Eining - 01.06.1965, Page 2

Eining - 01.06.1965, Page 2
2 EINING Vorþing Umdœmisstúkunnar nr, 1 Þingið var haldið í Hafnarfirði laug- ardaginn 22. maí sl. Það var allfjöl- mennt og fór vel um okkur í hinu nota- lega Góðtemplarahúsi Hafnarfjarðar. Fjmdum þingsins stjórnaði umdæmis- templar, Ólafur Jónsson, og lagði hann fram skýrslu yfir starfsárið 1964-1965. Þar ber mest á frásögn um bindindis- mannamótið að Húsafelli um verzlunar- mannahelgina sl. sumar, en til slíkra móta hefur umdæmisstúkan efnt árlega undanfarin ár. Hafa þau gefizt vel og aðsókn að þeim farið vaxandi. Einnig er í skýrslunni greint frá annarri starf- semi víðsvegar í umdæminu, heimsókn- um til stúkna, ferðalögum manna til að glæða áhugann á ýmsum stöðum, og einu og öðru. I skýrslu gjaldkera stúkunnar er einn á ranglætið." Ef sumir heimta þreföld eða jafnvel fimmföld laun á við hinn vinnandi mann í þjóðfélaginu, þarf eng- inn að búast við rólegu atvinnulífi né neinni friðsemd yfirleitt. Enn leika menn sér að rangsleitni og öllu því, sem spillir mönnum og gerir þá ósátta, ófriðsama og hættulega öllum friðar- vilja, hvar sem er. Því miður er hinn vondi andi enn ekki dauður, hvað sem hinum líður á „neðstu hæðinni,“ og Guð er ekki heldur dáinn eða týndur, þótt geimfarar finni hann ekki. Hann býr „á háum og heilögum stað, en einnig hjá þeim sem hafa sund- urkraminn og auðmjúkan anda,“ segir spámaðurinn. Sú guðshyggja, sem við getum ræktað í sjálfum okkur, getur umbreytt okkur svo, að við liættum að vera eða verða hel-vítismatur, ef við að- ins viljum fá Guði völdin í lífi okkar og þjóðlífinu. Þá verða vandamálin ekki vandleyst, þá myndu menn ekki þurfa að vaka nótt eftir nótt á sáttafundum og glíma við þau vandamál, sem rang- sleitnin ávallt hrúgar upp. „Réttlætið upphefur lýðinn, en syndin er þjóðanna skörnrn," var skráð í bamalærdómskver- inu okkar. „Allt ranglæti er synd.“ Setn- ingin verður þá þannig: „Réttlætið upp- hefur lýðinn, en ranglætið er skömm þjóðanna.“ Festum okkur þetta í minni. Hér er ekki vandratað. Hér þurfa menn ekki að villast. Vegurinn er vel merktur: Réttlæti, upphefð og farsæld — eða: ranglæti, skömm og ófamaður. — Okkar er valið. Pétur Sigurðsson. liður mest áberandi og segir þar frá markverðu og ágætu starfi barnaheimil- isins að Skálatúni í Mosfellssveit. Þetta líknarstarf nýtur velvildar margra og oft berast heimilinu góðar gjafir. Á af- mæli yngsta barnsins að Skálatúni 28. nóvember 1963 stofnuðu foreldrar þess, Föndur, og leikfangasjóð heimilisins. Gjöfin var 10 þúsund krónur. Foreldrar barnanna hafa sótt um leyfi heimilisstjómarinnar til þess að mega gangast fyrir gerð sundlaugar heimilis- ins. Vorið 1964, 31 maí, voru níu börn heimilisins fermd í Lágafellskirkju og voru þar nánustu venzlamenn barnanna, sem gengu með börnunum til altaris eft- ir ferminguna, og segir Páll Kolbeins í skýrslu sinni, að „öll þessi athöfn hafi verið ein sú hátíðlegasta kirkjuathöfn, sem hann hafi verið viðstaddur." — Fólk hafi það hugfast, að hér er um vangefin börn að ræða og þeim mun lofsverðara hve tekst með uppeldi þeirra. I Skálatúnsheimilinu eru nú 28 börn, en eftirspurn er mikil um vist fyrir fleiri