Eining - 01.06.1965, Page 8

Eining - 01.06.1965, Page 8
8 EINING TJ T]\TTJ\Tf~^ Mánaðarblað um áfengismál, bindindi og önnur J-1J.J. V-/-Z. V VJT menningarmál. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétur Sigurðsson. Blaðið er gefið út með nokkrum fjárhagsstyrk frá ríkinu og Stór- stúku íslands, kostar 100 kr. árg., 10 kr. hvert eintak. Utanáskrift til blaðsins og ritstjórans er: Pósthólf 982. Reykjavík. Sími: 41956. GULLTJALDIÐ L^|| nginn guð, enginn guð, VHi að þessi kálfur. Það er hann, sem þjóðin ann, og það veit hann sjálfur. Lostinn býr í lendum hans, lögmálið í hryggnum. Dans, dans, dans, og dýrseðlið tignum. Svo kvað þjóðskáldið Davíð Stefánsson. Menn kannast við söguna um gullkálfinn í eyðimörkinni. Þar hófst mikill dans, og dansinn í kringum gullið — peninginn, hefur haldið áfram síðan. Mikið hefur verið rætt og ritað undanfarin ár um „járn- tjald,“ en þeir, sem að siðbótum vinna og vilja t.d. útrýma skaðlegri áfengis- og tóbaksneyzlu, standa alltaf andspænis óvinnandi og óyfirstíganlegu gulltjaldi. Það er hverju stríðs- tíma járntjaldi verra. Það er hið ægilega peningavald, sem einskis svífst: Verzlar með lifandi fólk, verzlar með þræla, verzlar með heill og velferð manna, verzlar með áfengi, tóbak, sorprit, glæpareyfara, glæpakvikmyndir, morðtól og óteljandi skaðvænleg efni. Peningavaldið er blint gagnvart velferð manna, gengur alltaf með dollar- eða krónu-augu. Á síðasta Alþingi kom fram frumvarp um að banna tó- baksauglýsingar, en þá kom strax í ljós, eins og á bannárun- um, að við stöndum alltaf andspænis þessu óvinnandi gull- tjaldi. Peningavaldið, aðallega erlent, fer á stúfana og svo birta blöðin meiri tóbaksauglýsingar en nokkru sinni áður. Blöðin beygja sig fyrir framboði peninganna og Alþingi beyg- ir sig fyrir valdi blaðanna og kjósenda, þar með harðlæst hvert hlið. Mikið er rætt um vísindi, að efla háskóla sem mest til vísindalegrar menntunar, nauðsyn þess að taka vísindin í þjónustu tækninnar til eflingar velferð þjóða. Nú hafa vís- indamenn margra þjóða talað hátt um skaðsemi sígarettu- reykinga og lagt fram uggvænlegar skýrslur. Þá hrekkur peningapúkinn við og hann veit af gamalli og nýrri reynslu, að með gullmúr er unnt að stöðva framgang flestra mála. Þetta tókst peningapúkanum prýðilega á áfengisbannár- unum. Minna má á, að t.d. eru í hinni miklu bók, The Amazing Story of Repeal, hálft fimmta hundrað blaðsíður um afnám áfengisbannsins í Bandaríkjunum, — opinberar skrár og skýrslur um það, hversu auðkýfingar, eigendur milljóna og tugmilljóna dollai’a, lögðu andbanningafélaginu þar til stórfé til baráttunnar gegn bannlögunum. Á bls. 9 eru nafngreind 16 stórfyrirtæki, eins og t.d. risafyrirtækin Du Pont, sem lögðu þessu andbanningafélagi til 2.894.71 dollara á árunum 1930 og 1931, til þess að herða sóknina. Fyrirtæki þessi gerðu þetta í von um að létta af sér sköttum, ef ríkisstjórnirnar fengu nægar tekjur af áfengissölunni. Dæmið reiknuðu þau auðvitað sér í hag en ekki þjóðinni. Glæpalýður og alls konar leynifélög tóku svo höndum saman við þetta auðmagn til þess að eyðileggja áfengisbannið. Áfengisauðmagnið sá um það, að skip frá Englandi og víðar að, lægju úti fyrir ströndum