Okkar á milli - 01.03.1988, Qupperneq 2
pSnBÓK
L^J MÁWAÐARINS
Bók mánað- Fullt verð: 2.380 kr.
arins Okkar verð: 1.975 kr.
Dalur hestanna eftir Jean M. Auel
Magnþrungin og spennandi
saga í hrífandi umhverfi
Bók mánaðarins að þessu sinni er Dalur
hestanna eftir Jean M. Auel, en það er sjálf-
stætt framhald af Þjóð bjarnarins mikla,
sem Veröld valdi bók mánaðarins í fyrra og
hlaut stórkostlegar viðtökur félagsmanna.
Hér er um viðamikið skáldverk að ræða,
magnþrungna og spennandi sögu, sem
gerist í óvenjulegu og hrífandi umhverfi.
Þetta er bók sem heillað hefur milljónir les-
enda um allan heim.
Á vit hins óþekkta
í þessari miklu sögu segir Jean M. Auel frá
Aylu, stúlkunni af ættstofni nútímamanns-
ins, sem verður viðskila við fólk sitt fyrir
35.000 árum og elst upp hjá fornri kynkvísl
Neanderdalsmanna. Dalur hestanna hefst,
þegar Ayla verður að yfirgefa öryggi fyrri
heimkynna og halda á vit hins óþekkta í
óblíðri og grimmri veröld utan hellisveggj-
anna. Ayla reikar einmana um óbyggðirnar
og þrá hennar eftir mannlegu samneyti og
umhyggju heltekur hana. Hún hefur næst-
um látið bugast þegar örlögin leiða hana
inn í Dal hestanna þar sem hún hittir Jon-
dalar, unga manninn af hennar eigin kyn-
stofni.
Meö blá augu
Þetta gerist í upphafi tuttugasta kafla sög-
unnar, en það er á þessa leið: ,,Aylu varð
starsýnt á manninn. Hún gat ekki haft aug-
un af honum enda þótt hún vissi að það
væru ekki mannasiðir. Það var eitt að viröa
hann fyrir sér meöan hann var meðvitund-
arlaus eða sofandi, en að horfa á hann
svona glaðvaknaðan var allt annað. Hann
var með blá augu. Hún vissi að hún var sjálf
bláeygð. Hún hafði nógu oft verið minnt á
það hvernig hún var öðruvísi en hinir. Hún
hafði líka séð þau í spegilmynd sinni í tjörn-
inni. En augu fólksins í Ættinni voru brún.
Hún hafði aldrei séð neinn með blá augu
fyrr, og svo skærblá að hún trúði því varla
að hún væri með sjálfri sér...“
Afdrifaríkar afleiöingar
Á mörkum vonar og ótta verður Ayla fyrir
nýrri reynslu og hún skynjar áður óþekktar
tilfinningar og kenndir, sem eiga eftir að
hafa afdrifaríkar afleiðingar, fyrir hana, fyrir
Jondalar og mannkyn allt.
Saga Aylu er í senn spennandi og
áhugaverð. Hún er hrífandi og skemmtileg
skáldsaga, en á jafnframt erindi til allra nú-
tímamanna, sem vilja fræðast um uppruna
sinn og öðlast betri skilning á sjálfum sér.
2 • Bók er best vina (íslenskur málsháttur)