir skilning þeirra á þessu máli og ágætan stuðning
við það.
Starf áfengisvarnanefndanna hefur verið með líkum hætti
og áður, víða allfjölþætt og markvisst og sitthvað reynt til
að vekja áhuga almennings á nauðsyn bindindis.
Þá er það ef til vill mest að þakka áhuga áfengisvarna-
nefndanna og félaga þeirra, að nú hafa verið staðfestar
reglugerðir um löggæzlu á samkomum utan kaupstaða í flest-
um sýslum landsins eftir látlausa baráttu í 6—7 ár.
Nefndirnar í Skagafirði hafa komið því til leiðar, að sýslu-
nefndin hefur samþykkt þann viðauka við lögreglusamþykkt
sýslunnar að „börnum innan 16 ára aldurs er bannaður að-
gangur að almennum danssamkomum í Skagafjarðarsýslu“.
Enn hefur það ekki fengist að vegabréfaskyldu væri á komið,
en málinu verður haldið vakandi og mega þar einnig áhrif
áfengisvarnanefndanna sín mikils.
Skólamót hafa verið haldin all-víða og þykja gefa góða
raun. Alls bárust 226 ársskýrslur frá nefndunum eða 99%, og
verður það að teljast mjög góður árangur. Ársskýrslurnar
gefa áreiðanlega raunhæfari mynd af ástandi og horfum í
áfengis- og bindindismálum hér á landi, séu þær vandlega
gerðar, en hægt er að fá annars staðar. Þær eru því mjög
mikilvægar.
Samvinnan við nefndirnar hefur verið ánægjuleg, eins og
við önnur bindindisfélög og samtök, en ýmis þeirra hafa
starfað vel á árinu. Nefni ég þar aðeins Landssambandið
gegn áfengisbölinu, Samband bindindisfélaga í skólum, Bind-
indisfélag kennara og Bindindisfélag ökumanna, sem öll hafa
unnið gott og margþætt starf, þótt eigi verði rakið hér.
Landssambandið gekkst s. 1. sumar fyrir námsskeiði um
bindindis- og menningannál. Var það nokkuð sótt, einnig
utan af landi, en hefði þó mátt vera fjölsóttara, því að vel
var til þess vandað. Hér var um athyglisverða nýung að
ræða og gæti orðið upphaf námsskeiða fyrir unga menn og
konur, sem líkleg væru til að verða leiðtogar í félags- og
æskulýðsmálum. Þá stofnaði landssambandið á árinu Bind-
indisráð kristinna safnaða undir forystu formannsins, Péturs
Sigurðssonar, ritstjóra. Kristilega bindindishreyfingin er
mjög voldug á Norðurlöndunum hinum og hefur unnið
mikið gagn þar. Ástæða er til að vona, að Bindindisráð krist-
inna safnaða muni marka heillavænleg spor í bindindissögu
þjóðar vorrar, þegar fram líða stundir.
Tryggingarfélagið Ábyrgð h. f. hefur nú starfað í tæp tvö
ár, og gengið betur en vonir stóðu til. Býður það hagstæð
tryggingakjör fyrir bindindismenn og færir stöðugt út starf-
semi sína.
ÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Hin heilaga glód
En María stóð hjá gröfinni úti fyrir grátandi.
Er hún var að gráta, gægðist hún inn í gröfina og
sér tvo engla í hvítum klæðum sitja þar, annan
til höfða, hinn til fóta, þar sem líkami Jesú hafði
legið. Og þeir segja við hana: Kona, hví grætur
þú ? Hún segir við þá: Af því að búið er að taka
burt drottin minn, og eg veit eigi, hvar hann hefur
verið lagður. Þegar hún hafði þetta mælt, sneri hún
sér við og sér Jesúm standa þar, en hún vissi ekki,
að það var Jesús. Jesús segir við hana: Kona, hví
grætur þú? Að hverjum leitar þú? Hún hugði að
þetta væri grasgarðsvörðurinn, og segir við hann:
Herra, hafir þú borið hann burt, þá segðu mér, hvar
þú hefur lagt hann, og mun eg taka hann. Jesús
segir við hana: María! Hún sneri sér við og segir
við hann . . . : meistari. Jesús segir við hana:
Snertu mig ekki, því að enn þá er eg ekki uppstig-
inn til föður míns og föður yðar, til Guðs míns og
Guðs yðar.
María Magdalena fer og boðar lærisveinunum:
Eg hef séð drottin!
Jóh. 20, 11—18.
Við höfum fyrir skömmu sungið „Sigurhátíð
sæl og blíð.“ María hafði grátið. Lærisveinarnir
voru vonsviknir og daprir. Hinir tveir á leiðinni
til Emmaus voru niðurbeygðir, og sögðu: „En vér
vonuðum, að hann væri sá, er leysa mundi ísrael.“
Allt í einu er sorgarskýjunum svift burt. Frá
manni til manns berast orðin: Hann er upprisinn.
Ólýsanleg fagnaðaralda fer um sálir hinna von-
sviknu lærisveina. Þeir umskapast í sigursæla og
ósigrandi menn, undur og stórmerki gerast og þar
með rís ný heimsmenning, nýtt sögutímabil og
mikill fjöldi manna verður að nýjum mönnum. Ekk-
ert fær staðist upprisukraftinn. Krossarnir fúna,
bálin slökkna, sirkúsarnir í Róm hrynja og sjálft
heimsveldið volduga liðast sundur. Sigurgöngu
Nasareans stöðvar ekkert, og í fylling tímans mun
allur heimurinn lúta honum og bjargast inn í ríki
hans.
ooooooooooooooooooooooooooooooooo
Á árinu keypti áfengisvarnaráð kvikmynd (auk kvik-
mynda um áfengismál) um skaðsemi tóbaksreykinga, gerða
undir stjórn amerískra vísindamanna og byggða á vísinda-
legum rannsóknum. Kvikmynd þessi hefur þegar verið sýnd
víða um land og þykir mjög áhrifamikil og lærdómsrík.
Lokaskýrslur um áfengissöluna 1962 liggja enn ekki fyrir.
Líkur benda til, að áfengisneyzlan hafi nokkuð aukizt, en
salan þó meira, enda hækkaði verð á áfengi all-mikið. Víst
er um það, að mikils er neytt af hinum görótta drykk, enda
sér þess víða merki í þjóðlífinu. Alvarlegasta vandamálið er
hið sama hér og annars staðar, sívaxandi drykkjuskapur
unglinga og kvenna og afleiðingar þess. Ötular áfengisvarn-
ir, fræðsla og upplýsingastarfsemi er ef til vill líklegasta
ráðið til að firra þjóðina þessum hörmulega vanda eða draga
verulega úr honum. En til þess þarf mikið fé, heilbrigt al-
menningsálit og starf margra góðra manna og kvenna. Tak-
markið er einstaklingsbindindi, sem byggist á innri þroska,
félagslegri ábyrgðartilfinningu og siðgæðisvitund fjöldans.
Vð skulum öll vinna vel á nýju ári í þeirri trú, að góður mál-
staður sigri að lokum.
Þökk fyrir samvinnuna á liðnu ári.
Gleðilegt nýtt ár.
Með kærri kveðju.
Ki’istinn Stefánsson.
Magnús Jónsson. Guðlaug Narfadóttir.
Kjartan J. Jóhannsson. Gunnar Árnason.