Bandaríkjanna og hefðu nægi- legt áfengi til sölu, til þess að lagabrotin yrðu sem mest áber- andi og léttara yrði að rægja bannlögin. Þannig var unnið, og svo áttu þessi máttugu öfl víða ítök, t.d. í nautnasýki manna. Þetta er hinn gamli og nýi sannleikur í þessu mikla vanda- máli. Andspænis þessu gulltjaldi — þessum óvinnandi pen- ingamúr stöndum við enn, er við viljum banna hér á landi tóbaksauglýsingar. Værum við bindindismenn samtaka, gæt- um við átt nokkurn mótleik, með því að hætta að kaupa þau blöð, sem birta tóbaksauglýsingar. Heilræði spámannsins f heilagri ritningu er komizt svo að orði: „Guð er eyðandi eldur.“ Og svo spurði spámaðurinn á fornaldarárum: „Hver af oss má búa við eyðandi eld, hver af oss má búa við eilíft bál ? Sá sem fram gengur réttvíslega og talar af hreinskilni; sá sem hafnar þeim ávinningi, sem fenginn er með ofríki; sá sem hristir mútugjafir af höndum sér; sá sem byrgir eyru sín, til þess að heyra eigi morðráðin; sá sem afturlykur aug- um sínum, til þess að horfa eigi á það, sem illt er. Hann skal búa uppi á hæðunum; hamraborgirnar skulu vera vígi hans; brauðið skal verða fært honum, og vatnið handa honum skal eigi þverra. Augu þín skulu sjá konunginn í ljóma sínum; þau skulu horfa á víðáttumikið land.“ — Jesaja 33, U-17. Skáldlegt og spámannlegt mál, á við á öllum öldum, en spámaðurinn er einn af þessum hneykslanlegu mönnum, sem nú eru nefndir í lítilsvirðingartón: „siðavendnispostular." — Slíkt er nú ekki ný bóla. Um Krist hrópuðu menn: „Burt með þennan, gef oss Barrabas.“ Nú hrópa menn: „Burt með þessa siðavendnispostula, gefið okkur sjónvarp, — þenna há- skóla í glæpamennsku. Auðvitað sýnir sjónvarp fleira en það, sem andstyggilegt er, en í sjónvarpi og fjölda kvikmynda fer fram markviss kennsla í glæpamennsku. Framan við sjón- varpið sitja börn og unglingar dag eftir dag og horfa á margt misjafnt. Þar lærði 5 ára snáðinn hvernig á að kyrkja menn, og hann gerði tilraun á tveggja ára bróður sínum, og fleiri listir hafði hann þegar lært varðandi manndráp. Faðir drengsins sagði sjálfur frá. Sjá Kirkuritið, 4. hefti 1965, bls. 159. Svo gera menn sig að þeim einfeldingum að leggja að jöfnu hvort barn eða unglingur les eitthvað ljótt eða sér það í sjónvarpi. Sjón er sögu ríkari, hefur löngum verið sagt. Þótt 5 ára snáðinn hefði verið læs, myndi hann tæpast hafa lært af lestri, hvernig hann ætti að kyrkja yngri bróður sinn. Við höfum nýlega lesið í blöðum um það, að rannsóknir meðal stórþjóða hafi leitt í ljós, að allstór slatti fulltíða ung- menna, allgóðum gáfum gæddir og duglegir í prófum, væru siðferðilegir fábjánar. Slíkt er ávöxtur uppeldis aldarfarsins, og þeir sem halda vilja slíku uppeldi áfram, hrópa: burt með siðavendnispostulana. Hugleiðum svo orð spámannsins um að framganga rétt- víslega, tala af hreinskilni, hafna þeim ávinningi, sem feng- inn er meS ofriki, að hrista mútugjafir af höndum sér, byrgja eyru sín, til þess að heyra eigi morðráðin, loka aug- unum, til þess að horfa ekki á það, sem illt er. Látum svo nútímamenningu þjóðanna, einnig okkar, ganga undir þetta próf, og sjáum, hvort nokkur þörf er á siðavendni.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.