börn. Nú standa yfir allmiklar byggingaframkvæmdir á staðnum og gert er ráð fyrir að þeim ljúki snemma á næsta ári, getur heimilið þá hýst 40- 50 börn. Sunnudaginn 30. maí sl. efndu konur úr stúkunum í Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík og Akranesi til bazars vegna Skálatúnsheimilisins. í sambandi við hann skýrðu dagblöðin í Reykjavík all- verulega frá starfi og stjórn heimilisins. Þetta er nú 12. ár þess. Upphafsmaður að stofnun þess var Jón Gunnlaugsson, fyrrv. stjórnarráðsfulltrúi og lengst framan af var heimilið á vegum Um- dæmisstúkunnar nr. 1, en nú síðustu ár- in hefur Styrktarfélag vangefinna tek- ið höndum saman við umdæmisstúkuna um þetta góða verk, sem unnið er að Skálatúni. Já, hér var verið að segja frá um- dæmisstúkuþinginu. Umræður um ýms mál voru þar allfjörugar. Næstum engin breyting varð á fremkvæmdanefndinni, og Ólafur Jónsson, Hafnarfirði, var endurkj örinn umdæmistemplar. Tillögur Á þinginu voru samþykktar ýmsar tillögur, meðal annars að krefjast þess, að ekki verði enn fjölgað vínveitinga- stöðum, að áfengislögum sé framfylgt, bæði almennt og ekki sízt varðandi þau ákvæði laganna, sem banna að veita ungmennum áfenga drykki. Ennfremur ítrekaði þingið fyrri kröf- ur sínar um að opinberir aðilar hætti að veita áfengi í veizlum sínum. Stóraukin verði fræðsla um skaðsemi áfengisneyzl- unnar. Flestar aðrar tillögur þingsins voru um hið félagslega starf góðtemplara- reglunnar, bæði inn á við og út á við. Vorblómið Vorblóm ársins 1965 kom út með sumar- komunni. Hlý hjörtu hafa slegið á bakvið hendur þeirra manna, sem skráðu efniskafla þess- arar litlu snotru bókar, og áreiðanlega ylja þeir ungra sveina og meyja hjörtum. Og hver veit, nema fullorðnir og jafnvel gaml- ir eigi barnsleg hjörtu, sem vermast við allt sem er hollt, fallegt og gott. Sennilega finnst sumum efnið nokkuð einhliða og sársaukinn er þar á ferð, en alltaf er þar hvatningin til varúðar og við- vörun við hættunum verstu, ungum bent á gæfuveg. Það er unglingaregla góðtemplara, sem gefur út bókina og markmið unglinga- reglunnar er þetta: „Að kenna þeim ungu að skilja þá hættu, sem leitt getur af nautn áfengis og tóbaks, og brýna fyrir þeim nauðsyn bindindis- starfseminnar. Að hafa áhrif á börn' og unglinga til að verða bindindismenn. Að fá æskulýðinn til að vinna samtaka gegn áfengis- og tóbaksnautn og f járhættu- spili. Að vinna á móti ljótu orðbragði og öðr- um löstum og koma vel fram við menn og málleysingja. Að kenna börnum og unglingum að starfa í félagsskap og efla alhliða félags- þroska þeirra. Að vinna að því að göfga æskumanninn og styðja hann til þess að geta orðið góður og nýtur maður. Kjörorð unglingareglunnar er: Sann- Ieikur, kærleiki, sakleysi." Þetta er skráð á aftari kápusíðu litlu bókarinnar, og allir munu viðurkenna, að stefnt er að háu og göfugu marki. Á það er og minnt, að um marga áratugi hafa barna- og unglingastúkurnar í landinu unnið ómetanleg uppeldisstörf. Norðangarinn nístir klóm nýútsprungin vorsins blóm. Eins nær klóin ísköld hans inn að hjartarótum manns. Vísa þessi varð til, þegar kaldast var í vor. P. S.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.