Eining - 01.06.1965, Síða 10

Eining - 01.06.1965, Síða 10
EINING 1A ±v var ekki utanað lærð list, heldur henni jafn eðlislægt, eins og andardráttur hennar, eins og hennar hægri hönd. Það var hinn huldi maður hjartans, eins og postulinn orðar það svo fallega, sem mér fannst vera hennar dýrasta skart, og öllum, sem eitthvað kynntust henni lá vafalaust í augum uppi. Ég hygg, að allir þeir, sem kynntust frú Sigríði, hafi orðið snortnir af áhrifum góðvildar, hreinleika og virðuleika, sem mér fannst geisla frá persónuleika hennar. I nærveru hennar hlaut allt hégómatal að falla niður af sjálfu sér og mörgum mun hafa fundizt líkt og í sálminum stendur: „Hið lága fær- ist fjær, en færist aftur nær hið helga og háa.“ Eitt rit sitt hefur maðurinn hennar tileinkað henni m. a. með þessum orðum: „Konunni minni, þeirri sál, sem kallað hefur fram úr dýpstu fylgsnum sálar minnar hinar sterkustu og viðkvæm- ustu tilfinningar mínar, göfgað þær og frjóvgað,“ — og hann kveðst gera það með: „þakklæti og djúpri lotningu fyrir þeim guðdómlega og göfugasta mætti, sem ég þekki — þeim kær- leika, sem á vegum hreinleikans og heilagleikans gefur allt til unaðar og blessunar þeim, sem í skjóli hans býr.“ Þetta eru fögur orð, sem allir vinirnir vita að eru sönn. Öll framkoma þessarar vel menntuðu og hjartahreinu konu var látlaus, en yfir henni hvíldi sá tiginleiki og þokki, sú hjartaglóð, sem olli því, að eftir henni var tekið, og túlk- aði betur en mörg orð hvern mann hún hafði að geyma. Fríð í sjón og horsk í hjarta, höfðingslund af enni skein. Svipur, athöfn — allt nam skarta, af því sálin var svo hrein. Þessar ljóðlínur þjóðskáldsins, sem ortar voru um löngu liðna heiðurskonu, fara áreiðanlega nærri um það að vera raunsönn lýsing á frú Sigríði Torfadóttur. Hún var svo hrein sál, átti svo gott hjarta. — Elskaði fegurðina og hið góða, hvar sem það birtist, en skrifaði mótgerðir í sandinn. Vildi engan særa, en öllum rétta hjálparhönd, ef hún mátti. Grandvarleiki þessarar góðu konu gat engum dulizt. Framkoma hennar var öll til fyrirmyndar. Hún var sjálfstæð í skoðunum og gat haldið fast á máli sínu, en var jafnframt gædd mikilli geðprýði og yndislegu innra jafnvægi. Sigríður var mikil trúkona — trúin var hennar hjartans mál. Það var trúin, sem gerði hana svo heilsteypta sál sem hún var — og jafnframt svo sterka í mildi sinni og hjarta- gæzku. Starfsvettvangur hennar var ef til vill ekki víður. Hún var eiginkona og móðir, en hvaða starf er veglegra ? Er nokk- urt starf mikilvægara frá sjónarmiði þjóðfélagsins, þegar vel er að gáð? Hún var manninum sínum stoðin styrka, sem aldrei brást, gerði hann að meiri og betri manni, eins og orð hans, er ég vitnaði áðan til, svo og fjölmörg fleiri ummæli og ljóð sýna, svo að ekki verður um villzt. Og hvílík hamingja að fá að eiga hjai’tkæran lífsförunaut sér við hlið í dagsins önn og stríði í nær hálfa öld. Mikils hefur nú eiginmaðurinn misst. En ég veit, vinur, að í „Þú hopar lítt við sár. Þú veizt að lífið lifir, en lúta hlýtur hel, að öllu drottnar yfir guðs eilíft fagrahvel.“ Og börnum sínum var hún góð móðir, enda létu þau áreið- anlega ekkert ógert, það sem í þeirra valdi stóð, til að reynast henni góð börn. Fagurs heimilislífs er minnst og blessaðar minningarnar, sem tengdar eru heimilinu hennar og ykkar ástvinanna. En heimilið ykkar var aldrei einangraður smáheimur. Það stóð ávalt við þjóðbraut, opið frændum og vinum, samherjum og góðum sálufélögum. Þangað hefur leið margra legið. Og þar var fagurt menningarheimili og þar var gott að koma, því að gesturinn fann að hann var velkominn. Margir minnast nú þessara stunda með þakklæti í huga. Þar lýsti gleðin á brá, þegar húsfreyjan settist við hljóðfærið og söngurinn ómaði. Þar var mikil gestrisni, en líka rausn inn við hjartað, sem yljaði gestinum og gerði honum hverja komu þangað minnis- stæða, skildi eitthvað eftir, sem betra var að eiga en án að vera. En öllu er markaður tími. Dagarnir fljúga frá oss hver af öðrum, og vér kveðjum vinina við hin hinztu vegamót, en sá ræður sem ræður vel. Hér er minninga- og kveðjustund. Vinirnir kveðja hjartkæra eiginkonu og móður, tengda- móður og ömmu, frændkonu og vin og færa henni hjartgrónar þakkir sínar og fyrirbænir. Að þessum líkbörum leitar hugur margra, nær og fjær, og biður góðri konu, fagurri sál, bless- unar drottins. Sonurinn í fjarlægð og fjölskylda hans eru oss nálæg í anda á þessari stundu, og þeim sendum vér samúðarkveðjur úr húsi drottins. Postuli Krists sagði: Skart yðar sé ekki ytra skart, heldur sé það hinn huldi maður hjartans í óforgengilegum búningi hógværs og kyrr- láts anda, sem dýrmætur er í augum guðs. Þegar ég lít við leiðarlok yfir ævidag Sigríðar Torfadóttur og virði fyrir mér persónuleika hennar og líf, finnst mér hún hafa komizt langt áleiðis á þeirri braut að lifa í samræmi við þessi orð postulans, eftir því sem oss veikum mönnum er kleift. Sýndai*mennskan var henni fjarlæg, hollustan við hið góða og fagra var aðalsmark hennar, stafaði frá henni eins og bjartir geislar. Hún safnaði góðum sjóði hjarta síns, ávann sér veganesti í baráttu lífsins, sem sá einn kann að meta er á viljann lítur og verkin metur. Gefi henni nú góður guð raun lofi betra. SIGRÍÐUR TORFADÓTTIR Kveðja frá Eiginmanni. Þú ert mér horfin, ástargyðjan mín. Nú er svo tómt að vera hér án þín. Mér gleymist aldrei glaða brosið þitt. Hér græðir ekkert hjartasárið mitt. Minn hinzta koss, á kalda ennið þitt, ég kyssti beygður, hjartans yndið mitt, í dauða bros á vörum þínum var. Það vitni um hið fagra líf þitt bar.

x

Eining

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.